Kiwanisfréttir - 01.04.2009, Page 15
GLÆSILEG HÁTÍÐ Í ÍÞRÓTTAHÖLLINNI
OG HÚSAVÍKURMÓTIÐ Í BOCCIA
Á laugardaginn 21. febrúar s.l. stóð Bocciadeild Völsungs og
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi fyrir uppákomu í Íþróttahöllinni,
sem orðið er að árlegum viðburði. En það er „Opna Húsa-
víkurmótið í Boccia” og Kiwanismenn veita Húsvísku íþrótta-
fólki viðurkenningar fyrir afrakstur liðins árs og lýst er kjöri
„Íþróttamanns Húsavíkur 2007”. Þá afhenti klúbburinn einnig
fjölmarga styrki til góðgerðamála.
Mótið tókst í alla staði afar vel, þátttaka mjög góð eða 33
sveitir, hafa sjaldan verið fleiri, sem sýnir að bæjarbúar og
fyrirtæki eru tilbúin að styðja við bakið á Bocciadeildinni með
þátttöku, þetta er fjáröflun fyrir deildina í formi firmakeppni.
Myndir frá mótinu, verðlaunaafhendingu og kosningu íþrótta-
manns Húsavíkur er einnig hægt að skoða á myndasíðu Hallgr.
Sig. : www.123.is/hallisig
Að loknu Bocciamóti hófst athöfn þar sem Húsvískt íþróttafólk
var heiðrað fyrir frammistöðu, ástundun og árangur á árinu 2008.
Nefnd á vegum Skjálfanda um val á Íþróttamanni Húsavíkur
annaðist afhendingu verðlauna,
Í allt voru veittar 19 viðurkenningar til íþróttafólks í 11
einstökum íþróttagreinum, auk þess gaf Kiwanisklúbburinn
þeim sem urðu í þrem efstu sætum í vali á íþróttamanni
Húsavíkur ferðastyrk.
Í 3. sæti varð Ásgerður Ólöf Ásgeirsdóttir, sundmaður.
Í 2. sæti varð Stefán Jón Sigurgeirsson, skíðamaður.
Í 1. sæti og íþróttamaður Húsavíkur 2008 varð Berglind
Kristjánsdóttir, frjálsíþróttamaður og knattspyrnukona.
Einnig var afhentur „Hvatningabikar ÍF” sem Sylgja Helgadóttir
hlaut.
Féhirðir Skjálfanda, Sigurgeir Aðalgeirsson stýrði afhendingu
styrkveitinga ásamt forseta klúbbsins Brynjari Halldórssyni og
fulltrúum úr styrktarnefnd. Fram kom í máli Sigurgeirs það
helsta sem Kiwanishreyfingin og Skjálfandi standa fyrir og hvað
við erum að gera hér í samfélaginu.
Tilkynnt var um eftirtalin styrktarverkefni og áherslur sem
samþykktar hafa verið og ákveðið að Skjálfandi taki þátt í eða
vinni að á starfsárinu. Er þetta ekki tæmandi fyrir starf klúbbsins
á árinu, því enn er m.a. óafgreidd árviss verkefni eins og hjálma
verkefnið, samstarf og stuðningur við Björgunarsveitina Garðar
o.fl.
Samtals voru gjafir og styrkir veittir að andvirði Kr. 1.060.680,-
Athöfnin var öll hin hátíðlegasta og var fjöldi bæjarbúa í Höllinni
þennan dag.
Kiwanisklúbburinn Skjálfandi,
Guðmundu. K. Jóhannesson ritari.
Styrkþegar ásamt Brynjari Halldórssyni forseta og Sigurgeir.
Aðalgeirssyni féhirði.
Brynjar Halldórsson afhendir verðlaun vegna Íþróttamanns
Húsavíkur 2008 sem er Berglind Kristjánsdóttir. Móðir hennar
Svandís veitti verðlaununum viðtöku.
hans bæði innan lands og utan. Þess má einnig geta að séra
Gunnar er mikill mótorhjólaáhugamaður. Það er því tilkomu-
mikil sjón að sjá alskeggjaðan, leðurklæddan kraftajötunn á stóru
mótorhjóli, vitandi að þar er prestur á ferð.
Skemmtinefndin okkar hefur staðið vel undir nafni þetta
starfsárið. Þegar þetta er skrifað er á döfinni að fara í leikhús með
konum okkar og sjá „Hart í bak“ í Þjóðleikhúsinu. Einnig hefur
komið til tals að skreppa í heimsókn austur í Geldingalæk í
byrjun maí, en þar var starfrækt barnaheimili sem naut stuðnings
okkar til margra ára. Ef af ferðinni verður, þá verður hún eins
konar „skemmtiferð“ en ekki „vinnuferð“ eins og áður. Starfsemi
heimilisins var lögð niður á síðasta ári. Svo verður að sjálfsögðu
farin sumarferð eins og vanalega, en hún er áætluð í lok júní.
Stefnt er að því að fara í Öndverðarnes og gista í sumarhúsum og
á tjaldsvæði staðarins. Ekki er að efa að spilað verður golf því
nokkrir Höfðafélagar eru forfallnir golfarar.
Að lokum óska ég öllum Kiwanisfélögum og fjölskyldum þeirra
alls hins besta.
Guðni Walderhaug, fjölmiðlafulltrúi Höfða
15