Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2008, Qupperneq 7
DV Fréttir
ÞRIÐJUDAGUR 3. JÚNl 2008 7
mig undan og ætlaði ekki að láta þá
taka mig. Ég greip hafnaboltakylfu
sem sonur minn á og sagði að ef þeir
myndu snerta konuna mína aftur, þá
fengju þeir að finna íyrir kylfunni,"
segir Ólafur og heldur áfram. „Þá
gripu þeir maze-brúsa og hótuðu
að beita þeim. Ég sagði þeim að ef
það kæmi dropi úr þessum brúsum,
þá myndi ég einnig verja mig með
öllum tiltækum ráðum," segir hann
en sonur Ólafs var einnig staddur á
heimilinu og stóð á milli lögreglu-
mannnanna og Ólafs.
>-6473 1 037
Taldi sig hafa samið
„Ég samdi við þá að ef ég fengi
að fara inn í herbergi og klæða mig,
þá skyldi ég koma með þeim átaka-
laust. Ég taldi mig hafa samið þannig
við þá og rétti syni mínum hafna-
boltakylfuna og fór inn í herbergi.
Þá vissi ég ekki fyrr til en einn þeirra
stökk á mig og sneri mig niður. Ann-
ar lagðist þannig ofan á lappirnar á
mér að hnéð á mér er ónýtt," segir
Ólafur sem sem hélt á hundinum
sínum í látunum en sleppti honum
undir rúmið þegar hann datt í gólfið.
Ólafur fékk áverka á vinstri kinn við
átökin. í skýrslu lögreglunnar segir
að Ólafur hafi rekið höfuð sitt í gólfið
og þannig fengið áverkana. „Ég lenti
á hægri hliðinni og sleppti hundin-
um undir rúmið. Þegar þeir höfðu
handjárnað mig reif einn þeirra í
hárið á mér og sló höfðinu á mér
þrisvar sinnum í gólfið. Það útskýr-
ir áverkana á andlitinu," segir Ólafur
ósáttur.
Bæði Ólafur og Martha hafa kært
lögreglumennina Sigurð Árna Reyn-
isson, Loga Jes Kristjánsson og Daða
Gunnarsson fyrir stórfellda líkams-
árás og brot á friðhelgi einkalífsins.
Ólafur, sem er sjómaður, vill
meina að þeir hafi ætiað að hafa af
honum vinnuna. „Þeir hafa vitað að
ég átti að fara á sjó eftir hádegið. Þeir
reyndu að halda mér eins lengi og
þeir gátu en höfðu engar forsend-
ur til þess. Ég slapp því um hálftíma
áður en skipið lagði úr höfn," segir
Ólafur. Hann er ekki bjartsýnn á að
kæran leiði til ákæru. „Ég hef ekki
góða reynslu af ríkissaksóknara en
bind þó vonir við að þeir skoði þetta
vel en slái ekki málið út af borðinu
með einu A4 blaði," segir Ólafur að
lokum.
þeir að handtaka Ólaf. „Ég spurði
þá hvort þeir væru með handtöku-
heimild en þeir svöruðu því ekki en
voru að tala við einhvern lögffæð-
ing í símann. Ég vildi bara fá að vita
hvers vegna þeir væru að handtaka
mig. Þeir sögðu einhvern lögfræðing
hjá ríkissaksóknara hafa fyrirskipað
þetta en þeir leyfðu mér ekki að tala
við hann," segir Ólafur sem vildi ekki
gangast við handtökunni án þess að
vita fyrir hvað hún væri. „Þá færði ég
ættingjum. Ólafur segist sjálfur hafa
hringt á neyðarlínuna og óskað eft-
ir að hann yrði handtekinn fyrir
óspektir.
Að morgni 9. janúar á þessu ári
börðu þrír lögreglumenn að dyrum
hjá Ólafi. Lögreglan á Akranesi hafði
óskað eftir aðstoð við handtöku frá
lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu,
að sögn Geirs Jóns Þórissonar yfir-
lögregluþjóns á höfuðborgarsvæð-
inu. í skýrslu lögreglunnar segir um
Hringdi sjálfur á lögreglu
Þann 5. janúar lagði eiginkona
Þóris ffarn kæru á hendur Ólafi fyr-
ir brot á friðhelgi einkalífsins, heim-
ilis og fjölskyldu. í skýrslutökunni
sagði hún að Ólafur hefði barið að
dyrum og á glugga heima hjá þeim.
Hann hefði einnig hringt og haft í
hótunum um nóttina. Börn þeirra
hefðu orðið mjög hrædd og eftir að
lögreglan handtók manninn höfðu
þau brugðið á það ráð að gista hjá
ástæðu handtökunnar að hún hafi
verið ffamkvæmd til að koma í veg
fyrir áframhaldandi brot.
Maze-úði og hafnaboltakylfa
Tengdadóttir Ólafs fór til dyra
þennan umrædda morgun. Lög-
reglumennirnir spurðu eftír Ólafi en
þegar hann og Martha, kona hans,
komu fram hafi þeir hrint henni
ffá með þeim afleiðingum að hún
lentí illa á skógrind. Því næst ætluðu
Lögreglumennirnir sem handtóku
Ólaf 9. janúar Ólafur segir þá hafa
handtekiö hann í leyfisleysi.
32500
«1305
lUa.. HcU.ll ,oSKÍ-.MíO/,.,
|f||H * VODKA
Snúinnniður Lögreglumenn
beittu valdi viö handtökuna.