Iðjuþjálfinn - 01.06.1998, Page 29
fræðslusjóður iðjuþjálfafélags íslands
Úthlutað ífyrsta sinn
Að frumkvæði stjórnar IÞÍ var
samþykkt á síðasta aðalfundi að
stofna fræðslusjóð. Markmið
sjóðsins er að efla framgang iðjuþjálfun-
ar á Islandi og styrkja innra starf félags-
ins. Skipuð var úthlutunarnefnd og í
henni eru Elín Ebba Ásmundsdóttir,
Snæfríður Þóra Egilson og Valrós Sigur-
björnsdóttir.
Fréttir frá
VINNÍS
Aðalfundur VINNÍS, en svo
nefnist Vinnuvistfræðifélag
íslands 1998 var haldinn í
húsakynnum Plastprents 31. mars
síðast liðinn. í stjórn félagsins
skipast þannig að Þórunn Sveins-
dóttir sjúkraþjálfari er formaður,
Björk Pálsdóttir iðjuþjálfi er vara-
formaður, Bjarni Invarsson sál-
fræðingur er ritari, Heiða Elín Jó-
hannsdóttir innanhúsarkitekt er
gjaldkeri og Herdís Björg Rafns-
dóttir vélaverkfræðingur er með-
stjórnandi. Að loknum hefð-
bundnum aðalfundarstörfum
kynnti gæðastjóri Plastprents
gæðastarf og -verðlaun fyrirtæk-
isins og að lokum var gengið um
húsakynni þess. Fróðleg kynning
og góð heimsókn.
Fréttablað VINNÍS sem sent er
öllum félagsmönnum, kemur út
nú á vordögum. Þar verður nánar
sagt frá starfi síðast liðins árs og
því sem er á döfinni. Til fróðleiks
má geta þess að iðjuþjálfar eru
fjölmennasti faghópurinn í
VINNÍS eða 17 talsins.
Fræðslusjóði er ætlað að styrkja iðju-
þjálfa vegna rannsókna og þróunarverk-
efna, fræðslu- og kynningarefnis og
þátttöku á námskeiðum í þágu nefnda
félagsins. Sjóðnum er ekki ætlað að
styrkja iðjuþjálfa til endurmenntunar í
eigin þágu.
Úthlutað verður úr sjóðnum tvisvar
sinnum á ári. Umsóknum skal skilað til
úthlutunarnefndar Fræðslusjóðs á þar
til gerðum eyðublöðum fyrir 15. apríl
eða 15. október. Úthlutun fer fram 1.
maí og 1. nóvember. Rétt til að sækja
um styrki eiga fullgildir og skuldlausir
félagsmenn IÞÍ. Sjóðurinn hefur til út-
hlutunar 100.000 krónur af tekjum fé-
lagsins á ári hverju.
Fyrsta úthlutun Fræðslusjóðs IÞÍ fór
fram 1. maí síðastliðinn. Að þessu sinni
hlutu tveir iðjuþjálfar styrki. Kristjana
Fenger fékk styrk vegna könnunar á
meginhlutverkum fólks á Islandi og
gildi þessara hlutverka. Könnunin er
hluti af rannsókn Kristjönu til meistara-
náms í iðjuþjálfun við Alþjóðaháskól-
ann á Florída. Guðrún Árnadóttir hlaut
styrk vegna gerðar veggspjalds sem
samþykkt hefur verið til sýningar á 12.
heimsráðstefnu iðjuþjálfa í Kanada
1998. Veggspjaldið lýsir áhrifum sál-
rænna einkenna af vefrænum toga á at-
hafnir daglegs lífs.
VS/SÞE
Þel -gærupokar í hjólastóla
Höfum hafiö framleiöslu á þessum
frábæru Þel-gærupokum í hjólastóla.
Þrjár stæröir: S M L
Sérsaumum ef óskaö er
Tryggingastofnun ríkisins hefur tekiö
þátt í kaupunum fyrir fatlaöa.
Saumastofan Þel
Strandgötu 11 • 600 Akureyri
Sími 462 6788 * 853 5829
BP
IÐJUÞJÁLFINN 1/98 29