Feykir - 31.08.2016, Side 11
32/2016 11
og pipar bætt útí og öllu stappað
saman.
Þorskur og pistasíusalsa:
1200 gr þorskhnakkar eða flök
salt og pipar eftir smekk
7 msk saxaðar pistasíur
6 msk sítrónusafi
og hýði af 1 sítrónu
2 msk olía
2 dl fersk söxuð steinselja,
ekki verra að rækta hana
í eldhúsglugganum
½-1 chili, fræhreinsað
og fínsaxað
Aðferð: Þorskurinn er skorinn í
bita og raðaður í eldfast mót.
Kryddaður með salti og pipar eftir
smekk. Fyrir þá sem hafa ekkert
sérstaklega gaman af að saxa mat í
höndunum þá er alveg eins gott að
setja steinselju, pistasíur, chilli og
sítrónusafann og hýðið í
matvinnsluvél eða nota töfrasprota.
Þegar allt er komið í hentuga bita er
matarolíunni hrært saman við.
Þegar salsað er tilbúið er því dreift
yfir fiskinn og sett í ofn sem búið
var að forhita uppí 220°C. Eldað í
u.þ.b. 12-15 mínútur.
Sojasmjörsósa:
9 msk smjör
3 skarlottlaukar, fínt saxaðir
3 hvítlauksrif fínt söxuð
2 tsk rautt chilli, fínt saxað
6 msk sojasósa
3 msk steinselja, fínt söxuð
Aðferð: Smjörið er brætt í potti og
látið krauma við lágan hita í u.þ.b.
15 mínútur og froðan veidd af.
Afganginum af hráefnunum bætt
saman við rétt áður en maturinn er
borinn fram.
Gott er að elda réttinn í sömu
röð og uppskriftirnar eru gefnar
upp og ætti þá enginn að þurfa að
lenda í stressi eða bíða eftir að
einhver hluti réttarins verði
tilbúinn.
EFTIRRÉTTUR
Ís í ætri skál
Þar sem að aðeins þarf að nostra við
aðalréttinn fannst okkur tilvalið að
hafa eftirréttinn einfaldan og fljót-
legan og í anda árstíðarinnar sem er
núna.
Ísskál
Afgangur af pönnukökum, eða
vöfflum, má alveg vera frá deginum
áður. Tekin er ein pönnukaka og
sett ofan á litla skál eða glas þannig
að miðjan á pönnukökunni sé
nokkurn vegin á miðju glasinu. Sett
í örbylgjuofn á hæstu stillingu í 1-3
mínútur eða þangað til pönnu-
kakan er orðin það hörð að hún
getur staðið sjálf. Gerðar eru jafn-
margar skálar og fjöldi þeirra sem
er í mat.
Þegar ísskálin er orðin köld eru
settar 1-2 ískúlur af uppáhaldsísn-
um í hverja skál, berjum að eigin
smekk og dass af hunangi dreift yfir.
Ekki skemmir fyrir að vera búin að
kíkja í berjamó til að geta nýtt glæný
blá- og krækiber og fyrir þá sem eru
með vott af grænum fingrum er
algjör snilld að eiga hindberjarunna
útí garði þar sem er sólríkt og ágætt
skjól til að tína í eftirréttinn.
Við skorum á Steinunni Gunn-
steinsdóttur og Jón Eymundsson
að taka við keflinu.
Verði ykkur að góðu!
KROSSGÁTUSMIÐUR Páll Friðriksson
Verðlaun Sá sem fyrstur leysir þrautina ætti að setja plötu
með Eagles á fóninn...
Sudoku
FEYKIFÍN AFÞREYING
Krossgáta
Hahaha...
Helga: „Starfsvettvangur mannsins míns er í rústum.“
Lauga: „Æ, það þykir mér leiðinlegt að heyra.“
Helga: „Nei, það er allt í lagi. Hann er nefnilega fornleifafræðingur.“
Feykir spyr...
Hvað gerðirðu
í sumarfríinu?
Spurt á Facebook
UMSJÓN kristin@feykir.is
„Ég breyttist í fótboltabullu þegar
Íslendingar spiluðu á EM í júní.
Í júlí fæddist okkur hjónunum
okkar sjöunda barn og síðan hófst
heyskapur af fullum krafti. Þetta
sumar biluðu öll heyvinnutæki og
sum meira að segja tvisvar. Því var
í nógu að snúast í viðgerðum. Ég
skrapp með krakkana (ekki samt
það yngsta) á Unglingalandsmót
UMFÍ í Borgarnesi.
Að lokum skruppum við hjónin með
yngri börnin til Hríseyjar en þar er
álitleg sundlaug sem ég hafði ekki
hugmynd um að væri til.“
Halldór G. Hálfdánarson
„Ég ferðaðist innanlands
í sumarfríinu.“
Hjalti Árnason
„Í sumarfríinu er ég búin að njóta
sveitasælunnar og náttúrunnar.
Ég fór í tvær hestaferðir með
fjölskyldunni og góðum vinum,
einnig fòr ég eina helgi ì bùstað með
fjölskyldunni.“
Helga Sjöfn Helgadóttir
Vissirðu að...
... Kóngarnir í spilastokk eiga glæsilegar fyrirmyndir úr sögunni:
Spaðakóngur – Davíð konungur,
Laufakóngur - Alexander mikli,
Hjartakóngur - Karlamagnús,
Tígulkóngur – Júlíus Sesar.
Ofnbakaður þorskur með
pistasíum og ís í ætri skál
AÐALRÉTTUR
Ofnbakaður þorskur
með pistasíum, sætkartöflu-
mús og sojasmjörsósu
Sætkartöflumús:
1 kg sætar kartöflur, skrældar
og skornar í bita
2-4 kartöflur, skrældar
og skornar í bita
1 rautt chili, fræhreinsað
1 lime, safinn
2 msk smjör
salt og pipar eftir smekk
Aðferð: Sæt- og venjulegu kartöfl-
urnar soðnar þangað til mjúkar
með chili, annaðhvort skornu í
tvennt eða í litla bita eftir því hvað
kartöflustappan á að vera sterk.
Fyrir kisurnar er betra að hafa
chilið í stórum bitum svo hægt sé að
taka það úr áður en kartöflurnar
eru stappaðar. Lime, smjör og salt
MATGÆÐINGAR VIKUNNAR
UMSJÓN kristin@feykir.is
„Aðalrétturinn er í boði
Eldhússagna (eldhussogur.
com) og er þetta einn besti
fiskréttur sem við höfum bragðað. Ekki skemmir heldur fyrir
að auðvelt er að slá um sig og setja matinn á disk og bera fram
þannig að líti út eins og meistarakokkar hafi framreitt hann,“
segja matgæðingarnir María Eymundsdóttir og Pálmi Jónsson
á Sauðárkróki.
María og Pálmi eru matgæðingar vikunnar
María og Pálmi. MYND: ÚR EINKASAFNI
Tilvitnun vikunnar
Á mínu heimili er það ég sem ræð – konan mín
er bara sá aðili sem tekur ákvarðanirnar. – Woody Allen
„Við fjölskyldan fórum á ættarmót
á skemmtiferðaskip sem sigldi frá
Stokkhólmi til Helsinki og
mættu um 100 manns.“
Júlía Linda Sverrisdóttir