Norðurslóð - 23.07.2003, Síða 1
27. ÁRGANGUR MlÐVIKUDAGUR 23. JIJLÍ 2003 7. TÖLUBLAÐ
Ráðherra í
Hringsholti v
Kosningaloforð efnt
Guðni Agústsson landbúnaðarráðherra efndi fyrsta kosningaloforð
sitt í Hringsholti á laugardaginn var. Hann kom ríðandi í fríðu föru-
neyti norðlenskra hcstamanna frá Argerði inn á keppnisvöll hesta-
manna í Hringsholti. Þar setti hann Bikarmót Norðurlands við há-
tíðlega athöfn. Þessu hafði Guðni lofað í heimsókn til Hringsfélaga í
kosningabaráttunni og nú var komið að efndunum. Hringsfélagar
kunnu ráðherra bestu þakkir fyrir komuna og færðu honum gjafir. A
myndinni að ofan er Guðni ásamt fulltrúum þeirra hestamannafélaga
sem þátt tóku í bikarmótinu en hér til vinstri er hann kominn af baki
og ræðir við Valdimar Snorrason talsmann undirbúningsnefndar. -ÞH
Sjá fleiri myndir og frétt af mótinu á bls. 4
Fiskidagurinn mikli 2003
Undirbúningur hátíðar-
innar í fullum gangi
Eins og undanfarin ár verður
Fiskidagurinn mikli haldinn
með viðhöfn á Dalvík aðra helg-
ina í ágúst. Samkvæmt upplýs-
ingum frá undirbúningsnefnd
gengur skipulagning vel, enda
vant lið við stjórnvölinn.
Útimessa í Há-
nefsstaðaskógi
Þann 10. ágúst nk. verður hin
árlega útimessa í Hánefs-
staðaskógi og hefst hún kl.
14.
Sóknarprestur
Sem fyrr er Júlíus Júlíusson
framkvæmdastjóri hátíðarinnar
en í framkvæmdanefnd eru Þor-
steinn Aðalsteinsson, Guð-
mundur Jónsson, Ottó Jakobs-
son, Gunnar Aðalbjörnsson og
Bjarni Jónsson.
Dagskrá hátíðarinnar verður
fjölbreytt að vanda. Hljómsveit-
in Edda K mun spila og hljóm-
sveitin Papar með Matta Matt í
broddi fylkingar verður á staðn-
um og treður upp ein og í félagi
við Karlakór Dalvíkur. Hjálmar
Hjálmarsson lætur gamminn
geisa og sömuleiðis Sigurvin
Jónsson. Séra Magnús messar,
ljósmyndasýning verður og svo
mun Fiskidagurinn mikli heiðra
einhvern sem þess er verður.
Sem sagt hefðbundin dagskrá
sem standa mun frá klukkan 11
til 17 laugardaginn 9. ágúst og
verður að sjálfsögðu boðið upp á
fjölbreytilega fiskrétti og er allt
ókeypis eins og áður.
Mikil vinna liggur að baki
undirbúningi þessa dags og mik-
il sjálboðavinna lögð af mörk-
um. Nefndarmenn segja það
stórkostlegt hvað fólk leggur á
sig til að allt takist sem best og
hve allir séu jákvæðir og stað-
ráðnir að gera hátíðina nú jafn
ógleymanlega og á undanförn-
um árum.
Katrín Ingvarsdóttir segir frá ferö á œskulýðsráðstefnu í Noregi.
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar
Únga fólkið vill
aftur sýna bíó
Framfarafélag Dalvíkurbyggðar
hélt fund í kaffihúsinu Sogni 13.
júlí sl. Félagið hefur sem kunn-
ugt er haldið almenna umræðu-
fundi um aðskiljanleg málefni
og staðið fyrir líflegri umræðu
um ýmis þjóðþrifamál. Að þessu
sinni var umræðuefnið Ungt
fólk í Dalvíkurbyggð og sú að-
staða sem því er búin í byggðar-
laginu.
Umræður voru fjörlegar og
ýmsum hugmyndum var varpað
fram. Bjarni Gunnarsson æsku-
lýðsfulltrúi gerði grein fyrir
starfsemi félagsmiðstöðvarinn-
ar. í umræðum sem af því spunn-
ust kom fram mikill áhugi á að
rnála og gera miðstöðina meira
aðlaðandi og einnig voru reifað-
ar ýmsar hugmyndir um starf-
semina. Meðal annars kom upp
hugmynd um að koma á fót
reglulegum kvikmyndasýning-
um sem krakkarnir sjálfir sæju
um og öfluðu fjár í leiðinni.
Þá gerði Katrín Ingvarsdóttir
nemi grein fyrir ferð sem hún
fór á vegum framfarafélagsins á
æskulýðsráðstefnu í Noregi.
Agæt mæting var á fundinum og
í fundarlok var stofnaður um-
ræðuhópur um málefni ungs
fólks í byggðinni. hjhj
Furðufiskar vöktu mikla
athygli þeirra fjölmörgu
sem þáðu heimboð Dal-
víkinga á Fiskideginum
mikla ífyrra.
Opnunartími:
Mán.-fös. 10-19.30
laug. 10-18
sun. 13-17
Matvöruverslun - rétt hjá þér
Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1200