Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1932, Blaðsíða 60
Hagstofa Islands
gefur út eftirfarandi rit:
I. Hagskýrslur íslands. Þar eru birtar ítarlegar skýrslur um þau
efni, sem Hagstofan tekur til meðferðar. Skýrslurnar koma út í sjálf-
stæðum heftum og fást þau keypt einstök. Af Hagskýrslunum er út
komið:
Verzlunarskýrslur 1912—1929.
Búnaðarskýrslur 1912—1929.
Alþingiskosningar 1908—1931.
Fiskiskýrslur og hlunninda 1912—1930.
íslenzk mannanöfn 1. des. 1910.
Barnafræðsla 1909—1920.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um sambandslög 1918.
Mannf jöldaskýrslur 1911—1925.
Skýrslur um skipakomur 1913—1917.
Manntal á íslandi 1. des. 1920.
Sparisjóðir 1911—1925.
Dómsmálaskýrslur 1913—1925.
Menn geta gerzt áskrifendur að Hagskýrslunum með því að snúa
sjer beint til Hagstofunnar. Áskriftargjald er 5 krónur um árið.
II. Hagtíðindi, mánaðarblað. Eru þar birtar mánaðarskýrslur um inn-
flutning og útflutning, smásöluverð og ýmislegt fleira, sem ekki þykir
taka að birta í sérstöku hefti af Hagskýrslunum. Ennfremur bráða-
birgðaskýrslur um ýmislegt, sem síðar koma um ítarlegri skýrslur.
Af Hagtíðundum eru komnir út 16 árgangar 1916—1931. Áskrift-
argjald er 1 króna og 50 aurar um árið.
III. Árbók Hagstofu íslands. Er þar birtur útdráttur úr þeim talfræði-
upplýsingum, sem til eru á öllum sviðum, án þess farið sé mikið út í
einstök atriði. Ennfremur eru þar allmargar töflur með alþjóðlegum
yfirlitum. Af árbókinni er út kominn 1. árg. 1930. Kostar 3 krónur.
IV. Manntal á íslandi árið 1703 tekið að tilhlutun Árna Magnús-
sonar og Páls Vídalín. Er það prentað í heild sinni og er gert ráð
fyrir, að eitt hefti komi út á ári. Komin eru út 8 hefti, samtals 40
arkir að stærð. Byrjað var á Gullbringusýslu og er komið norður í
Eyjafjarðarsýslu. Hvert hefti kostar 3 krónur, en menn geta gerzt
áskrifendur að öllu ritinu og greiðist þá hvert hefti við móttöku.