Fréttabréf - 01.02.1993, Side 1
Áí. KnttítHllUirtJittir
Mtf. Kwntrtíu, U<ftnfiT7
Síkí: 91-13725' (u: 91-27560
Afmælishátíðin á
Borginni 12. mars
Einn er sá staöur, sem oft hefur Komiö viö sögu
Kvennalistans, sérstaklega ásokkabandsárunum, og þaö ergamla
góöa Hótel Borg. Einmitt þar voru teknar örlagaríkar ákvarðanir á
fjölsóttum fundum um sérframboö kvenna, og oft síöar voru þar
fundir á vegum Kvennalistans. Afmælisnefndinni þótti þess vegna
einboðiö, aö þar skyldi aöalveislan haldin. Takið því frá föstudaginn
12. mars, konurgóöar, því þá munu Kvennalistakonur, makar
þeirra og aðrir fylgifiskar halda upp á 10 ára afmælið með
boröhaldi og gleöskap, dansi og söng.
Ekki erað efa, aö Kvennalistakonur munu troöfylla Borgina,
og vonandi sjá margar utanbæjarkonur sér fært að slást í hópinn.
Tilhlökkun er mikil, sést hefur til kvenna aö máta samkvæmiskjóla
í helstu dömubúöum Iandsins, og haft er fyrir satt, aö sumar hafi
sótt danstíma í allan vetur. Þær ættu að geta flíkað fótamennt sinni
á nýuppgeröu dansgólfl Borgarinnar, en að öllum líkindum mun
sjálfur Bogomil Font sjá um stemmninguna aö loknu boröhaldi.
Afmælishópur tekur glaður á móti uppástungum í
skemmtidagskrá kvöldsins, og velsæmismörkin má færa til eftir
þörfum! Dagskráogaögangseyrirverðaauglýst, þegarnærdregur.
Haflö augu og eyru opin!!!
í