Norðurslóð - 16.12.2010, Blaðsíða 1

Norðurslóð - 16.12.2010, Blaðsíða 1
Minningar; hvaðan ber ykkur að, hver bauð ykkur inn í hugskot mitt, sveipaðar dul en þó svo kunnuglegar. Eru öll kertin sem ég kveiki á í dag, óður til kertaljóssins sem logaði á rúmgaflinum hennar mömmu forðum daga. Tunglsins á jólaföstunni þegar glampaði á ísilagða ána og skuggarnir í Skeiðsfjallinu voru eins og listaverk. Ég man hlákuskýin og goluna sem þurrkaði þvottinn fyrir jólin, lyktina af eplunum, hamaganginn við laufabrauðsbaksturinn. Olíuluktina í bæjardyrunum sem aldrei náði að varpa ljósinu út í homin. Ég lýk þessari skoðunarferð um hugann, þakklát fyrir að rata enn um götumar sem ég gekk i bemsku og æsku. Held áfram að dýrka tunglskinið og óræða skammdegisbirtuna Lena Gunnlaugsdóttir Norðurslóð óskar lesendum sínum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Opnunartimi: Mán. - fðs. 10-19 laug. 10-18 sun. 13-17 Matvöruverslun - rétt hjá þér Hafnartorg - Dalvík - s: 466 1202

x

Norðurslóð

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Norðurslóð
https://timarit.is/publication/1253

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.