Hagskýrslur um landbúnað - 01.02.1933, Blaðsíða 10
8*
Búnaðarsliýrslur 1931
Á 100 manns
Sauðfé Naut Hross Sauðfé Naut Hross
1921 .... . . 553 900 23 733 49 320 582 25 52
1922 .... . . 571 248 26 103 51 042 600 27 53
1923 .... . . 550 190 25 853 50 429 563 26 52
1924 .... . . 583 180 26 949 51 009 593 27 52
1925 .... . . 565 695 26 281 51 524 566 26 52
1926 .... . . 590 037 27 857 52 868 580 27 52
1927 ... . . . 499 947 28 912 53 085 581 28 51
1928 .... .. 627 140 30 023 52 245 598 29 50
1929 .... . . 640 031 30 070 50 657 604 28 48
1930 .... . . 690 178 30 083 48 939 642 28 46
1931 .... . . 691 045 29 579 47 542 633 27 44
sauðfjár hefur aldrei í verið meiri en 1930, og nautgripatalan
var líka hæst þá (á fyrri hluta 18. aldar og eftir miðja 19. öld var hún
þó nokkru hærri), en hrossatalan hefur verið hæst 1918.
Um skepnufjölda landsmanna á umliðnum öldum er yfirlit í Búnað-
arskýrslum 1913, bls. 8* —10*, og vísast hér til þess. Þó skal þess getið
að í því er sú villa, að nautgripir 1904 eru taldir 30 498 í stað 25 498.
II. Ræktað land.
Terrain cultivé.
Túnastærðin er talin hér í skýrslunum að mestu eftir því sem
tilgreint er í Fasteignabók fyrir árið 1930 að viðbættri nýrækt sam-
kvæmt jarðabótaskýrslum síðan. Sjá um það nánar í Búnaðarskýrslum
1930 bls. 8*-9*. Samkvæmt því hefur túnstærðin alls á landinu verið
27 137 hektarar vorið 1931. Árið áður var túnstærðin talin 26 184 hekt-
arar og er því aukningin 953 ha.
Matjurtagarðar voru taldir alls 464 ha vorið 1931, en 455
vorið á undan.
III. Jarðargróði.
Produits des récoltes.
í búnaðarskýrslunum er bæði hey, mór og hrís gefið upp í hestum.
En hesturinn af hverju þessu er misþungur og einnig er töðuhesturinn,
útheyshesturinn o. s. frv. misþungur á ýmsum stöðum. Fer það nokkuð
eftir landshlutum, en þó getur munað töluverðu á nágrannahreppum
og jafnvel á bæjum í sama hreppi. Á búnaðarskýrslueyðublöðunum
hefur því þess verið óskað, að tilgreind væri venjuleg þyngd í