Norðurslóð - 26.09.1980, Síða 4
Ljósm. J.B.
Saltað inni hjá S.F.D. 1980,
Auglýsing
um
SÍMANÚMER
sjálfvirkra síma í
Svarfaðar- og
Skíðadal.
Háls................ 61501
Hrísar ............. 61502
Hitaveitan Hamri ... 61503
Skáldalækur ......... 61504
Sakka ............... 61505
Hánefsstaðir ........ 61506
Uppsalir ............ 61507
Vellir .............. 61508
Brautarhóll ......... 61509
Gröf ................ 61510
Hof ................. 61511
Hofsá ............... 61512
Skeggsstaðir ........ 61513
Hofsárkot ........... 61514
Ytra-Hvarf .......... 61515
Syðra-Hvarf ......... 61516
Hlíð ................ 61517
Hnjúkur ............. 61518
Klængshóll .......... 61519
Þverá - Skíðadal ... 61520
Másstaðir............ 61521
Dæli ................ 61522
Melar ............... 61524
Búrfell ............. 61525
Hæringsstaðir ....... 61526
Skeið ............... 61527
Kot - Jónas Þorleifss. 61528
- Halldór Jónasson 61529
Atlastaðir .......... 61530
Þorsteinsstaðir.... 61532
Göngustaðir ......... 61533
Göngustaðakot .... 61534
Héraðsdýralæknir
Laugasteinl ....... 61430
Klaufabrekkur ....... 61535
Klaufabrekknakot .. 61536
Hóll ................ 61537
Urðir ............... 61538
Hreiðarsstaðakot ... 61539
Hreiðarsstaðir ...... 61540
Þverá - Svarfaðard. 61541
Steindyr ............ 61542
Bakki Ingvi Baldvinss. 61543
- Þórarinn Jónsson 61562
Bakkagerði .......... 61544
Syðra-Garðshorn .. 61545
Ytra-Garðshorn .... 61546
Þinghús ............. 61547
Grund ............... 61548
Brekka .............. 61549
Jarðbrú ............. 61550
- skrifstofa oddvita . 61332
Húsabakkaskóli .... 61551
- skólastjóri ....... 61552
- kennarabústaður . 61553
Laugahlíð ........... 61554
Tjörn ............... 61555
Ingvarir ............ 61556
Helgafell ........... 61557
Syðra-Holt .......... 61558
Ytra-Holt ........... 61559
Hrafnsstaðakot .... 61560
Hrafnsstaðir ........ 61561
Góðfúslega kynnlð ykkur
leiðbeiningar um notkun
sjálfvirkra síma á bls. 6-10 í
símaskránni.
PÓSTUR OG SÍMI
DALVÍK
HVEITIKLÍÐ
Svar til fréttaritara Dags á
Dalvík við fréttaklausu, sem bar
ofanskráða yfirskrift, og var
um, að vistmenn á heimili
aldraðra á Dalvík lifðu á brauði
úr hveitiklíði og þyrftu því að
greiða fóðurbætisskatt.
Bifreiðaeigendur
athugið!
Tek að mér stillingar á
bensínbílum með full-
komnum tækjum. Bíla-
verkstæði Hjalta Sigfús-
sonar, Árskógsströnd,
sími 63186, heima63163.
Klíðið fær oss dáð og dug,
þótt deigi brauðs í finnist eigi.
E;n fréttamannsins furðu flug
færir þjóð af réttum vegi.
Því hyggjum vér nú hér á bæ
þeim heiðursmanni veislu reiða,
og honum bera hveitifræ.
Þá hann mun sjálfur skattinn
greiða.
F.h. íbúa Dalbæjar
Hjörtur Björnsson
frá Grund.
Vonandi les fréttamaðurinn
þetta tilskrif og þiggur boðið.
Því má treysta, að hveitiklíðið
svíkur engan, hvorki menn né
skepnur.
Bestu matarkaupin
sem hægt er að
gera í dag eru:
Heil slátur með sviðnum haus, verkaðri
vömb og 1 kg af mör.á aðeins . kr. 2.700.-
1 kg af lifur kostar ....!. kr. 2.400.-
Hausar sviðnir ...... kr. 1.300.- pr. kg.
Hausar ósviðnir ....... kr. 900,- pr. kg.
Eistu ............... kr. 1.200,- pr. kg.
SLÁTURHÚS Ú.K.E.
DALVÍK
Dalvíkingar!
Vinsamlegast athugið að álögð gjöld 1.
ágúst eru fallin í eindaga.
Álögð gjöld 1. sept. eru þegar gjaldfallin
og eru gjaldendur beðnir um að gera skil
sem fyrst, ef þeir hafa ekki þegar gert það.
Ógreidd fasteignagjöld eru einnig. fallin í
eindaga.
Bæjarritari.
norðanlands að nýju
Eins og lesendur Norðurslóð-
ar rekur minni til fékk blaðið
tvo spaka menn til að spá fyrir
um þróun mála hér í byggða-
laginu þennan nýbyrjaða ára-
tug. Þar spáðu þeir, að byrjað
yrði að salta síld aftur hér á
Dalvík.
Þessi spá rættist fyrr en menn
héldu, því 5. ágúst s.Í. var byrjað
að salta hjá Söltunarfélagi
Dalvíkur h/f.
Hér hafa landað allmargar
trillur frá Dalvík, Hrísey, Hjalt-
eyri og Grenivík. Auk þess voru
Tryggvi Jónsson EA og Haförn
frá Hrísey nokkurn tíma á
síldveiðum. En sá Bátur sem
mest hefur stundað veiðar og
með bestum árangri er Vinur
EA, skipstjóri Sverrir Svein-
björnsson. Vinur vartilskamms
tíma aflahæstur síldveiðibáta á
landinu, er nú búinn að fá
rúmar 1100 tunnur, og er enn að
þegar þettá er skrifað.
Samtals hefur verið landað
um 1.800 tunnum hér á Dalvík
það er um 180 tonn, og saltað
hefur verið í rúmar 1.200
tunnur. Á mælikvarða hinna
gömlu góðu daga telst þetta
ekki mikil vertíð, þó er hér um
að ræða góða byrjun eftir meira
en áratugar hlé.
Mörgum hefur hlýnað um
hjartarætur að sjá síld haus-
skorna og finna kryddlykt, og
söltunin nú hefur gefið tækifæri
til að rifja upp ýmislegt frá fyrri
árum.
Margt er breytt frá því áður,
engir strákar fara um Dalvíkina
með þéttskrifaðan lista yfir
síldarstúlkur, guða á glugga
„ræs-sfld“. Ekki hljómar „taka
tunnu, tóma tunnu, salt“. Nú er
meiri verkaskipting, sumir
hausa aðrir vigta síldina í
tunnurnar, og enn aðrir salta.
Ekki er lengur raðað í tunn-
urnar.
Mikill hugur er í mönnum og
vissa að haldið verði áfram að
salta á næstu árum. Því er
hiklaust spáð að fleiri muni gera
út á síld næsta ár en nú, og
saltendur segjast munu búa sig
betur undir næstu vertíð.
Frá gömlu, góðu dögunum. Ljósm. Jón Baldvinsson.
Dalvíkingar fyrstir
til að salta síld
AMERÍKUBRÉF
Kæra Norðurslóð.
Ég þakka tryggð þína við
mig. Ég er farinn að hafa
samviskubit út af því, hvað éger
orðinn þér skuldugur.
Öryrkjalaun rriín hafa gufað
svo jjótt upp og að miklu leyti
farið í lœkna og meðul til að
reyna að halda skrokkskriflinu
gangandi, svo bóka- og blaða-
kaup og margt annað þarft og
nauðsynlegt hefur setið á hak-
anum.
Ég sendi þér, kæra Norður-
slóð, þennan litla greinarstúf
um „fyrsta útvarpið". Kannske
finnst þér hún ónothœf, telur
þetta bara gamaldags, leiðinda
innansveitarkróniku, og þar að
auki ekki einu sinni vélritaða.
Ég á ekki ritvél lengur. Ég átti
eina, en lánaði kunningja og
frœnda í Reykjavík, blóðrauð-
um komma, sem skilaði henni
aldrei. Kannske taldi hann mig
bölvaðan auðvaldssinna og
kapitalista, af því ég átti ritvél
- já, kannske nasista, af því að
vélin var þýsk, forláta Eirika.
(Hefur beðið frá í vor)
Teljið þið greinina ónothœfa,
þá gjörið svo vel að senda mér
hana til baka.
Kœr kveðja
Jóhann Kr. Pétursson.
Menn munu átta sig á að
þetta vinarbréf er frá okkar
góða, gamla sveitunga Jóhanni
Svarfdæling. Ekki er að efa að
greinin „Þegar fyrsta útvarpið
kom í Svarfaðardal" mun birt-
ast í blaðinu, vel að merkja
seinna, kannske í jólablaðinu.
Sem sagt við þökkum Jó-
hanni mikið vel fyrir grein og
bréf og áhuga á gamalli og nýrri
svarfdælsku. Og ekki skal hann
hafa áhyggjur af árgjaldinu. Við
segjum eins og skáldið: „Taktu
þér ei svo lítið nærri.“ Þar að
auki er hann búinn að borga
fyrir blaðið langt fram í tímann
með þessari grein og fyrri
tilskrifum.
Þegar sú innistæða er þrotin,
verður Jóhann látinn vita.
Kærar þakkir, Jóhann Svarf-
dœlingur, sveitungar þínir
senda þér bestu kveðjur.
4 - NORÐURSLÓÐ