Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Qupperneq 4
4 ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNÍ 2008
Fréttir DV
DV jFRÉTTIR
Skemmdarvargar
á safni
Skemmdarverk hafa verið
unnin á húsnæði Víkingasafnsins
við Víkingabraut í Innri-Njarð-
vík tvær nætur í röð. Aðfaranótt
sunnudags voru margar rúður
í húsinu brotnar og aðfaranótt
mánudags voru skemmdarvarg-
ar aftur á ferðinni þegar fleiri
rúður voru brotnar og málningu
skvett á innanstokksmuni. Rann-
sókn málsins stendur yftr og bið-
ur lögreglan á Suðurnesjum þá
sem hafa orðið mannaferða varir
síðustu nætur að hafa samband
við lögregluna.
Níu stöðvaðir
Níu ökumenn voru stöðvaðir
fyrir of hraðan akstur af lögregl-
unni á Blönduósi um miðjan
dag í gær. Sá ökumaður sem
hraðast ók mældist á
125 kílómetra hraða.
Samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglunni á
Blönduósi var nokk-
uð mikil umferð í
Hrútafirði þar sem
flestir ökumennirn-
ir voru stöðvaðir. Þá
valt bifreið á Skaga-
strandarvegi um miðjan
dag í gær. Minniháttar
slys urðu á farþegum en
bifreiðin er gjörónýt.
Á sjötugsaldri
á ofsahraða
Lögreglan á Hvolsvelli stöðv-
aði í gær 63 ára karlmann á 143
kílómetra hraða á Suðurlands-
vegi austan við Hvolsvöll. Öku-
maðúrinn mun þó halda öku-
leyfinu, en á von á níutíu þúsund
króna sekt og að auki íjóra
punkta í ökuferilskrá. Samkvæmt
upplýsingum frá lögreglunni á
Hvolsvelli er það nærri daglegur
atburður að ökumenn séu teknir
á slíkum ofsahraða og gildir þar
einu á hvaða aldri ökumennirn-
ir eru og hvers konar bíla þeir
keyra. Ökumaðurinn sem lög-
reglan stöðvaði í gær var á nýleg-
um Ford Focus-fólksbíl.
Neitaralvalegri
líkamsárás
Héraðsdómur Reykjavíkur
þingfesti í gær ákæru á hend-
ur nítján ára konu úr Reykjavík.
Konunni er gefið að sök að hafa
ráðist með mjög fólskulegum
hætti að manni í Mosfellsbæ í júlí
á síðasta ári. Konan mun hafa
slegið karlmann í höfuðið með
glerflösku með þeim afleiðing-
um að sauma þurfti átján spor
í andlit hans. Maðurinn hlaut
skurð á nef, efri vör og enni þegar
flaskan brotnaði á höfði hans.
Konan neitaði sök við þingfest-
ingu málsins.
ELJ
A diisi
i
i
i
RUVOLOGLEGT
Forsvarsmenn 365 hf. telja að Ríkisútvarp-
ið ohf. fari á svig við lög og samkeppnis-
reglur með margvíslegum hætti og eru
þess fullvissir að um þriggja milljarða
króna árlegur ríkisstyrkur til rekstrar
RÚV ohf. sé ólögmætur og brjóti gegn
ákvæðum EES-samningsins.
„Þannig telur 365 hf.
að verulegar líkur séu
á að að RÚV niður-
greiði auglýsingaverð
með fjárframlögum
Ríkisútvarpið Stjórnsýslukærur 365 á hendur RÚV
ohf. vegna meintra brota á samkeppnislögum og
ólögmætra ríkisstyrkja verða afgreiddar á næstunni.
JÓHANN HAUKSSON
blaöamaður skrifar: johannh^dv.is
.1
Að minnsta kosti þrjár kærur á
hendur RÚV eru til athugunar, tvær
stjórnsýslukærur frá 365 hf. hjá
Samkeppniseftirlitinu og ein hjá
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) sem
upphaflega var lögð fram af hálfu
Norðurljósa fýrir nokkrum miss-
erum. Eftir því sem næst verður
komist styttist í að kærurnar hljóti
afgreiðslu. Páll Gunnar Pálsson for-
stjóri Samkeppniseftirlitsins kveðst
ekki geta sagt nákvæmlega hvenær
niðurstaða verði ljós.
f stjórnsýslukæru 365 hf. til Sam-
keppniseftirlitsins er gerð sú krafa
að stofnunin rannsaki og ákvarði
hvort íjárframlög ríkisins til RÚV
ohf. feli í sér ólögmæta ríkisað-
stoð og brjóti þannig gegn ákvæð-
um EES-samningsins. Jafnframt vill
365 hf. vita hvort samkeppnisstöðu
keppinauta RÚV sé raskað með
ívilnandi stuðningi við RÚV ohf.
f stjórnsýslukæru 365 er vísað
til þess að lagaskilgreining á hlut-
verki RÚV ohf. sé afar rúm en það
leiði til þess að RÚV geti aðhafst
flest það sem fjölmiðlar í einkaeigu
aðhafast um leið og það hafi forskot
á keppinautana í krafti frjárfram-
laga frá ríkinu. f kærunni er gefið
til kynna að með víðtækri skilgrein-
ingu á hlutverki RÚV sé nær óger-
legt að segja fyrir um það hversu
mikið fjármagn fari raunveru-
lega í að veita útvarpsþjónustu *
í almannaþágu. Þetta er talið
auka líkur á því að RÚV mis-
noti það fjármagn sem fæst
frá ríkinu til að auka forskot
sitt í samkeppni við 365 eða
aðra ljósvakamiðla.
Handvömm Alþingis?
í þriðju grein laga um
Ríkisútvarpið er kveðið
fráríkinu"
á um hlutverk RÚV ohf. í þrettán
liðum. í kæru 365 til Samkeppn-
iseftirlitsins er bent á að fram-
kvæmdastjórn ESB ætlist til þess að
skilgreiningar séu skýrar og fyrirsjá-
anlegar þegar veittir eru ríkisstyrk-
ir enda verði keppinautar að geta
skipulagt rekstur sinn með hliðsjón
af skyldum sem sá hefur sem veitir
þjónustu í almannaþágu. f kærunni
segir að þetta sé ógerlegt
sökum þess hversu
óskýr ákvæðin um
hlutverk RÚV
séu í lögunum.
í kærunni
er einnig á það
bent að enga
útreikninga
sé að finna
sem grund-
vallamegi rík-
isstyrkinn á.
Ákvörðun um
fjárhæð
/ \
J
Páll Magnússon Með nefskatti, sem tekur
gildi um næstu áramót, fær RÚV ohf. um þrjá
milljarða króna i fastar tekjur frá skattgreiðend-
um. Þar að auki gætu árlegar auglýsingatekjur
nálgast 1,4 milljarða króna að auki sé tekið mið
af árshlutareikningum RÚV á síðasta ári.
sé ekki byggð á neinum forsendum
um rekstrarkostnað RÚV ohf. við
að fullnægja skyldum sínum um
útvarpsþjónustu í almannaþágu.
„Við útreikning á ríkisstyrk til RÚV
virðist einvörðungu tekið mið af
því hversu mikil skattbyrðin verð-
ur á greiðendum nefskattsins þegar
hann tekur gildi." Bent er á þá nið-
urstöðu ffamkvæmdastjórnar ESB
að danska ríkið hafi ekld hugað að
þessum sjónarmiðum við ákvörðun
á ríkisstyrk til TV2 á sínum tíma.
TV2 var gert að endurgreiða
danska ríkinu sem svarar 10
milljörðum króna.
Niðurgreidd samkeppni
RÚV ohf.
í kæru 365 er einnig á það
bent að ríkið hafi enga hug-
mynd um hvort ríkisaðstoð-
in við RÚV ohf. sé veitt inn-
an meðalhófsmarka eða ekki
og því sé ekki unnt að vita
hvort hluti framlags-
ins sé notað-
ur til að grafa
undan sam-
keppni. Þar
að auki hafi
RÚV leyfst
að skila tap-
rekstri árum
saman sem
skekki
myndina
enn meir.
Furðu
sæti að
>1
við slíkar aðstæður hafi RÚV stað-
ið í harðri samkeppni við miðla
í einkaeign um kaup á eftirsóttu
sjónvarpsefni.
Fullyrt er að RÚV ohf. sæki mjög
hart inn á auglýsingamarkað og
bjóði auglýsendum margs kon-
ar gylliboð þar sem dæmi séu um
allt að 50 prósenta afslætti af upp-
gefnu verði auglýsinga. Þannig tel-
ur 365 hf. að verulegar líkur séu á að
að RÚV niðurgreiði auglýsingaverð
með fjárframlögum frá ríkinu með
tilheyrarndi röskun á samkeppni.
365 hf. er það sérstakur þyrnir
í augum að Sjónvarpið skuli með
vinsælli afþreyingardagskrá gera
sig að aðlaðandi kosti fyrir auglýs-
endur. Þetta sé dæmi um að rík-
isaðstoð sé notuð til að vega að
rekstrargrundvelli einkamiðla.
„Ríkisaðstoð er notuð til að kaupa
vinsælt sjónvarpsefni, sem síðan
er ætlað að auka áhorf sem aftur
er ætlað að auka auglýsingatekjur í
rekstri RÚV" segir í kærunni.
f umsögn Samkeppniseftirlits-
ins til Alþingis við samningu lag-
anna um RÚV ohf. segir að ljóst sé
að RÚV muni geta nýtt ríkisaðstoð
til framleiðslu eða kaupa á vinsælu
dagskrárefni. Það skapi eða auki
áhorf og hlustun hjá RÚV og styrki
þar með stöðu félagsins á markaði
fyrir auglýsingar. „Af þessu leiðir
óhjákvæmilega að umrædd sam-
keppnisstarfsemi RÚV á sviði aug-
lýsinga verður niðurgreidd með
þeirri ríkisaðstoð sem félagið mun
njóta."
Tveir tollveröir sagðir hafa þuklað á konum undir fölsku yfirskini:
Tollvörður játar vegna minnisleysis
Aðalmeðferð í máli Ingvars Lýðs-
sonar og Sigurðar Más Ólafssonar
var í Héraðsdómi Reykjavíkur gær.
Ákæran felst í því að 19. janúar síð-
astliðinn áttu þeir að hafa misnotað
aðstöðu sína sem tollverðir og leit-
að á tveimur konum, ásamt því að
hafa stolið veski frá annarri þeirra.
Sigurður segist ekki muna eftir at-
burðinum, þannig að hann játaði
á sig kærurnar á grundvelli þess að
kortaveski sem hafði verið í tösku
annarrar konunnar fannst í fórum
hans.
Ingvar neitar öllum ásökunum
og segist ekki hafa komið nálægt
þessu. Þeir höfðu verið í starfs-
mannagleðskap fyrr um daginn
og svo seinna um kvöldið hafi þeir
farið á skemmtistaðinn Hressó til
að halda gleðinni áfram. Ingvar er
sagður hafa farið heim og skipt um
föt en Sigurður var enn í tollvarðar-
fötunum. Þeir hittust á Thorvald-
sen bar og voru síðan samferða á
Hressó. Ingvar segist ekki hafa ver-
ið mikið með Sigurði eftir að þeir
komu þar inn, en hann hafi séð
hann með tveimur konum. Kon-
urnar segja að tveir dökkklæddir
menn hafi komið til þeirra og sagt
að þeir væru frá tollinum að leita
að dópi. Þær muna ekki hvort báðir
hafi sýnt tollvarðarskilríki, en báðar
eru vissar um að annar aðilinn hafi
gert það. Konurnar sögðust ekki
hafa mikið vit á þessu og því leyft
þeim að leita á sér og í veski annarr-
ar konunnar, sem annar maðurinn
hljóp á brott með. Ingvari var sagt
upp störíúm tímabundið en Sigurð-
ur sagði sjálfur upp undir þrýstingi
frá tollstjóra.
olivalur@dv.is