Kiwanisfréttir - 01.04.2009, Page 4
Vetrarstarfið hófst með því að við héldum, með miklum
myndarbrag, uppá fertugsafmæli klúbbsins, en stofndagur hans
er 14. september 1968. Það heimsóttu okkur margir góðir gestir
úr klúbbum á Óðinssvæðinu og einnig frá umdæmisstjórn, þeir
færðu okkur góðar kveðjur og gjafir. Margir tóku til máls, bæði
félagar og gestir og að loknu borðhaldi var stiginn dans fram eftir
nóttu. Þessi afmælishátíð heppnaðist ágætlega.
Þann 9. október fóru fram stjórnarskipti undir styrkri stjórn
svæðisstjóra Óðinssvæðisins Stefáns Jónssonar. Þann 27. okt.
kom heimsforseti Mr. Don Canaday í heimsókn til Akureyrar,
ásamt kjörumdæmisstjóra Óskari Guðjónssyni og umdæmis-
stjóra Matthíasi G Péturssyni. Tókum við Kaldbaksfélagar ásamt
félögum úr öðrum klúbbum á svæðinu á móti þeim, en ofankoma
og ófærð hömluðu för margra, mæting var þó þokkaleg.
Mr. Canaday fór vítt yfir sviðið, en talaði þó sérstaklega um
nýliðun í hreyfingunni og hvaða aðferðir hann notaði, einnig
ræddi hann um stofnun ungliðaklúbba. Þetta var mjög fróðlegt
erindi og ánægjuleg heimsókn. Við komust þá að því að Kiwanis
á Íslandi er ekki alveg gleymt út í hinum stóra heimi. Á þessum
árstíma erum við félagar frekar skemmtanaglaðir og látum ekkert
þunglyndi ná tökum á okkur. Við höldum jóla- og þorrafund og
bjóðum mökum okkar með, og eru þetta hinir ágætustu fundir,
sem stuðla að kynningu innbyrðis og auka samstöðu. Árleg
jólatrésskemmtun var einnig haldin, þar sem jólasveinar létu
tölvert á sér bera og um hundrað manns mættu. Í febrúarlok var
farin hin árlega fjölskylduferð að Illugastöðum í Fnjóskadal, þar
sem allir skemmtu sér vel á vélsleðum, brettum og skíðum,
mæting mjög góð og veðrið eins gott og hugsast gat. Á döfinni
er leikhúsferð og „menningarhátíð” að henni lokinni, svo og
heimsókn í keilusal á sumardaginn fyrsta. Mörg undanfarin ár
höfum við stutt við bakið á félögum í Íþróttafélagi fatlaðra Eik, og
átt tvo menn í stjórn þess. Þar af leiðandi höfum við aflað okkur
dómararéttinda í Boccía, og séð um dómgæslu á fjölda móta m.a.
landsmóti og er í undirbúningi aðkoma að tveimur stórmótum á
árinu.
Félagsstarfið hefur verið með líflegra móti í vetur, mæting á
fundum 85-90%, og nýverið hafa gengið til liðs við okkur tveir
nýjir félagar, vonandi bætast fleiri í hópinn. En svona félagsstarf
hefur átt undir högg að sækja undanfarin ár, en vonandi verður
breyting á því í nýju þjóðfélagsmynstri sem er að ganga yfir
núna.
LÍFLEGT FÉLAGSSTARF HJÁ
KALDBAK Á AKUREYRI
Afhending gjafabréfs til Nökkva. Rúnar Þór Björnsson, Ólafur
Óskarsson og Kristinn Örn Jónsson.
Töframennirnir í eldhúsinu, Toggi og Bjöggi.
4