Fréttablaðið - 05.03.2018, Blaðsíða 8
GÓÐUR VINNUFÉLAGI
Volkswagen Caddy
www.volkswagen.is HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt:
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ
Einn vinsælasti atvinnubíll á Íslandi er Volkswagen Caddy.
Hann er áreiðanlegur, öruggur og fæst í tveimur lengdum
- hefðbundinni lengd og lengri gerð (Maxi).
Caddy má fá með fjórhjóladrifi sem eykur enn við öryggi
og aksturseiginleika bílsins. Fjórhjóladrifinn Caddy hentar
einstaklega vel við íslenskar aðstæður og eykur til muna
notkunarmöguleika Caddy, hvort heldur er í snjó, hálku
eða erfiðu færi.
Volkswagen Caddy kostar frá
2.590.000 kr.
(2.072.000 kr. án vsk)EIGUM NOK
KRA
4x4
TIL AFHEND
INGAR
STRAX FÆST FJÓRHJÓLADRIFINN
Við látum framtíðina rætast.
skipulagsmál Eigandi lóðarinnar
Þelamerkur 52-54, Lars David Niel-
sen, krefst þess að Hveragerðisbær
annaðhvort lækki fyrirhuguð hús
á svokölluðum Edendreit niður í
eina hæð eða kaupi af honum hans
eign á fullu verði. Bæjarráð hafnar
kröfunum.
Eins og áður hefur komið fram eru
gróðurhús og garðplöntusala rekin
á Þelamörk 52-54 sem er norðan
við Edenreitinn. „Ljóst er að ef fjöl-
eignarhús á tveimur hæðum verði
byggt við lóðamörkin nokkrum
metrum frá gróðurhúsunum verði
skuggavarp yfir gróðurhúsin nánast
út allt árið,“ segir í bréfi til bæjaryfir-
valda frá lögmanni Lars sem vísar til
matsgerðar Ráðgjafarstöðvar land-
búnaðarins.
Lögmaðurinn segir augljóst að
fyrirhugaðar byggingar muni valda
Lars gríðarlegu tjóni. „Framkvæmd-
irnar myndu nánast eyðileggja
framtíðarmöguleika lóðar hans og
því er grenndarréttur ekki virtur,“ er
fullyrt í bréfinu.
Bæjarráð segist nú þegar hafa
komið til móts við fyrri athuga-
semdir Lars með lækkun húsa úr
þremur hæðum í tvær og úr tveimur
hæðum í eina. „Með því er talið að
skuggavarp á nærliggjandi lóðir
verði óverulegt og hafi lítil áhrif á
rekstur,“ bókar bæjarráðið. Vitnað
er til þess að í greinargerð með deili-
skipulagi Edenreitsins komi fram
að skuggavarp sé óverulegt nema í
mars klukkan 17.00 og að skugga-
varp í júní sé vart sjáanlegt.
Lögmaður Lars segir hins vegar í
bréfinu að bærinn hafi ekki kannað
skuggavarpið sérstaklega. „Virðist
sem bærinn fullyrði út í loftið hvað
það varðar,“ segir hann.
Bæjarráðið bendir á að skipulag
hafi verið samþykkt og framkvæmd-
ir séu við það að hefjast. „Bæjarráð
telur ekki að bygging tveggja hæða
húsa sem eru sambærileg að hæð
við önnur hús í hverfinu hafi skað-
leg áhrif á rekstur stöðvarinnar og
að sambýli atvinnurekstrar og íbúða
geti verið áfram eins og verið hefur.“
Kæru Lars vegna málsins var
vísað frá úrkurðarnefnd umhverf-
is- og auðlindmála þar sem kæru-
fresturinn var úti. – gar
Hafna kröfu um að lækka
hús á Edenreit enn frekar
Dómsmál Steinar Berg Ísleifsson og
Ingibjörg Pálsdóttir, sem reka hótel
á jörð sinni Fossatúni við Grímsá í
Borgarfirði, segja Alþingi hafa stuðst
við sjónarmið sem Hæstiréttur hafi
áður hafnað er lögum um veiðifélög
var breytt.
Á vefsíðu sinni segja Steinar og
Ingibjörg að sé sértækum hagsmun-
um framfylgt af „valinkunnum“ ein-
staklingum eða hagsmunasamtökum
geti þeir farið í gegnum stjórnsýsluna
og Alþingi og orðið að lögum.
„Af hverju, Sigurður Ingi, útilokaðir
þú sjónarmið og þekkingu okkar við
vinnu lagagerðarinnar í ráðuneyti
þínu þegar þú varst í raun að undir-
búa lög til höfuðs okkur ábúendum
í Fossatúni?“ spyrja Steinar og Ingi-
björg í opnu bréfi til Katrínar Jak-
obsdóttur forsætisráðherra, Bjarna
Benediktssonar fjármálaráðherra og
Sigurðar Inga Jóhannessonar, áður
landbúnaðarráðherra og nú sam-
gönguráðherra
Steinar og Ingibjörg keyptu Fossa-
tún á árinu 2001. Með fylgja veiðirétt-
indi í Grímsá og þar með skylduaðild
að Veiðifélagi Grímsár og Tunguár. Á
vefsíðu þeirra sveitasögur.is segir að
skömmu áður en þau hófu rekstur
ferðaþjónustu í Fossatúni árið 2005
hafi stjórn veiðifélagsins ákveðið að
leigja veiðihúsið að Fossási út sem
sveitahótel utan laxveiðitímans.
„Okkur ábúendum í Fossatúni
þótti sérkennilegt að standa í sam-
keppni við veiðifélagið og svarta
atvinnustarfsemi í skjóli þess,“ segir á
vefsíðunni. Þau hafi leitað réttar síns
og Hæstiréttur dæmt að veiðifélaginu
væri óheimilt að leigja veiðihúsið út
til samkeppnislegrar starfsemi utan
veiðitíma án samþykkis allra félags-
manna.
„Skömmu eftir dóminn gekk for-
maður Landssambands veiðifélaga á
fund sjávarútvegs- og landbúnaðar-
ráðherra og fullyrti að Hæstiréttur
hefði komist að rangri niðurstöðu
og að það þyrfti að uppfæra lögin.
Honum var falið að vinna að laga-
breytingu ásamt starfsmönnum
ráðuneytisins,“ rekja hjónin. Helsta
stuðningsgagn lagabreytingarinnar
hafi verið álitsgerð sem Lagastofnun
Háskóla Íslands vann og Landssam-
band veiðifélaga greiddi fyrir í tengsl-
um við ágreining ábúenda Fossatúns
og veiðifélagsins.
„Hæstiréttur hafnaði niðurstöðu
álitsgerðarinnar og því hlýtur það
að teljast óeðlilegt og öfugsnúið að
hún sé síðan helsta stoð Alþingis
fyrir lagabreytingunni,“ segir á síðu
Steinars og Ingibjargar. Komin sé ný
skilgreining á hlutverki veiðifélaga.
„Við bætist markmið um að taka þátt
í almennum hótel- og veitingarekstri
til að hámarka arðsemi. Spurning
hvort hægt sé að skylda fólk til þátt-
töku í slíku félagi með lögum og víkja
þannig til hliðar félagafrelsi stjórnar-
skrárinnar?“
Hjónin segjast ítrekað hafa leitað
til ráðuneytisins sem vann lögin og
til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar
Alþingis og beðið um fundi. „Því
miður hafa bæði ráðuneytið og
stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd
sniðgengið þær óskir eða hafnað
þeim,“ segja þau.
Í opna bréfinu segja hjónin að
lagabreytingin sé andstæð stjórnar-
skrá. „Eða teljið þið að hægt sé að
skylda fólk til að vera í félagi sem
hefur það að markmiði að standa í
eignaumsýslu og hámarka arðsemi
félagsmanna?“ spyrja þau ráðherr-
ana. „Af hverju samþykktuð þið,
Katrín og Bjarni, þessi illa ígrunduðu
lög 30. júní 2015? Réð sannfæring
ykkar því eða meðvirkni?“
Ennfremur segja þau eina for-
sendu lagabreytingarinnar hafa verið
að hún hefði aðeins áhrif á veiði-
félög. „Það er firra. Spyrjið Samtök
ferðaþjónustunnar! Við hjón höfum
og liðið fyrir þetta fjárhagslega og
félagslega.“
Steinar kveðst hafa dreift bækl-
ingum um málið til alþingismanna.
Hann kveðst bjartsýnn á jákvæðar
undirtektir. „Það hlýtur að vera til-
efni til þess að ræða málin,“ segir
vertinn í Fossatúni við Fréttablaðið.
gar@frettabladid.is
Hótelstjóri segir lögum
breytt eftir séróskalista
Hjón í Fossatúni við Grímsá segja veiðifélag árinnar hafa stundað „svarta at-
vinnustarfsemi“ með sölu gistingar í veiðihúsinu. Þau gagnrýna Alþingi fyrir
lagabreytingu til að þóknast veiðifélaginu eftir að það tapaði máli í Hæstarétti.
Steinar Berg Ísleifsson og Ingibjörg Pálsdóttir í Fossatúni telja sig hafa orðið af
milljónaviðskiptum vegna sölu Veiðifélags Grímsár og Tunguár á gistingu.
Edenreiturinn hefur staðið auður frá því að söluskálinn brann sumarið 2011.
Gróðurhúsin aftan við standa á Þelamörk 52-54. Fréttablaðið/Pjetur
Framkvæmdirnar
myndu nánast
eyðileggja framtíðarmögu-
leika lóðar hans.
Lögmaður Lars Davids Nielsen
papÚa NÝJa-gÍNEa Jarðskjálfti, 6,0
að styrk, reið yfir Papúa Nýju-Gíneu
árla mánudags að staðartíma. Upp-
tök skjálftans voru á tíu kílómetra
dýpi í miðju landinu rúma 600 kíló-
metra norðvestur af höfuðborginni,
Port Moresby.
Vika er frá því að annar skjálfti,
7,5 að styrk, skók landið með þeim
afleiðingum að skriður féllu víðs-
vegar um landið. Neyðarástand ríkir
í landinu vegna skjálftans en tugir
týndu lífi og fjölda er saknað.
Um 150 þúsund manns voru á
vergangi eftir fyrri skjálftann en
skriður og ónýtir vegir hafa gert við-
bragðsaðilum erfitt um vik að koma
neyðaraðstoð til þeirra sem hana
þurfa. Óttast er að hinn nýi skjálfti
hafi bætt gráu ofan á svart. – jóe
Enn skelfur Papúa Nýja-Gínea
Við hjón höfum og
liðið fyrir þetta
fjárhagslega og félagslega.
Steinar Berg Ísleifsson og Ingibjörg
Pálsdóttir í Fossatúni
5 . m a r s 2 0 1 8 m á N u D a g u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a ð i ð
0
5
-0
3
-2
0
1
8
0
4
:3
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
F
1
E
-9
1
C
8
1
F
1
E
-9
0
8
C
1
F
1
E
-8
F
5
0
1
F
1
E
-8
E
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
4
_
3
_
2
0
1
8
C
M
Y
K