Norðurslóð - 23.07.2003, Qupperneq 5
Norðurslóð - 5
þe. að hætt slátrun hjá Reykja-
garði á Hellu og flytja hana í hið
nýja sláturhús Móa í Mosfellsbæ
sem starfrækt var með allt of
litlum afköstum. Þessu tóku
menn heldur þunglega austur á
Rangárbökkum og segir sagan
að ýmsir sjóðir og fyrirtæki á
Suðurlandi sem voru í viðskipt-
um við Búnaðarbankann hafi
verið farin að hugsa sér til hreyf-
ings frá bankanum. Hvað svo
sem hæft er í því þá var skyndi-
lega kúvent og slátrunin aftur
flutt austur fyrir fjall.
Við það varð staða Móa enn
vonlausari en áður og í vetur fór
fyrirtækið fram á greiðslustöðv-
un. Meðan á henni stóð var lána-
drottnum boðið upp á nauða-
samninga sem jafngiltu því að
afskrifaður væri tæplega hálfur
milljarður króna. Mikil átök urðu
um ágæti þessara nauðasamn-
inga meðal kröfuhafa en á end-
anum náðist tilskilinn meirihluti
fyrir samningnum eftir að Bún-
aðarbankinn gaf grænt ljós á þá.
Lögum samkvæmt þarf að
leggja nauðasamninga af þessari
gerð fyrir héraðsdóm til stað-
festingar eða höfnunar og var
það gert í vor. Héraðsdómur
hefur enn ekki kveðið upp sinn
úrskurð þegar þetta er ritað.
Hins vegar er nokkuð ljóst að
hver sem niðurstaða hans verður
þá verður henni áfrýjað til
Hæstaréttar. Það er því ljóst að
ekki fæst úr því skorið hver
framtíð Móa verður fyrr en í
haust og jafnvel ekki fyrr en
undir áramót.
Átökin um örlög Móa hafa
verið hörð enda er tekist á um
mikla fjármuni. Áður var nefnt
að meirihluti kröfuhafa væri
reiðubúinn að afskrifa tæplega
hálfan milljarð króna en það
gera þeir væntanlega til þess að
verja enn meiri fjárfestingar.
Nauðasamningarnir ná nefni-
lega bara tii kjúklingabúsins en
ekki sláturhússins, það er í eigu
tveggja fyrirtækja: fjármögnun-
arfyrirtækið Lýsing á vélakost-
inn en Landsafl á húsið. Lýsing
er svo aftur að mestu leyti í eigu
Búnaðarbankans en Landsafl er
dótturfyrirtæki Landsbankans.
Þessi fyrirtæki eru að verja fjár-
festingu sem slagar hátt upp í
einn milljarð króna en framtíð
hennar er að verulegu leyti und-
ir því komin að Móar verði starf-
ræktir áfram.
Beðið í ofvæni
Raunar má segja að allir þeir
sem starfa í kjúklingafram-
leiðslu bíði með öndina í háls-
inum eftir því hver niðurstaðan
verður hjá Móum. Fyrirtækið er
það langstærsta í greininni og
þess vegna skiptir það sköpum
fyrir aðra framleiðendur hvort
það er sett á vetur eða gert upp.
Verði nauðasamningarnir stað-
festir eru bankarnir í raun að
taka ákvörðun um að leggja
hálfan milljarð af mörkum til
þess að framlengja það ástand
sem ríkt hefur og einkennist af
offramleiðslu, offjárfestingum
og undirboðum.
Verði Móar hins vegar lýstir
gjaldþrota er komin upp ný
staða á kjúklingamarkaðnum.
Það var í því ljósi sem ýmis fyrir-
tæki í norðlenskum matvæla-
iðnaði höfðu í bígerð að bjóða í
þrotabú íslandsfugls í vor. Áður
en af því varð komu núverandi
eigendur til skjalanna og keyptu
fyrirtækið af þrotabúinu. Von-
andi gengur þeim allt í haginn
með reksturinn en ljóst er þó að
Frá Dalvíkurbyggð
Varðar
heimreidar
að lögbýlum
Vegageröin mun framvegis aöeins hefla heim-
reiöar samkvæmt beiðni.
Þeir sem óska eftir aö fá heimreiöar heflaðar
eru vinsamlega beðnir aö hafa samband við
Tæknideild Dalvíkurbyggðar í síma 460 4900,
460 4921 eða farsíma 826 8876.
Bæjartæknifræðingur
Askriftarsími
Norðurslóðar er
466 1555
róðurinn verður ekki auðveldur
og raunar alls óljóst fyrr en líða
tekur á næsta vetur hverjar
framtíðarhorfurnar eru.
Allir líða fyrir óvissuna
En það eru fleiri sem bíða niður-
stöðu dómstólanna en kjúk-
lingaframleiðendur og bankarn-
ir. Offramleiðslan á kjúklingum
hefur valdið því að verð á kjúk-
lingakjöti hefur lækkað veru-
lega, auk þess sem sölufyrirtæk-
in hafa birgt sig upp af verulegu
magni af frosnum kjúklingum
sem þau þurfa að losa sig við á
næstunni. Þetta lága verð hefur
smitað út frá sér og valdið verð-
lækkunum á öðru kjöti. Þannig
eru framleiðendur á svínakjöti
að selja framleiðslu sína á fárán-
lega lágu verði, undir 100 krón-
um á kfló og allt niður í 60 krón-
ur. Ef þessi framleiðsla á að
standa undir sér þyrfti verðið
hins vegar að vera 220-240 krón-
ur að lágmarki.
Sauðfjárbændur eru ekki síð-
ur orðnir óþreyjufullir eftir því
að kjötmarkaðurinn nái jafn-
vægi. Sala á lambakjöti heldur
áfram að dragast saman en salan
núna í júní var rúmlega 10%
minni en í júní í fyrra. Þeir þurfa
því að draga saman seglin í fram-
leiðslunni, að öðrum kosti þarf
að flytja kjötið út en þá fá bænd-
ur mun lægra verð fyrir það en á
innanlandsmarkaði.
Eins og víðar í íslensku þjóð-
félagi eru mótsagnirnar í land-
búnaðinum margar og sumar dá-
lítið kúnstugar. Ein er sú sem
fólgin er í hömlum á innflutningi
landbúnaðarafurða sem er ætlað
að verja íslenskan landbúnað.
Þessar hömlur gilda líka um
kjúklinga- og svínakjöt. Væri
þeim aflétt myndu íslenskir
framleiðendur neyðast til að
hagræða enn frekar og laga sig
að erlendri samkeppni. Það má
því halda því fram með nokkr-
um rétti að þessi vernd sem hvíta
kjötið nýtur verji framleiðendur
þess fyrir erlendri samkeppni
meðan þeir eru að leggja lamba-
kjötsframleiðsluna í rúst. -ÞH
Sparisjóður
Svarfdæla
sendir viðskiptavinum
bestu kveðju
og óskar þeim bjarts
og sólríks sumarleyfis
við leik og störf,
í sveit og við sjó
Munið:
Einnig á sumrin ávaxtast
spariféð og skiiar
uppskeru að hausti
Sparisjóður Svarfdæla
Dalvík
460 1800
Hrísey
466 1700