Iðjuþjálfinn - 01.06.1998, Qupperneq 28
Björg Þórðardóttir
Smntök heilbrigðisstétta:
Elín Ebba Asmundsdóttir
Hildur Þráinsdóttir
Öldrunaráð íslands:
Rósa Hauksdóttir
Ingibjörg S. Ásgeirsdóttir
WFOT:
Hope Knútsson, aðalfulltrúi
Lilja Ingvarsson, fyrsti varafulltrúi
Sigrún Garðarsdóttir, annar varafulltrúi
COTEC:
Hope Knútsson
Kristjana Fenger
Endurskoðendur:
Anna Guðrún Arnadóttir
Lilja Ingvarsson
Úthlutunarnefnd fræðslusjóðs:
Elín Ebba Ásmundsdóttir
Snæfríður Þóra Egilson
Valrós Sigurbjörnsdóttir
HK
FRÆÐSLUNEFND IÞÍ AUGLÝSIR
AMPS námskeið í haust
Námskeið um Assessment of Motor and
Process Skills (AMPS) verður haldið í Reykja-
vík dagana 5.-9. október 1998 í samvinnu við
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands.
Námskeiðið fer fram á ensku. Kennarar verða
iðjuþjálfarnir Anne G. Fisher, prófessor við
háskólann í Colorado og Birgitta Bernspáng,
lektor við háskólann í Umeá.
í námskeiðinu felst kynning á matstækinu og
þjálfun í að meta færni einstaklinga og nota
skráningarkerfið.
Námskeiðið stendur yfir frá kl. 8:30 til 17:30 alla
dagana. Morgun- og síðdegiskaffi er innifalið
en ekki hádegisverður. Námskeiðsgjald verður
á bilinu 44-48 þúsund krónur.
Lesefni til undirbúnings fyrir námskeiðið
verður sent út til þátttakenda 2-3 vikum fyrir
námskeiðið. Auk handbókar um AMPS matið,
fá þátttakendur skráningarkerfi á tölvutæku
formi fyrir PC eða Mac tölvu. Að loknu nám-
skeiði þurfa þátttakendur að meta færni tíu
einstaklinga og skila tilheyrandi gögnum til að
öðlast næga kunnáttu í að nota matið. Þessi
gögn þarf að senda til Bandaríkjanna þar sem
unnið verður úr þeim og endanlegt tölvuskrán-
ingarkerfi hannað fyrir sérhvern iðjuþjálfa.
Skráningarkerfið er aðlagað að hverjum og
einum iðjuþjálfa, þar sem tekið er mið af til-
hneigingu hans til að ofmeta eða vanmeta við
fyrirgjöf. Það er síðan sent tilbaka ásamt við-
urkenningu um að viðkomandi iðjuþjálfi hafi
lokið námskeiðinu.
Skráning á námskeiðið er þegar hafin hjá Endurmenntun HÍ, hámarksfjöldi þáttakenda er 35.
Frestur til að staðfesta skráningu og greiða námskeiðsgjald er 15. september en þá veröur lesefni sent út.
Fá matstæki eru betur sniðin að hugmyndafræði iðjuþjálfunar.
Láttu þig ekki vanta, þetta tækifæri kemur ekki aftur í bráð!
28 IÐJUÞJÁLFINN 1/98