Feykir - 04.04.2013, Qupperneq 8
Ertu með fréttaskot, mynd eða
annað skemmtilegt efni í Feyki?
Hafðu samband. Síminn er 455 7176
og netfangið feykir@feykir.is
13
TBL
4. apríl 2013 33. árgangur
Frétta- og dægurmálablað á Norðurlandi vestra : Stofnað 1981
Helgartilboð
Nammibar
50% afsláttur
KS lambafille
2998,- kg.
FP marmelaði
5teg 400gr. 198,-
KS lambalæri
1098,- kg.
Swiss miss
737gr. 649,-
Remi kex
100gr. 219,-
Frón mjólkurkex
gróft/fínt 400gr. 249,-
Goða pylsur 10st.
479,-
Fp kornflex
1kg. 359,-
FP eldhúsrúllur
4st. 289,-
Trópí 1 ltr.
198,-
Bökunarkartöflur
169,- kg.
FP steiktur laukur
200gr. 129,-
SS pylsusinnep
200gr. 198,-
Libby´s tómatsósa
1 kg. 289,-
FP samlokukex
500gr. 249,-
FP WC pappír
8rl. 339,-
Ti
lb
oð
g
ild
a
m
eð
an
b
ir
gð
ir
e
nd
as
t
BÍLAVERKSTÆÐI
Hesteyri 2 550 Sauðárkrókur Sími 455 4570
Við þjónustum bílinn þinn!
Alhliða bílaviðgerðir fyrir fólksbíla,
vörubíla og dráttarvélar. Réttingar og sprautun.
Lokamót á föstudag
Húnvetnska liðakeppnin
Lokamót Húnvetnsku liðakeppninnar verður tölt og
hefst kl. 17:30 föstudaginn 5. apríl. Keppt verður í
1., 2. og unglingaflokki í tölti T1 (fegurðartölt í
staðin fyrir yfirferðartölt) og í 3. flokki í tölti T7.
Er ferming framundan?
Nýtt í fermingarkertum
Nú getur þú fengið mynd af fermingarbarninu,
kirkju, áhugamáli og ritningartexta sett á kerti
*Þú getur valið um liti á myndskreytingu
á kertinu. Hæð á kerti er 25 cm.
*Fallegt að hafa fleira en eitt kerti.
*Einnig er hægt að fá gestabók í stíl - Flott viðbót
Frekari upplýsingar gefa Rita í s: 899 7632 og
Þuríður í síma 849 4470
Kynning á nýjum knöpum KS deildarinnar : Bergrún ingólfsdóttir
Hörð og spennandi keppni
unnu sér keppnisrétt í KS deildina í forkeppni í
vetur en þetta er frumraun hennar í deildinni.
Bergrún er frá Lyngholti í Ásahreppi sunnan heiða
en stundar nú nám við Háskólann á Hólum þar sem
hún er að læra BS í reiðmennsku og reiðkennslu. Er
hún að ljúka sínu þriðja ári og stefnir á að útskrifast
þaðan í vor.
Hvernig líst þér á KS deildina í ár? -Mér líst mjög
vel á deildina í ár, það eru margir góðir knapar og
ekki síður hestar. Þetta verður hörð og spennandi
keppni.
Varstu sátt við sæti þitt í fimmganginum? -Ég var
mjög ánægð með hestinn, en prógrammið okkar
tókst hins vegar ekki eins og vonast var til. En þetta
fer allt í reynslubankann, og ég mæti bara tvíelft til
leik næst.
Hvaða hrossum teflir þú fram í vetur? -Það er
ennþá óráðið hvað mætir í hverja grein en ég er með
tvo hesta sem ég stefni með, annarsvegar Kolfinn frá
Efri-Gegnishólum í tölt, en hann var einnig í
B-úrslitum í fjórgangnum og svo á ég einn gamlan og
góðan skeiðhest sem ég stefni með í skeið, hann heitir
Eldur og er frá Vallanesi.
Hverjir eru aðalkostir þeirra? -Þessir tveir eru í
uppáhaldi hjá mér. Ég þekki þá báða mjög vel og á
mikið í þeim. Einn helsti kostur Kolfinns eru góðar
og jafnar gangtegundir og útgeislun en það skiptir
miklu máli í fari keppnishesta að mínu mati. Eldur er
einstakur karakter, sérvitur en skemmtilegur.
Ætlar þú eða hefur þú tekið þátt í öðrum keppnum
í vetur? -Ég tók þátt í einu móti Skagfirsku
UMSJÓN
palli@feykir.is
Bergrún Ingólfsdóttir heitir
síðasti knapinn sem við
kynnum til leiks af þeim sem
MT Bergrún og Eldur frá Vallanesi á glæsilegu tölti. Mynd: Jens Einarsson.
mótaraðarinnar nú í vetur og stefni á að keppa
meira þegar nær líður vori. En aðaláherslan hjá mér
er að einbeita mér að deildinni og reyna að standa
mig með sóma þar.
Einhver sérviska eða hjátrú hjá þér fyrir keppni?
-Já, það er eitt og annað. Ég t.d. vil alltaf setja
hlífarnar á hestana mína sjálf, eins eyði ég miklum
tíma í að gera mig og hestinn tilbúinn. Ég fer oft á
staðinn þar sem mótið fer fram sest í stúkuna og fer
í huganum yfir prógrammið og hvernig ég ætla að
útfæra það. Ég hugsa mikið um að hesturinn og ég
komum sem best fyrir.
Eitthvað sem þú vilt koma á framfæri? -Ég vil
þakka þeim sem komu þessari deild á fótinn og
öllum þeim sem standa að umgjörð KS-deildarinnar.
Þetta er góður vettvangur fyrir knapa að koma sér á
framfæri og færir líf í hestamennskuna á
Norðurlandi.
Á heimasíðu hestamannafélagsins Þyts kemur
fram að það verða tveir inn á í einu og verður
stjórnað af þul. Prógrammið er; hægt tölt,
hraðabreytingar og fegurðartölt í tölti T1. „Í ár
ætlum við að láta snúa við, svo knapar þurfa að
ákveða upp á hvora höndina þeir vilja byrja,“ segir
á heimasíðunni. Aðgangseyrir er 1.000 en frítt
fyrir 12 ára og yngri. /BÞ