Kiwanisfréttir - 01.04.2009, Side 12
Fræðslunefnd umdæmisins fyrir næsta
starfsár er skipuð eftirtöldum Kiwanis-
félögum:
Sæmundur H. Sæmundsson; Elliða, Reykja-
vík, formaður Finnbogi G. Kristjánsson;
Elliða, Reykjavík Árni H. Jóhannsson
Kötlu, Reykjavík.
Ákveðið var í upphafi að hafa nefndina
sjálfa ekki stóra, því það er skoðun
formanns að betri árangur náist með
fámennari nefnd og fá frekar til liðs við
nefndina sérfræðinga á hinum ýmsu
sviðum til að miðla fróðleik til félaga
okkar í Kiwanishreyfingunni.
Við munum nýta okkur mjög gott efni,
sem forverar okkar í fræðslunefnd hafa
aflað og sett upp á aðgengilegan hátt.
Auðvitað verður um einhverjar breytingar
að ræða þegar nýjir menn koma til starfa
og kannski ekki síst þar sem þeir menn
hafa mikla reynslu og hafa sinnt öllum
þeim störfum sem nefndin er að fjalla um.
Nefndin hefur þegar tekið til starfa og var
með svæðisstjórafræðslu í Kiwanishúsinu
við Engjateig í Reykjavík 21. febrúar
síðastliðinn. Þar mætu fimm af sex
svæðisstjórum fyrir starfsárið 2009-2010,
en einn komst ekki sökum veðurs. Til liðs
við okkur í nefndinni fengum við
umdæmisritara Hjördísi Harðardóttur og
umdæmisféhirði Atla Heiðar Þórsson,
einnig mætti kjörumdæmisstjórinn Geir
H. Guðmundsson og að sjálfsögðu
foringinn, sjálfur umdæmisstjórinn Óskar
Guðjónsson.
Við í nefndinni höldum að fræðslan hafi
tekist bærilega og kjörsvæðisstjórarnir
hafi farið heim hressir og kátir, eitthvað
fróðari og tilbúnir til átaka við næsta
starfsár með að leiðarljósi að gera
Kiwanishreyfinguna öflugri, eftirtektar-
verðari og áhugaverða fyrir ungt fólk
þegar kemur að því að velja sér félagsskap
til að njóta samvista við aðra í þjóð-
félaginu og láta samhliða þeirri ánægju,
gott af sér leiða fyrir uppbyggingu í okkar
þjóðfélagi.
Fræðsla fyrir kjörforseta var haldin
sunnudaginn 29. mars í Kiwanishúsinu í
Kópavogi. Einnig aðstoðaði nefndin
umdæmisstjóra við ráðstefnu sem haldin
var laugardaginn 28. mars.
Á umdæmisþinginu í haust verða
fræðslur fyrir forseta, ritara og féhirða og
vil ég hvetja alla klúbba að senda sína
embættismenn til fræðslu á þingið, það er
bæði fróðlegt og einnig skemmtilegt fyrir
verðandi embættismenn að koma á stóra
fundi eins og umdæmisþing og kynnast
félögum úr öðrum klúbbum og alls staðar
að af landinu og félögum okkar frá
Færeyjum.
Einnig hefur komið til umræðu að kalla til
þings formenn móttökunefnda í klúbb-
unum til að fara yfir þeirra starf, því að
móttökunefndin er andlit klúbbsins og er
klúbburinn oft metinn eftir því hvernig
móttökunefndin skilar sínu hlutverki. Vill
undirritaður því hvetja kjörforseta til að
velja móttökunefndarformann fyrir
þingið í haust þannig að hægt sé að kalla
þá til, ef það verður niðurstaðan að fá þá
til fræðslu.
Fræðslunefnd stefnir að því að koma einu
sinni á svæðisráðstefnu í hverju svæði á
næsta starfsári og er einnig tilbúin til að
heimsækja klúbba ef þess er óskað og
þurfa félagar klúbbanna ekki að óttast að
um eitthvað þurt stagl verði að ræða því
nefndarmenn nenna ekki slíku heldur
vilja hafa opna fundi þar sem félagar
skiptast á skoðunum um störf klúbbsins
og Kiwanismálefni yfirleitt.
Við í fræðslunefnd vonum að næsta ár
verði öflugt og kraftmikið Kiwanisár, en
það gerist ekki nema að við félagarnir í
hreyfingunni tökum höndum saman og
gerum allt okkar starf bæði öflugt og
skemmtilegt.
Kæru Kiwanisfélagar, eigið bjarta og
ánægjulega framtíð, sjáumst hress sem
oftast á fundum og öðrum samkomum
Kiwanis.
Sæmundur H. Sæmundsson, formaður
fræðslunefndar umdæmisins 2009-2010.
12
„GAMLIR” REYNSLUBOLTAR Í
FRÆÐSLUNEFND
Þessir félagar verða í fræðslunefnd 2009-2010, Finnbogi, Sæmundur og Árni.
Hér eru verðandi svæðisstjórar samankomnir á fundi fræðslunefndar.