Feykir - 29.05.2002, Qupperneq 1
rafsjá hf
RAFVERKTAKAR
SÉRVERSLUN
MEÐ RAFTÆKI
SÆMUNDARGÖTU1
SAUÐÁRKRÓKI
Samkeppnisráð um Steinullina
Setur Byko og Húsa-
smiðjunni skilyrði
Frambjóðendur og stuðningsfólk Vinstri - grænna í sigurvímu á kosningavökunni þegar
úrslitin lágu fyrir aðfaranótt sunnudagsins.
Vinstri - grænir ótvíræðir
sigurvegarar kosninganna
Samkeppnisráð hefur fjall-
að um og kveðið upp úr-
skurð um kaup Byko Húsa-
smiðjunnar og Kaupfélags
Skagfirðinga á hlutum í
Steinullarverksmiðjunni hf.
Umrædd kaup eru samruni
í skilningi samkeppnislaga
og voru þau rannsökuð með
hliðsjón af því. Mat sam-
keppnisráðs er að ástæða sé
til að grípa til íhlutunar
vegna samrunans. Telji sam-
keppnisráð að samruni fyr-
irtækja hindri virka sam-
keppni getur ráðið ógilt
samrunann eða sett honum
skilyrði. Viðræður á milli
fyrirtækjanna sem að sam-
runanum standa og sam-
keppnisyfirvalda hafa leitt
til þess að málsaðilar eru
reiðubúnir að fallast á tiltek-
in skilyrði vegna kaupanna.
Að uppfylltum umræddum
skilyrðum telur samkeppn-
isráð að skaðlegum áhrifum
samrunans verði eytt.
Skilyrði vegna samrunans
eru efnislega eftirfarandi:
Hvorki stjómannenn, starfs-
menn eða eigendur að meira en
1% lilut í Byko annars vegar
eða Húsasmiðjunni hins veg-
ar, dótturfélögum þeirra eða
fyrirtækjum sem þau hafa
virk yfirráð yfir, né nánir
ættingjar ffamangreindra aðila,
sitji samtímis í stjóm eða
varastjórn Steinullarverksmiðj-
unnar. Öðrunr viðskiptavinum
Steinullarverksmiðjunnar en
Byko og Húsasmiðjunni er
tryggður sarni aðgangur að
framleiðsluvörum fyrirtækisins
og eigendunum og að þeir
njóti ekki síðri viðskiptakjara
en framangreind fyrirtæki að
teknu tilliti til umfangs við-
skiptanna.
Þar sem eigendur verk-
smiðjunnar, þ.m.t. stjórnar-
menn, eru jaínframt keppinaut-
ar annarra viðskiptavina er
sett skilyrði sem tryggir að
þeirn verði ekki veittar upplýs-
ingar um viðskipti og/eða við-
skiptakjör einstakra viðskipta-
vina. Að mati samkeppnisráðs
munu framangreind skilyrði
auk annarra sem nánar eru til-
greind í ákvörðun ráðsins
nægja til að eyða þeim skað-
legu samkeppnislegu áhrifúm
sem kaupin hefðu annars haft i
för með sér.
Skilyrðin eru sett sökum
þess að Samkeppnisráð komst
að þeirri niðurstöðu að kaupin
styrki markaðsyfirráð Steinull-
arverksmiðjunnar við fram-
leiðslu og heildsöludreifingu á
steinull og skyldum vörum
hér á landi. Þá telur samkeppn-
isráð að sameiginleg eignar-
aðild Byko og Húsasmiðj-
unnar að Steinullarverksmiðj-
unni sé til þess fallin að tak-
marka samkeppni á milli versl-
unarfyrirtækjanna tveggja.
Sameiginleg aðkoma keppi-
nautanna, Byko og Húsasmiðj-
unnar, að rekstri Steinullar-
verksmiðjunnar gæti leitt til
samráðs eða samvinnu um
verð og aðrar samkeppnis-
hömlur.
„Við erum hæstánægð með
þennan árangur. Við settum
ffarn mjög skýran valkost í
þessari kosningabaráttu. Þeir
voru margir í okkar hópi sem
lögðu á sig nrikla vinna og ég
held við höfúm sýnt mikla fag-
mennsku, en umfram allt vor-
um við heiðarleg í baráttunni.
Fórum ekki í gömlu aðferðir
stjómmálaflokkanna, maður á
mann aðferðina. Létum fólk al-
gjörlega í ffiði og vorum ekki
með fólk inni í kjördeildunum
til að fylgjast með hveijir voru
að kjósa”, sagði Ársæll Guð-
mundsson oddviti Vistrihreyf-
ingarinnar græns ffamboðs
sem óumdeilanlega er sigur-
vegari kosninganna í Skaga-
firði. VG tók greinilega til sín
um helming fylgis S-listans ffá
síðustu kosningum og einnig
talsvert ffá B-lista og D-lista.
Vinstri-grænir eru því
komnir í oddaaðstöðu í Skaga-
firði og liklegt að þeir muni
mynda meirihluta með annað-
hvort Framsóknar- eða Sjálf-
stæðisflokki. Umleitanir hófust
strax á stmnudag með viðræð-
um við Sjálfstæðisflokk og
standa þær viðræður enn. Aðil-
ar ætluðu að hittast á fundi í
gærkveldi en ekki var útlit fyr-
ir að meirihluti yrði myndaður
á þeim fúndi.
Ársæll Guðmundsson odd-
viti VG gaf það strax út að
hann hefði hug á sveitarstjóra-
starfinu. Sýnt er að Sjálfstæð-
ismenn muni einnig halda stíft
ffam sínum kantidat Páli
Brynjarssyni. Aðspurður sagði
Ársæll um það hvort hann
myndi sækja það fast að verða
sveitarstjóri: „Eðli málsins
samkvæmt er það margt sem
þarf að ræða þegar tveir aðilar
leita eftir sameinginlegum mál-
efnagrundvelli. Þetta er einn
heildarpakki og ráðning sveit-
arstjóra er þar á meðal”, sagði
Ársæll
—ICTch^iH chíDI— J Jífn\bílaverkstæði*°o->
Aðalgötu 24 Skr. sími 453 5519, fax 453 6019 ÆJLCJLM, sími .453 5141 '
• ALMENN RAFTÆKJAÞJÓNUSTA Sæmunéargala Ib 550 Sauðárkrókur Fax:453 6140
• FRYSTI- OG KÆLIÞJÓNUSTA IfcBílaviðgerðir & Hjólbarðaviðgerðir
• BÍLA- OG SKIPARAFMAGN • VÉLA- OG VERKFÆRAÞJÓNUSTA # Réttingar Sprautun