Kópavogsblaðið - 01.12.2007, Síða 24
24 Kópavogsblaðið DESEMBER 2007
Nemendur 10. bekkjar Smáraskóla fyrstu
félagsmenn unglingadeildar Ferðafélags Íslands
Í haust sendi menntamála-
ráðuneytið út bréf þess efnis
að skólar megi ekki leita til for-
eldra um greiðslur fyrir ferðir
nemenda sem skipulagðar eru
af skólum. Smáraskóli hefur frá
upphafi lagt áherslu á útivist
og ferðalög, þar á meðal fara
elstu bekkirnir í hálendisferð-
ir, ganga Laugaveginn og hjóla
Fjallabaksleiðir. Til að geta
haldið áfram með þennan þátt í
skólastarfinu greip stjórn Smára-
skóla til þess ráðs að finna
stuðningsaðila.
Ferðafélag Íslands brást fljótt
við, og í tilefni af 80 ára afmæli
félagsins ákvað stjórn þess að
styrkja Smáraskóla til að gera
þessar hálendisferðir áfram
mögulegar. Ferðafélagið ákvað
þennan dag að opna fyrir aðild
fyrir unglinga og voru nemendur
í 10. bekk Smáraskóla fyrstu full-
trúar þess hóps og færði stjórn
FÍ þeim að gjöf ókeypis félagskort
ásamt sérmerktum flíspeysum á
hvert og eitt þeirra ásamt GPS-
staðsetningartæki talstöð.
Sigurlín Sveinbjarnardóttir,
skólastjóri Smáraskóla, sagði af
þessu tilefni óska Ferðafélaginu
til hamingju með þann áfanga
að opna félagsaðildina fyrir ung-
mennum en um leið þakka fyrir
hönd Smáraskóla góðar gjafir og
að nemendur Smáraskóla nytu
þess heiðurs að verða fyrstu
félagarnir í ungmennadeild FÍ.
“Smáraskóli skapaði strax
við stofnun skólans, árið 1994,
þá stefnu að nemendur skyldu
njóta sem mestrar útivistar og
að þeim yrði kynnt ferðalög og
færni í tengslum við útilegur.
Það er hún Kristín Einarsdóttir,
kennari, stundum kölluð ,,Fjalla-
Stína” sem á mestan heiður af
þessari framkvæmd. Markmið
með þessu verkefni er að styrkja
félagslega stöðu nemenda, auka
sjálfstraust þeirra auk þess að
kynna þeim náttúru landsins og
gera þau færari í að stunda marg-
víslega útivist. Starfið hefur far-
ið þannig fram að hver einasti
árgangur skólans fer í ferðalag
þar sem gist er eina nótt eða
fleiri og breytileg og stigvaxandi
verkefni fylgja hverju ferðalagi.
Það byrjar með að 6 ára nemend-
ur sofa í skólanum og læra að
halda kvöldvöku og passa svefn-
pokann og dótið sitt. Svo er farið
í svokallaðar ,,Hóla- og fjallaferð-
ir” en þá ganga allir nemendur
skólans á hóla og fjöll í nágrenni
höfuðborgarsvæðisins og alltaf
hærri og hærri eftir því sem þau
stækka sjálf.
Áttundi bekkur gengur síð-
an,,Laugaveginn” frá Landmanna-
laugum í Þórsmörk. Fjögurra
daga ganga sem krefst ekki síð-
ur andlegs en líkamlegs styrks.
Í þessari ferð læra börnin ómet-
anlega lexíu um náttúru Íslands,
þau vita eftir þetta að slíkar ferð-
ir eru á þeirra færi og sjálfstraust
þeirra við slíkar aðstæður eflist.
Ekki síst eru svona ferðir vel falln-
ar til að styrkja félagsvitund hóps-
ins eða eins og þau segja sjálf
,,við verðum betri vinir”.
Níundi bekkur hjólar 100 km.
leið frá Landmannahelli, austur
Fjallabak nyrðra og að Eldvatni.
Á þessari leið uppgötva börnin
að hálendið getur boðið upp á
afþreyingu sem er skemmtileg
og ögrandi. Þessi leið er ,,alvöru”
hjólaleið og stolt þeirra er mikið
eftir að hjóla upp erfiðar brekk-
ur og yfir árnar. Tíundi bekkur
hjólar 70 km. frá Laufafelli á Land-
mannaafrétti og niður á Einhyrn-
ingsflatir. Í Aðalnámskrá er víða
drepið á nauðsyn útvistar og
útveru og því ekki erfitt að tengja
markmið ferðaverkefnis Smára-
skóla við hana,” sagði Sigurlín
Sveinbjarnardóttir skólastjóri í
Norræna húsinu.
Nemendur Smáraskóla í Norræna húsinu ásamt skólastjóra og kennurum á 80 ára afmæli Ferðafélags
Íslands 27. nóvember sl., allir klæddir sérmerktum flíspeysum sem var gjöf frá FÍ.
vesturgÖtu 12
opiÐ 14-18 mÁn.-lau.
www.nornabudin.is
galdrar Í
neytendapakkningum,
spÁspil, rÚnir og
Óvenjuleg
gjafavara.
n rnabúðin