Kópavogsblaðið - 01.12.2007, Side 23
“Soli Deo Gloria - Guði einum
dýrð” voru einkunnarorð Tón-
listardaga Dómkirkjunnar sem
haldnir voru nýverið. Eins og
jafnan áður voru haldnir tónleik-
ar þar sem frumflutt var tónverk
sem Dómkórinn hefur pantað.
Að þessu sinni var það tónverk-
ið “Missa brevis” eftir Þóru Mart-
einsdóttur, dóttur Marteins H.
Friðrikssonar dómorganista og
Þórunnar Björnsdóttur, stjórn-
anda Skólakórs Kársness. Verkið
er samið í hefðbundnu messu-
formi en þó vantar í það trúar-
játninguna.
Þóra stundaði nám í píanóleik
í Tónlistaskólanum í Kópavogi
og Reykjavík og söng í mörg ár í
Skólakór Kársness undir stjórn
móður sinnar og síðar í Hamra-
hlíðarkórnum. Þóra lauk námi í
tónfræðideild Tónlistaskólans í Reykjavík og meistaranámi frá
Tónlistarskólanum í Gautaborg.
Þóra er nú að kenna tónmennt
við Vatnsendaskóla í Kópavogi
og tónfræði við Suzuki-skólann í
Reykjavík.
- Hvenær kviknaði hugmyndin að
“Missa brevis?
“Kveikjan að verkinu var að hann
pabbi minn kom og bað mig um
að semja fyrir Tónlistardaga 2007.
Eftir að hafa lagt höfuðið í bleyti
með hentugan texta þá fannst mér
sniðugast að semja messu. Það tók
nú ekki langan tíma að velja þann
texta enda mjög fallegur texti þar
á ferð. Síðan tóku við allmargar
tilraunir við að koma þessu saman
og var ég meira og minna búin í
maímánuði síðastliðnum.”
- Hvernig stund var það að sitja
í Dómkirkjunni og hlusta á Dóm-
kórinn undir stjórn föður þíns flytja
tónverkið?
“Það var dásamleg stund að
sitja í Dómkirkjunni og hlusta á
þennan góða kór frumflytja eftir
mig með svona miklum glæsibrag.
Ég er alin upp í kringum þennan
kór og marga kórmeðlimi hef ég
þekkt eins lengi og ég man eftir
mér. Þótti einnig mjög vænt um
að pabbi minn væri að stjórna og
hún ástkær móðir mín að syngja.
Næsta verk á dagskrá hjá mér er
sönglag fyrir kvennakóramót á
Höfn í Hornafirði í vor og svo sjá-
um við bara til hvað tíminn leiðir
í ljós,” segir Þóra Marteinsdóttir.
23KópavogsblaðiðDESEMBER 2007
Þóra Marteinsdóttir, tónmenntakennari við Vatnsendaskóla, með föð-
ur sínum, Marteini H. Friðrikssyni eftir flutninginn á “Missa brevis.”
Samdi tónverk fyrir kór
sem faðirinn stjórnaði
C M Y CM MY CY CMY K
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Hamraborg 6 A · Kópavogi · Sími 570 0430 · Fax 570 0431 · www.natkop.is
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Natural History Museum of Kópavogur
Sýningarsalir opnir:
Mánudaga – fimmtudaga kl. 10–20
Föstudaga kl. 11–17
Laugardaga og sunnudaga kl. 13–17
Sýningarsalir Fræðsla Rannsóknir Ráðgjöf
Hópum veitt leiðsögn eftir samkomulagi
Pantanir í síma 570 0430
Ókeypis aðgangur
Kópavogsbúar
í útrás á Spáni
Þó gott sé að búa í Kópavogi
leggja einnig margir Kópavogs-
búar land undir fót og setjast að
erlendis. Unnur S. Aradóttir og
Árni Stefánsson, sem var þekkt-
ur handboltaþjálfari hérlendis,
m.a. hjá HK, bjuggu í Lindahverf-
inu en fóru af landi brott fyrir
um ári síðan og settust að á Tor-
revieja-svæðinu á Spáni. Þau eru
með í útleigu þar 7 glæsilegar
íbúðir á frábærum stað á Tor-
revieja-svæðinu.
Þau Unnur og Árni segja að
þarna sé allt til alls og tilvalið fyrir
fjölskyldur að fara í gott sumarfrí
á þessum slóðum. Ferðaskrifstof-
ur eru með áætlanir til Alicante
en frá flugvellinum þar er aðeins
um 35 mínútna akstur frá íbúða-
hótelinu. Þessar ferðir renna út
eins og heitar lummur og því borg-
ar sig að bóka sem fyrst. Unnur
og Árni eru m.a. með frábærar
íbúðir í La Rotonda íbúðahótel-
inu í Cabo Roig-hverfinu sem er
um 5 km frá miðbæ Torrevieja.
Cabo Roig er skemmtilegt hverfi
þar sem fjöldi veitingastaða er í
göngufæri frá hótelinu og strönd-
in er einnig rétt hjá.
La Rotonda
La Rotonda íbúðahótelið er stað-
sett í hverfi sem heitir Cabo Roig í
Aqua Marina rétt sunnan við borg-
ina Torrevieja. Íbúðirnar eru með
þvottavél, sjónvarpi, DVD-spilara
og öllum nauðsynlegum húsbún-
aði. Loftkæling er í báðum her-
bergjunum og í stofunni. Á neðstu
hæð er móttaka sem er opin allan
sólarhringinn. Þar er einnig veit-
ingastaður og bar við sundlaugina
auk þess sem á neðstu hæðinni er
kjörbúð, kaffihús, bakarí, búðir
með smávöru og ýmis önnur þjón-
usta. Cabo Roig er fallegt hverfi
sem jafnan er talið eitt best stað-
setta hverfi Costa Blanca strand-
arinnar. Costa Blanca ströndin er
sú stærsta sem liggur að Spáni.