2. júní - 02.06.1939, Side 1

2. júní - 02.06.1939, Side 1
1. tölublað 2. ] U N I Gefið út í tilefni 10 ára afmælis skátafél. »VALKYR3UR« Siglufirði. I. árgangur Kvenskátafélagið „VALKYRJUR" 2. júní 1929 — 10 ára — 2. júní 1939. Sunnudaginn 2. júni 1929 kom- um við saman 12 stúlkur í þeim tilgangi að stoína hér kvenskáta- félag. Stofnendur urðu þó aldrei nerna 10, því 2 hættu áður en þær lykju nýliðaprófi. Á þessum fyrsta fundi mætti einnig þáverandi foringi drengja- skátanna KristjánDýrfjörð ogElísa- bet Samúelsdóttir skáti frá ísafirði. Voru þau okkur hjálpleg á ýmsan hátt með stofnun félagsins. Sömu- leiðis hjálpaði Kristján Dýrfjörð okkur við nýliðaprófið og lét okk- nr vinna skátaheitið. Minnumst við ætíð með þakklæti þessara 2ja skáta, sem voru okkur hjálpleg við stofnun félagsins okkar. Enginn okkar hafði verið skáti áður og vorum við lítt kunnugur skáta- störfum yfirleitt. Við urðum því að byrja á byrjuninni — en það er að leitast við að skilja tilgang skátahreyfingarinnar og þá ábyrgð, sem því er samfara að vera skáti. Við vorum allar ungar — á aldr- inum 11—17 ára; en við vorum vongóðar og trúðum því, að við gætum orðið skátar, bara við legð- um okkur fram og sýndum áhuga fyrir málefninu. Eg mun reyna í fáum dráttum að rekja sögu félags- ins þessi 10 ár sem það er búið að starfa. Stofnendur voru þessir: Hrefna Samúelsd. flokksfor. I. fl. Lovísa Guðlaugsd. aðst.fl.for. Katrín Lárusdóttir Sigrún Sigurðardóttir Sigurjóna Sigurðardóttir Kristín Matthíasd. flokksfor. II. fl. Jórunn Gísladóttir aðst.fl.for. Ólöf Björnsdóttir Nanna Þormóðs Sigríður Lárusdóttii'. Nýliðaprófi Iukum við 6. júlí og unnum skátaheitið sama dag. Þeim degi gleymi eg aldrei. Mér fannst eg fyrst skilja það þá, hvað það er að vera skáti. Þann samadag fórum við ásamt drengjaskátunum í skemmtiferð austur í Vaglaskóg. Var það fyrsta útilegan okkar. Þau h’jónin Þorfinna og Kristján Dýrfjörð voru foringjar ferðarinnar. Fundir voru haldnir reglulega. Um haustið héldum við dansleik til ágóða fyrir félagssjóð. Það fyrsta sem við keyptum okkur var íslenzkur fáni. Þann fána vígði gamli presturinn okkar, prófessor Bjarni Þorsteinsson. Strax árið eftir 1950 bættust 12 nýir félagar við í hópinn. Luku þeir nýliðaprófi og unnu skáta- heitið í júní. Um vorið tókum við 8 af stofnendunum II. fl. próf. Á 1. árs afmælisdegi félagsins héld- um við okkar fyrstu kvöldskemmt- un, sem heppnaðist ágætlega. Farnar voru nokkrar smáferðir og ein 2ja daga ferð austur í Vagla- skóg. Árið 1931 bættust 2nýirfélagar við í hópinn. Luku þær nýliða- prófi og unnu skátaheitið 20. maí. 5 II. fl. próf voru tekin á árinu. Haldin ein kvöldskemmtun, eitt vikivakanámskeið. Það ár byrjuð- um við að hafa handskrifað blað, sem kom út ájhverjum fundi. Flutti það smágreinar, sögur o. fl. Átti helzt allt að vera frumsamið, sem við skrifuðum í blaðið. Fyrsti rit- stjóri skátablaðsins okkar »Brynja« var Dagmar Fanndal. Þetta ár höfðum við foreldrafund í félagi við drengina. 1932 voru engin próf tekin og engir nýir félagar bættust við. Starfaði þó félagið í fullu fjöri, hélt fundi og æfingar eins og áður- Um veturinn var haldinn ein kvöldskemmtun til ágóða fyrir félagssjóð. 1933 bættust við 21 nýr með- limur. Var það mikið verk að kenna þeim undir nýliðapróf; luku þær þó prófi um sumarið og unnu skátaheitið 16. júlí. Það ár byrjuð- um við að hugsa um húsbygging- una. Við fengum lóðina þá um sumarið, en treystum okkur ekki til að byrja að byggja; fannst ekki sjóðurinn vera orðinn nógu stór. Nokkrarsmáferðir voru farnar. Ein kvöldskemmtun haldin. 1934 bættust við 8 nýir félagar. Luku þeir nýliðaprófi og unnu skátaheitið í kirkjunni á 5 ára af- mælisdegi félagsins. 5 ára afmælis-

x

2. júní

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: 2. júní
https://timarit.is/publication/1184

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.