Kópavogsblaðið - 01.12.2007, Blaðsíða 2
Námskrá fyrir
leikskóla
Út er komin námskrá fyrir elstu
börnin í leikskólum Kópavogs en
námskráin hefur verið í vinnslu og
prófun frá árinu 2004. Markmið með
námskránni er m.a. að tryggja að
öll fimm ára börn í leikskólum Kópa-
vogs takist á við krefjandi, áhuga-
verð og fjölbreytt leikskólaverkefni í
samræmi við aldur sinn og þroska,
einstaklingslega og í hópi; að fimm
ára börn í leikskólum Kópavogs tak-
ist á við skólastarf sem er byggt á
þekkingu á því hvernig börn á
þessum aldri læra mest og best; að
börnin takist á við nám sem byggt
sé á áhugahvöt og virkni þeirra; að
gera starf og nám fimm ára barna í
leikskólum Kópavogs sýnilegra; að
auðvelda kennurum í leikskólum
Kópavogs að byggja upp gott starf
með elstu börnum leikskólanna og
miðla til foreldra og annarra í hverju
það er fólgið. Námskráin nær til allra
þátta í leikskólastarfinu en sérstök
áhersla er lögð á lýðræðislegt starf
með börnunum.
Teppi til Afríku
Konur á dvalarheimilinu Sunnu-
hlíð afhentu nýlega Kópavogsdeild
Rauða krossins 58 ungbarnateppi.
Teppin eru kærkomin gjöf og renna í
verkefni deildarinnar sem kallast Föt
sem framlag. Þau eru send erlend-
is, einkum til Afríku, þar sem börn í
neyð njóta góðs af þeim. Sjálfboðalið-
ar í Kópavogsdeild prjóna og sauma
fyrir neyðaraðstoð og þar sem þörf-
in er mikil er kærkomið fyrir deild-
ina að fá fleiri sjálfboðaliða sem hafa
gaman af hannyrðum og leggja um
leið sitt af mörkum til hjálparstarfs.
Hver og einn getur sniðið sitt fram-
lag að eigin þörfum, sinnt því í hópi
eða heima.
Breytingum á hafnar-
svæðihafnað
Bæjarráð Kópavogsbæjar hef-
ur staðfest ákvörðun skipulags-
nefndar frá 6. nóvember 2007 þar
sem hafnað var tillögu að breyttu
skipulagi á hafnarsvæðinu vestast
á Kársnesi. Ákvörðunin grundvall-
ast á innsendum athugasemdum.
Alls bárust athugasemdir frá 1674
einstaklingum og samtökum, þar af
1117 af Kársnesinu sjálfu. Í umsögn
bæjarskipulags Kópavogsbæjar eru
athugasemdirnar dregnar saman í
flokka og umsögn gerð um þær í því
samhengi. Athugasemdunum var
skipt í eftirfarandi aðalflokka, hafnar-
svæði, umferð, íbúaaukning, vistkerf-
ið, tenging undir/yfir Fossvog, flugör-
yggi, áhrif á fasteignaverð, útsýni og
almennt um skipulagið.
Bæklingur um
íþróttir í Kópavogi
Út er kominn myndskreyttur bæk-
lingur um íþróttir og íþróttamann-
virki í Kópavogi. Með bæklingnum
vilja bæjaryfirvöld vekja athygli á
þeirri fjölbreyttu íþróttastarfsemi
sem stunduð er í Kópavogi og
þeirri umgjörð sem bærinn hefur
búið þessum mikilvæga málaflokki.
„Stjórnendur bæjarins telja að með
því að búa vel að íþróttastarfi stuðli
bærinn að heilbrigðum og hollum
lífsháttum,” segir Gunnar I. Birgisson
bæjarstjóri. „Í Kópavogi eru flestar
greinar íþrótta stundaðar og aðstað-
an er hvergi betri.” Upplýsinga-
bæklingurinn er borinn inn á hvert
heimili í bænum. Í honum segir með-
al annars frá Kórnum, íþrótta- og
tónleikahöll við Vallakór, Sundlaug
Kópavogs og íþróttamiðstöðinni Ver-
sölum, íþróttaaðstöðu í Fossvogs-
dal og Kópavogsdal, Kópavogsvelli,
golfvelli GKG, Tennishöll Kópavogs,
íþróttahúsinu Digranesi, nýju hest-
húsahverfi Gusts, aðstöðu siglinga-
félagsins Ýmis, íþróttahúsum skól-
anna að ógleymdum sparkvöllum,
útivistarsvæðum og hjólreiðastígum.
Kópavogsbær vill
kaupa leikskólann
Kjarr
Á fundi bæjarráðs Kópavogs var
lögð fram umsögn fræðslustjóra
varðandi framtíð leikskólans Kjarrs-
ins. Lagt er til að freistað verði að ná
viðunandi samningum við eiganda
leikskólans um kaup Kópavogsbæj-
ar á húsnæði og búnaði skólans.
Bæjarráð samþykkir að leitað verði
samninga um kaup á leikskólanum
og felur fræðslustjóra að koma með
nánari útfærslu á umsögn sinni.
Fjárhaldsmaður
verði skipaður við leik-
skólann Hvarf
Á fundi bæjarráðs var einnig lögð
fram greinargerð frá bæjarlögmanni
og framkvæmdastjóra fræðslusviðs
um leikskólann Hvarf. Framkvæmda-
stjóri fræðslusviðs og bæjarlög-
maður gerðu grein fyrir stöðu mála
varðandi rekstur leikskólans. Bæj-
arráð felur bæjarlögmanni og fram-
kvæmdastjóra fræðslusviðs, með
hliðsjón af framkomnum upplýsing-
um að leita eftir samkomulagi við
rekstaraðila skólans um það, að skip-
aður verði fjárhaldsmaður af hálfu
bæjarins yfir rekstur leikskólans og
þeim tilkynnt, að ekki komi til greina
endurnýjun samnings þegar hann
rennur út 31. júlí nk. Að öðrum kosti
verði þeim falið að tilkynna rekstrar-
aðilum ákvörðun bæjarráðs um að
rifta þegar samningi um rekstur skól-
ans á grundvelli 18. gr. hans, vegna
vanefnda rekstraraðila.
Rekstrarform Sundlaug-
ar Kópavogs óbreytt
ÍTK hefur ákveðið að halda rekstr-
arformi Sundlaugar Kópavogs
óbreyttu en fyrir hefur legið beiðni
fyrir líkamsræktarfélaginu Rækt um
að fá sundlaugina á leigu. Ármann
Kr. Ólafsson tekur undir bókun ÍTK
á fundi bæjarráðs og áréttar að hon-
um finnist einkennilegt að bæjarfull-
trúar Samfylkingarinnar samþykki lið-
inn og jafnframt setji bæjarlögmann i
vinnu við að kanna, hvort verkið sé
útboðsskylt, þegar það liggur fyrir að
verkið verði ekki boðið út. Þar með
hljóti Samfylkingin ennþá að vera
að velta því fyrir sér að gera slíkt.
Guðríður Arnardóttir og Hafsteinn
Karlsson óskuðu bókað: “Sitt sýnist
hverjum. Í bæjarráði, bæjarstjórn og
ÍTK, hafa fulltrúar Samfylkingarinn-
ar ítrekað bókað að þeir séu á móti
því að færa rekstur sundlaugarinnar
til einkaaðila. Guðríður Arnardótt-
ir Hafsteinn Kalsson.” Ármann Kr.
Ólafsson óskaði bókað: “Eins og svo
oft áður talar Samfylkingin tungum
tveim.” Bæjarfulltrúar Samfylkingar-
innar óskuðu bókað: “Samfylkingin
hefur talað einum rómi í þessu máli,
eins og lesa má í fundargerðum bæj-
arins.”
Óperuhúsið
útboðsskylt?
Fulltrúar Samfylkingarinnar í bæj-
arráði hafa óskað eftir umsögn bæj-
arlögmanns um, hvort að arkitekta-
samkeppnin varðandi Óperuhúsið
sé útboðsskyld, þar sem Kópavogs-
bær efnir til samkeppninnar og greið-
ir fyrir hana.
Styrkur vegna
Evrópukeppni HK
Handknattleiksdeild HK hefur ósk-
að eftir styrk vegna tveggja leikja í
Evrópukeppninni gegn danska lið-
inu FCK-Handbold. Bæjarráð sam-
þykkti að veita styrk að upphæð
700.000 krónur. Frá aðalstjórn HK
barst erindi þar sem óskað er eftir
þ ví að félagið fái skipaðan fulltrúa
í dómnefnd vegna framkvæmda í
Fagralundi við Furugrund. Bæjarráð
lítur jákvætt á málið og óskar eftir
tilnefningu frá félaginu.
Skúr fyrir skíðagöngu-
fólk í Bláfjöllum
Á fundi skipulagsnefndar nýverið
var lagt fram erindi Önnu Kristínar
Sigurpálsdóttur fyrir hönd Félags
áhugafólks um skíðagöngu. Í erind-
inu felst að óskað er eftir stöðuleyfi
fyrir gám á skíðasvæðinu í Bláfjöll-
um. Leyfið yrði tímabundið frá
nóvember 2007 til júní 2008. Með
erindinu fylgdi loftmynd af svæð-
inu. Skipulagsnefnd samþykkti fyrir
sitt leyti tímabundið stöðuleyfi fyrir
gámaskúr fram til 15. júní 2008 og
vísaði erindinu til afgreiðslu bygging-
arnefndar og umsagnar tæknideildar
vegna leiðslu rafmagns í gáminn.
2 Kópavogsblaðið
Útgefandi: Borgarblöð ehf.
Vesturgötu 15 • 101 Reykjavík
Sími: 511 1188 • 561 1594
Fax: 561 1594
Ritstjóri: Geir A. Guðsteinsson, Sími 564 5933, 898 5933
Netfang: geirgudsteinsson@simnet.is
Auglýsingasími: 511 1188 • 561 1594 • 895 8298
Netfang: borgarblod@simnet.is
Framkvæmda- og auglýsingastjóri: Kristján Jóhannsson
Umbrot: Valur Kristjánsson
Prentun: Landsprent ehf.
Dreifing: Íslandspóstur
12. tbl. 3. árgangur
Kópavogsblaðinu er dreift frítt í öll hús í Kópavogi.
S T U T T A R
B Æ J A R F R É T T I R
F orsætisráðherra fór þess á leit við þjóðina nýlega að fresta hús-næðiskaupum til þess að ná niður verðbólgunni. Þetta er vel meint en virkar því miður illa, rétt eins og að biðja fólk um að
halda niðri í sér andanum til þess að spara súrefni. Hins vegar geta
hvatningarorð ráðherra ásamt vaxtahækkunum og íþyngjandi lánaskil-
yrðum bankanna orðið til þess að húsnæðismarkaðurinn frjósi. Ef það
gerist er hætt við verðfalli á eignum og gjaldþrotum sumra heimila
í landinu. Ef það gerist að húsnæðismarkaðurinn frýs eða hrinur þá
mun það vissulega hafa áhrif til lækkunar á verðbólgu, en það er allt
of dýru verði keypt. Fórnarlömbin verða meðal annarra íbúðareigend-
ur sem eru með þunga greiðslubyrði, hafa veðsett eignir sínar hátt og
geta ekki losað sig við þær eða þá aðeins með miklu tapi.
Jólastressið
N ú heyrir maður stundum að verið sé að vara við jólastressinu en spyr sig um leið hvaða fólk það er sem mest talar um það. Líklega sérfræðingar á sviðinu og umfjöllunin þá dulin auglýsing
fyrir starfsemi þeirra en umfjöllunin um stressið eykur það frekar en
minnkar það. Ef allir eru stressaðir en ekki við er það kannski merki
um að við séum ekki að standa okkur í stykkinu? Þarf þá ekki að baka
fleiri sortir, kaupa stærri gjafir og fara aðra umferð yfir gólfin? Sjálfur
finn ég engan skilgreinanlegan mun á jólastressi og stressi á öðrum árs-
tímum. Líklega væri ég stressaðri ef ég ætti ekki fyrir þeim jólagjöfum
sem mig langar að gefa eða get ekki keypt þann mat sem mig langar
að borða með minni fjölskyldu svo samkvæmt því eru þeir efnaminni
stressaðri en þeir efnameiri. Það er líklega gott dæmi um stress að
mega ekki missa af opnun leikfangabúðar og leggja meira að segja á sig
tveggja tíma bið til að komast þar inn og kaupa svo þar ýmislegt sem
ekki er víst að nokkur not séu fyrir. Kannski er gott fyrir þá sem eru að
fara “á límingunum” að hugleiða tilgang jólanna, fæðingu frelsarans og
raula kannski með eitt jólalag eða jólasálm í jólaundirbúningnum eða
bara í bílnum þegar ekið er milli verslana. Það kemur á margan hátt ró
á hugann.
Gleðileg jól!
J ólin nálgast. Fyrir um tveimum öldum síðan bjó á Íslandi skáld sem mörgum hugnaðist ekki á þeim tíma. Þetta var Bólu-Hjálmar sem hefur ort mörg af ógleymanlegustu kvæðum og kviðlingum sem út
hafa komið á íslenska tungu. Um jólin orti Bólu-Hjálmar:
Lífdaga því lækkar sólin
lúrast vinnukraftur minn;
ekkert til að éta um jólin
ég á nú í þetta sinn.
Öll eru slitin iðjutólin,
ellin hrukkar gráa kinn;
Færa mig í feigðar kjólinn
forlög manna skilgetin.
Í allsnægtum nútímans á Íslandi þurfa fáir að hugsa svona, allt er til
alls enda best að búa á Íslandi af öllum þjóðum samkvæmt alþjóðlegri
könnum.
KÓPAVOGSBLAÐIÐ óskar öllum lesendum sínum gleðilegra jóla, árs
og friðar.
Geir A. Guðsteinsson
Haldið niðri í
ykkur andanum
DESEMBER 2007
HERTOCBARÁTTATILSÍÐASTARÐSORÐASKAKÍBAKGRUNNAFÞREYINGBARÁTTAÁSKORUN
SKEMMTILEGTÞOSKANDIORÐSNILLDEINBEITINGTAKMARKALAUSIRMÖGULEIKARSTUTT
YFIRLITORÐASKAKIERLEYFTAÐRÆNAORÐIFRÁÖÐRUMLEIKMANNITAKMARKIÐERAÐSAF
NA6RÐUMOGVINNURSÁSPILIÐSEMNÆRÞVÍAKI.ENGINNERÖRUGGURMEÐSITTFYRRENUP
PERSTAÐIÐORÐANDSTÆÐINGSMÁGERAAÐSÍNUMEÐÞVÍAÐBÆTAVIÐSTAFEÐASTÖFUMO
GUMRAÐAÞEIM.ÞEGARORÐUMFJÖLGARAUKASTMÖGULEIKARNIROGSTAÐAÞÁTTTAKEN
DAERFLJÓTAÐBREYTASTHEILSPILAUMFERÐÍORÐASKAKIGETURTEKIÐINNANVIÐHÁLFTÍ
MAÞEGARSPILAÐERMEÐKLUKKUKEPPNINSTENDURTILSÍÐASTAORÐSSPILAREGLURINNIH
ALDSPILABRETTI126GLÆRARSTAFATÖFLUR(125BÓKSTAFIROG1JÓKER),14HVÍTARPLASTS
KINNURFLAUELSPOKIKLUKKA(BATTERÍFYLGJA)OGÞESSARSPILAREGLURSIGURVEGARISÁ
SEMFYRSTURMYNDARSEXRÐFJÖLDIKEPPENDAKJÖRIÐFYRIRKEPPENDUREÐA4KEPPNISLI
ÐEINNIGGETAKEPPENDURVERIÐ23EÐA5ALDURÞÁTTAKENDAHENTARBEST10ÁRAOGELD
RIENMARGIRKNÁIRYNGRIÞÁTTAKENDURHAFASTAÐIÐSIGMEÐSÓMASTILLTUPPFYRIRLEIK
SETJIÐSPILABRETTIÐÁORÐIÐMILLIÞÁTTAKENDAÍLEIKNUMLEGGIÐPLASTSKINNURNARO
GSTAFAPOKANNTILHLIÐAREINNÞÁTTAKANDIDREGUR5STAFIÚRPOKANUMOGLEGGURÞ
ÁÁBORÐIÐMEÐBÓKSTAFSHLIÐUPPLEIKMAÐUR12OSFRVÁMYNDHVERBYRJAR?HVERKEP
PANDIEÐAKEPPNISLIÐDREGUREINNSTAFUPPÚRPOKANUMOGSETURÁBORÐIÐÍVIÐBÓTVI
ÐÞÁSEMFYRIRERUSÁSEMDREGURSTAFFREMSTANÍTAFRÓFINUHANNBYRJAREFFJÓRIRKE
PPENDURDRAGADDLOOGTBYRJARSÁSEMDRÓDSEMERNÆSTAFYRSTASTAFSTAFRÓFSIN
SEFTVEIRDRAGASAMASTAFFREMSTANÍTAFRÓFINUDRAGAÞEIRAFTURÞARTILANNARDRE
GURFREMRISTASÁÞEIRRASEMDREGURFREMRITAFHANNLEIKSPILIÐGENGURSÓLARSINNI
SÞANNIGAÐÞEGAREINNHEFURLOKIÐLEIKLEIKURNÆSTSÁSEMERHONUMÁVINSTRHÖND
ATHALLIRSTAFIRSEMDREGNIRHAFAVERIÐTILÞESSAEIGAAÐLIGGJAÁSPILABRETTINU3LEI
KURINNHAFINNHVERLEIKMAÐUR(EÐALIÐ)DREGURNÚHVERSINNTAFGHEFURHANNFYRI
RSIGGEYMIRANNÍHENDINNIOGSÝNIRÖÐRUMLEIKMÖNNUMHANNEKKISÁDRÓBYRJUNA
RRÉTTINNHANNÁLEIKNÆSTGERIRSÁSEMERHONUMÁVINSTRIÖNDOSFRVALGENGTERAÐ
STILLAKLUKKUNAÁEINAMÍNÚTUFYRIRHVERNLEIKEINNIGERHÆGTAÐ
MÁLEIKLEGGURTAFINNSINNÁBORÐIÐOGREYNIRAÐRAÐASAMANORÐIEKKIÞARFAÐNOT
AEIGINSTAFHELDURMÁMYNDAORÐÚRHVAÐASTÖFUMSEMERÁBORÐTAKMÖRKUNGILTO
RÐVERÐURAÐHAFAMINNST3STAFI.EIGINNÖFNOGKAMMSTAFANIRRUEKKIGILDEKKIERN
ÆGILEGTAÐBÆTAVIÐEINUMSTAFAFTANVIÐTILAÐRÆNAORÐITDAÐBÆTAIVIÐBARNSVOR
JÓLASPILIÐ 2007 ER KOMIÐ
Orðaskak er margverðlaunað metsöluspil sem heldur
þátttakendum á nálum allan tímann.
www.ordaskak.is