Mjölnir - 14.05.1929, Side 1
* **»*«* '
^MJOLNIRJi
r
' P c P’ ö? Utg.: Jafnaðarmannafjelag Siglfirðinga.
I. áró.
Siglufirði, Priðjudaginn 14. maí 1929.
1. tbl.
Avarp
tii verkalýðs Siglufjarðar.
Fjelagar!
Auðvaldið hefur sína menningu. Verka-
lýðurinn verður að skapa sjer sína.
Auðvaldið drotnar enn yfir hugum verka-
lýðsins og gerir alt sem því er unt til þess
að svæfa stjettarmeðvitund hans. Auðvaldið
ræður yfir öllurri menningarstofnunum, og
notar þær til þess, að rnóta æskulýðinn
eftir sinni mynd. Verkalýðurinn á ekki ann-
ars úrkosta en að senda börn sin í barnaskól-
ana, en þar eru þau alin upp í þeim anda
að geta orðið góðir borgarar. þ. e. dyggir
þjónar auðborgaranna. Verkalýðurinn hefir
alment ekki efni á að kaupa írekari fræðslu
handa börnum sínum. En auðvaldið hefir
sjeð unglingunum fyrir fræðslu, er það skáld-
sagnaruslið, sem brjálar hugi æskulýðsins
og beinir hugum hans frá alvarlegum eínum,
þeim verkefnum sem bíða hans.
Fátt er verkalýðnum þarfara í baráttunni
við auðvaldið en andleg vopn. blöð og bæk-
ur. Bækur til þess að umskapa hugsunarhátt
verkalýðsins og gefa honum þann andlega
styrk, sem með þarf í baráttunni um að
kollvarpa núverandi þjóðskipulagi, og blöðin
í daglegu baráttunni fyrir bættum lífskjörum
og til andsvara þeirra sífeldu árása, sem
verkalýðurinn verður fyrir af hendi auð-
borgaranna.
Jafnaðarmannafjel. Siglfirðinga henrsjeð að
verkalýðssamtökunum hjer hefir verið hætta
búin, þar sem þau hafa ekki átt neinn máls-
vara, hjer á staðnum, er styrkfi þau í bar-
daganum við borgaraflokkana.
A sumrum eru hjer samankomnir þús-
undir verkamanna, bæði á sjó og iandi, og
er ilt til þess að vita, að allur þessi sægur
hefur ekki átt kost á öðrum blöðum, að
neinu ráði, en íhaldsblöðum þeim, sem hafa
komið hjer út við og við. Ur þessu viljum
við bæta og, hefur Jafnaðarmannafjelagið
þvi ráðist í að gefa út blað þetta, og ætlast
það til að nokkur bót sje ráðin á blaðleysi
verkalýðsins hjer. ,Eins og þið sjáið er blaðið
smávaxið, enda ekki til annars en að ráða
úr brýnustu þörfinni. Pessvegna verðum við
að hagnýta okkur „Verkamanninn“ fram-
vegis, að svo miklu leiti sem þvíverðurvið
komið vegna staðhátta, enda mun ekki
veita af.
Fjelagar! Við göngum að því vísu, 'að
þið munið taka blaði okkar vel, útbreiða
það og styrkja eftir getum með greinum, um
öll þau mál er okkur varðar, og eins fjár-
hagslega, ef efni leyfa. Með því einu móti að
við sjeum öll samhuga, getum við haldið
þessu blaði út áfram, stækkað það og gert
það að þeim hamri, sern á sínum tíma mun
leggja fram sinn skerf til þess að mylja
þrældómskeðjuna, sem heimsauðvaldið fjötr-
ar verkalýðinn í.
^ Útg..