Hagskýrslur um fiskveiðar - 01.01.1936, Qupperneq 11
Fiskiskýrslur 1934
.9
Meðaltal skipverja á hverjum l)át hefur verið:
Mótor- Ilóðrar- Mótor- Róðrar-
bátar bátar bátar bátar
1930 ... 3.o 1933 . .. 4.o 3..
1931 ... 3.3 1934 ... 3.7
1932 ... 4.i 3.i
í töflu V (bls. 32) er skýrsla um veiðitíma hátanna. Sýnir hún,
að veiðitími mótorbátanna er yfirleitt lengri heldur en róðrarbátanna.
Algengasti veiðitími mótorbáta er 2—3 mánuðir, en róðrarbáta 1 mán-
uður og þar undir.
II. Sjávaraflinn.
Resultats des péches maritimes.
A. Þorskveiðarnar.
Restillals ilc la péche de la moruc.
Um skýrslufyrirkomulagið sjá Fiskiskýrslur 1912, bls. 11—12, Fiski-
skýrslur 1913, hls. 11—12* og Fiskiskýrslur 1915, hls. 9*.
4. yfirlit (bls. 10) sýnir árangur þorskveiðanna á þilskip og báta
sér í lagi og samtals árið 1934 samanborið við afla undanfarandi ára.
Fram að 1912 var aflinn einungis gefinn upp í fiskatölu og er sam-
anburðurinn í yfirlitinu miðaður við það. Hefur því þilskipaaflanum árin
1912—34 og því af bátaaflanum 1913—34, sem gefið hefur verið upp i
þyngd, verið hreytt i tölu eftir hlutföllum þeim, sem skýrt er frá í Fiski-
skýrslum 1913, bls. 11*—12*, sbr. Fiskiskýrslur 1915, hls. 9*. Þó hefur
kolinn, sem aflaðist á botnvörpunga 1912—-1934 ekki verið tekinn með i
yfirlitið, og líklegast þykir, að koli sá, sem aflast hefur árin þar á und-
an, hafi að mestu eða öllu fallið úr skýrslum þá.
Árið 1934 hefur afli sá, sem yfirlitið nær yfir, orðið 68 milj. fiska
á þilskip og báta alls. Er það rúml. 9 milj. fiskum minna en 1933, en
2 milj. meira en 1932.
í 5. yfirliti (bls. 11) er sýnd þyngd aflans árið 1934 miðað við
nýjan flattan fisk. Þilskipaaflamun, sem gefinn hefur verið upp i öðru
ástandi hefur þvi verið breytt í nýjan fisk flattan og afhöfðaðan eftir
þeim hlutföllum, sein skýrt er frá í Fiskiskýrslum 1915, bls. 9*. Nýi fisk-
urinn, sem getið er um í skýrslunum mun hvorki vera flattur né afhöfð-
aður, og hefur honum þvi (að undanskildu heilagfiski, skötu og öðrum
fisktegundum) verið breytt í nýjan fisk flattan, með því að draga þriðj-
ung frá þyngd hans. Því af bátaaflanum, sem gefið hefur verið upp í
tölu, hefur einnig verið breytt í þyngd samkvæmt hlutföllum þeim, sem
tilfærð eru i Fiskiskýrslum 1913, bls. 11*—12*, í sambandi við hlutföllin
milli fullverkaðs fisks og nýs.
2