Norðurslóð - 23.02.1988, Blaðsíða 3
NORÐURSLÓÐ - 3
Bréf tfl blaðsins
Það er alltaf gaman að fá
Norðurslóð, að fá lesefni beint
„að heiman“. Ég er mjög
ánægð með það, hvað búið er
að hressa upp á Sundskálann
blessaðan. Það er alveg sér-
stakt band sem tengir mig við
hann og nú langar mig til þess
að segja söguna af því.
Við unglingarnir á austurkjálk-
anum í kringum Velli vorum
ákaflega samhent og vildum láta
gott af okkur leiða. Við vorum
mörg okkar í Ungmannafélagi
Svarfdæla en okkur fannst það
ekki nægilega nærtækt fyrir okk-
ur að láta að okkur kveða, svo
við stofnuðum sjálf félag, sem
hét ungmennafélagið Æskan.
Við gáfum út handdskrifað blað,
sem fékk það rómantíska nafn
Roðinn. f>að er leiðinlegt að það
skuli hvergi finnast, það væri þó
gaman að lesa það nú, þegar við
sem rituðum í það erum orðin
aldurhnigin, og sum ekki lengur
hér meðal okkar í þessu jarðlífi.
Við höfðum málfundi, æfðum
okkur í ræðumennsku, sömdum
leikrit og sýndum þau á „sviði“.
Það er að segja í stofum og bað-
stofum heimilanna. Það kom að
því að þetta fréttist og við vorum
beðin að leika á barnaskemmtun
í skólanum á Grund. Það þótti
takast svo vel að þegar því var
lokið stóð upp einn virðulegur
bóndi, Vilhjálmur á Bakka, og
þakkaði fyrir hönd viðstaddra.
Þótti okkur það nokkur virðing-
arauki. Hann fór mörgum fögr-
um orðum um þetta framtak
okkar. Þetta gaf okkur byr undir
báða vængi. „Leikritaskáldið“
tók sig til og endurskapaði
leikritið, bætti við og breytti því,
„lengi getur gott batnað". Nú var
funcfur haldinn með pomp og
prakt og ráðum ráðið. Útkoma
hans var á þá leið að fá Ung-
mennafélagshúsið á Dalvík, sem
þá var í uppbyggingu, líklega
komin langt á leið, og hafa þar
stórsamkomu til ágóða fyrir
sundskálann.
Nú var sett á fullt, sólarhring-
urinn hrökk tæplega til undirbún-
ings. Við urðum að einni sál og
einum huga. Allir hétu að gera
sitt besta. Stundin rann upp með
tilhlökkun og kvíða. Allt fór eftir
áætlun. Gísli bróðir minn flutti
erindi um mannlífið. Unnur á
Völlum söng einsöng. Rödd
hennar var bæði fögur og hlý.
Undirrituð las frumsamin ljóð.
Svo var rúsínan í pilsuendanum,
- Minningabrot
leikurinn, sem tókst mjög vel.
Húsið var troðfullt og allir
ánægðir. Ég minnist þess að Ráð-
hildur á Hrappstöðum sagði um
leið og hún þakkaði okkur.
„Þetta er besta skemmtun sem ég
hefi verið á síðan ég flutti í sveit-
ina.“ Nokkrir voru þeir sem
bjuggust ekki við miklu og sátu
því heima, en báðu seinna um að
skemmtunin yrði endurtekin þeg-
ar þeir fréttu um árangurinn. Við
þorðum ekki að verða við þessari
bón bjuggumst e.t.v. við að okk-
ur tækist ekki eins vel upp í ann-
að sinn. Leikritið hét Takmark-
inu náð. Þegar ég les það nú yfir
undrar mig hvað óvanir leikarar
gátu gert úr efninu. „Viljinn
dregur hálft hlass.“ Það sannaðist
þarna. Eftir skemmtiatriðinj
skemmti fólkið sér við dans fram
til 2 um nóttina. Þá áttum við eft-
ir að gera húsið hreint, urðum við
því að bíða morguns, en hvergi
höfðum við vísan gististað. Þá
var ekki um annað að gera en að
reyna að hreiðra um sig uppi á
háalofti. Þar fundum við nokkra
strigapoka og reyndum að vefja
þeim utanum okkur. Ekki varð
víst mikið um svefn vegna kulda,
en nóttin leið. Þegar fór að birta
þvoðum við gólfið og skiluðum
húsinu jafn hreinu og við tókum
við því, lyklar voru afhentir og
haldið heint á leið. Þar biðu okk-
ar hlý rúm og ánægðir aðstand-
endur, að fá okkur heim eftir vel
heppnað skemmtikvöld. Því mið-
ur man ég ekki hvað ágóðinn var
mikill en hann fór allur til sund-
skálans. Til þess að styrkja það
málefni var leikurinn gerður. Mig
minnir að hann sé fyrsti yfir-
byggði sundskálinn á landinu.
Kæru sveitungar þökk fyrir að
þið hafið gefið honum nýtt og
frítt andlit, endurhæft hann með
tilliti til framtíðarinnar. Góðar
stundir.
Filippía Kristjánsdóttir.
Blaðið þakkar skemmtileg til-
skrif. Eru ekki einhverjir lesend-
ur Norðursióðar, sem muna eftir
þessari skemmtun eða öðru sem
tengist skálabyggingunni? Gam-
an væri að heyra frá þeim.
Ritstj.
Öskudagur á Dalvík. Tunnukóngur hylltur.
Öskudagsbörn.
Lj'ósmyndir: SH
SUMARFRÍIÐ «8
Kyrmingarbæklingur með ítarlegum upplýsingum um fjölbreytt ferðaval.
Nýir staðir - Nýir möguleikar.
Frítt innanlandsflug ef staðfest er fyrir 15. mars.
Við bjóðum alhliða þjónustu, hvort sem ferðast er til útlanda eða innanlands,
í viðskipta- eða einkaerindum.
Upplýsingar hjá mnboðsmanni.
Rögnvaldur Friðbjömsson, Dalbraut 8,
Guðríður Ólafsdóttir, Dalbraut 8,
símar 61415 & 61200.
Umboðið á Dahilc.
Samvinnuferdir - Landsýn
Raðhúsaíbúðir við Reynihóla
Höfum til sölu raðhúsaíbúðir með bílskur, sem fyrirhugað
er að byggja í sumar.
Allar nánari upplýsingar í símum 61250 og 61888.
TRÉVERK HF.
Dalvík.
Starfsmann vantar
til ræstinga í Bókasafni Dalvíkur.
Nánari upplýsingar gefur undirritaður.
BÆJARRITARINN DALVÍK.
Dalbær heimili aldraðra
Frá Dalbæ, heimili
aldraðra, Dalvík.
Starf forstöðumanns er laust til umsóknar. Umsóknarfrest-
ur er til 31. mars nk Miðað er við að umsækjandi geti haf-
ið störf um miðjan júní.
Upplýsingar um starfið gefur forstöðumaður Dalbæjar í
símum 96-61379 og 96-61378.
Dalb<
heimili aldraðra
Frá Dalbæ, heimili
aldraðra Dalvík
Starfsfólk vantar í eftirtaldar stöður:
Hjúkrunarfræðing í hálfa stöðu frá 1. apríl, 2 stöður sjúkra-
liða sem eru lausar í maí og júní. Einnig vantar hjúkrunar-
fræðing til að leysa hjúkrunarforstjóra af í sumarleyfi og
sjúkraliða til sumarafleysinga.
Nánari upplýsingur gefur hjúkrunarforstjóri í síma 96-
61378.
Kostabók
1. kostur: Innstæða alltaf laus.
2. kostur: Vextir eru 36,3% eða hærri,
ef verðtrygging reynist betri.
3. kostur: Vextir færast tvisvar á ári.
4. kostur: Leiðréttingavextir af úttekt
eru aðeins 0,7%.
5. kostur: Leyfðar eru tvær úttektir á
ári án vaxtaskerðingar.
A síðasta ári voru
vextir á KOSTAJ3ÓK 27%.
KOSTA BÓK cr góður hostiir.
INNLÁNSDEILD Ú.KE. Dalvík