Feykir - 04.10.2006, Síða 1
'ÍltiumTcfræna grundu.
Fé rekið til réttar ÍFIjótum I haustbliðunni á dögunum.
Mynd: ÖÞ
50 manns starfa við jarðgangnagerð á Siglufirði_
Héðinsfíarðargöng
orðin lOOm long
Unnið við Héðinsfjarðargöng Siglufjarðar megin i siðustu viku.
Framkvæmdum við Héðinsfjarðargöng miðar sam-
kvæmt áætlun. Búið er að sprengja fyrstu 100 metrana
Sigufjarðarmegin en um 50 manns starfa nú við
gangnagerðina.
Það er verktakafyrirtækið sem annast framkvæmdina.
Háfell í samvinnu við tékkn- Magnús Jónsson, starfsmaður
eska fyrirtækið Metro-stav Háfells og verkefnisstjóri
Héðinsíjarðarganga, segir
vinnu við göngin sjálf ganga
eins og gert var ráð fyrir en
mikil úrkoma í haust hefur
seinkað vinnu við vegagerð.
Ekki er um heilborun að
ræða heldur borað og
sprengt, líkt og gert var t.d. í
Hvalfjarðargöngum.
Unnið er á tvískiptum 12
tíma vöktum 6 vikunnar.
Starfsmenn Háfells dvelja
á Hótel Höfn en fyrirtækið
keypti hótelið oggerði við það.
Upp úr miðjum mánuðinum
hefjast framkvæmdir við
göngin Ólat'sfjarðarmeginn
og er gert ráð fyrir að 16
manns starfi við verkið þar.
Göngur og réttir
Minna um útigangs
fé en oft áður
Minna virðist vera um að
útigangsfé hafi komið af
fjalli í haust en oft áður,
að sögn smalamanna sem
blaðið hefur hafttal af. í
síðasta Feyki var sagt frá
baráttu við útigangshrúta í
Laxárdalsfjöllum.
Þetta eru ekki einu
útigangskindurnar sem Skag-
firðingar hafa heimt af fjalli í
haust. Ingimar Jóhannsson
á Sauðárlcróld félck þrjár
útigengnar í fyrstu göngum.
Þar var um að ræða tvennt
veturgamalt, hrút og gimbur
samstætt og tvævetlu. Gimbrin
og tvævetla komu báðar með
ómerkinga með sér en voru
frekar rýar og lömbin í smærra
lagi. Ingimar sagði að hann
hefði verið búinn að leita
talsvert af þessum kindum í
fyrra haust og halda uppi fyrir-
spurnum án árangurs.
Þá fengu ábúendur á Glæsi-
bæ í Sléttuhlíð tvennt vetur-
gamalt, útigengið, hrút og
gimbur. Þau voru rígvæn og
virtust eldd hafa liðið skort í
fyrravetur. Einnig félck Bjarni
Bragason á Halldórsstöðum
þriggja vetra gamla á með
veturgamla með sér. Þær komu
í Bólstaðahlíðarrétt og voru vel
framgengnar að sögn eiganda.
Breytingar á flugþjónustu á Sauðárkrók
Ernir taka flugið
Flugfélagið Ernir ehf mun
taka að sér áætlunarflug
áflugleiðinni Reykjavík
Sauðárkrókur Reykjavík frá
og með næstu áramótum.
Flogið verður að lágmarki
fimm sinnum í viku og
verða 19 sæta skrúfuþotur
með jafnþrýstibúnaði nýttar
áflugleiðinni.
Landsflug hefur séð um flug
til Sauðárkróks undanfarin ár
en félagið er að hætta starfssemi
hérlendis. Ríkissjóður greiðir
árlega tæplega 29 milljónir
króna með flugleiðinni
Sauðárkrókur - Reykjavík.
Samkvæmt útboðsskil-
málum Ríkiskaupa er lág-
marksferðafjöldi fimm ferðir
vikulega, flogið verður á
morgnana og síðdegis líkt
og er nú. Að sögn Harðar
Guðmundssonar, forstjóra
og eiganda Ernis er ráðgert
að ferðafjöldi verði þó sex til
sjö ferðir í viku eftir eftirspurn
og árstíðasveiflum. Einungis
verður urn beint tlug að ræða.
Skrúfuþota af gerðinni
Jetstream, með jafnþrýsti-
búnaði, verður oftast notuð til
Sauðárkróks. Flugvélin hefur
rými fyrir 19 farþega. Lofthæð
í farþegarými er um 180cnr
svo flestir ganga uppréttir
um borð að sætum sínum.
Flug\'élin er búin salerni sem er
nýlunda í flug\'élum að þeirri
stærðargráðu sem mest hafa
verið notaðar hér undanfarin
ár. Ekki er gert ráð fyrir að
breytingar verði á afgreiðslu
eða bókunarfyrirkomulagi
fyrst um sinn.
Almenn raftækjaþjónusta
- tölvu- og rafeindaþjónusta
- frysti- og kæliþjónusta
- bíla- og skiparafmagn
- véla- og verkfæraþjónusta
—IClfengtll ehj3—
Aðalgötu 24 550 Sauðárkrókur Sími 453 5519 Fax 453 6019
Bílaviðgerðir
hjólbarðaviðgerðir
réttingar og sprautun
Æl
bílaverkstæði
Sæmundargötu lb 550 Sauöárkrókur Sími 453 5141