Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 02.06.2018, Blaðsíða 3
skemmtilegt og árangursríkt,“ Ólafur Bjarki hefur tekið þátt í einu stórmóti með íslenska landsliðinu en hann lék alla sex leikina á EM í Serbíu fyrir sex árum og skoraði þrjú mörk. Ólafur Bjarki var valinn í landsliðið fyrir æfingamótið í Noregi í byrjun apríl en varð að draga sig úr liðinu á síðustu stundu þar sem hann varð faðir í fyrsta sinn um líkt leyti. Nú er hann hinsvegar mættur gal- vaskur á æfingar með landsliðinu sem býr sigur undir leikina við Litháen í undankeppni HM 8. og 13. júní. Endanlegur keppnishópur fyrir leikina hefur ekki verið valinn en það er þó altént stór sigur fyrir Ólaf Bjarka að vera í æfingahópnum. „Ég er bara afar sáttur við að vera í hópnum. Ég mun leggja mig allan fram um að vinna mér rétt í hópnum sem leikur við Litháen,“ sagði Ólafur Bjarki Ragnarsson, handknattleiks- maður. HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is Handknattleiksmaðurinn Ólafur Bjarki Ragnarsson sagði í samtali við Morgunblaðið fyrir rúmu ári þegar hann samdi við austurríska liðið West Wien að hann hefði tvö meginmarkmið þegar hann söðlaði um og yfirgæfi þýska liðið Eisenach til þess að flytjast til Vínarborgar. Annað væri að ná heilsu á ný eftir langt meiðslatímabil. Hitt væri að vinna sér sæti í íslenska landsliðinu á nýja leik eftir langa fjar- veru. Ári síðar má segja að markmiðin hafi að flestu leyti náðst. Ólafur Bjarki hefur náð góðri heilsu eftir nokkurra ára þrálát meiðsl í baki og nú æfir hann með íslenska landsliðinu sem býr sig undir leiki við landslið Litháen í undankeppni heimsmeistaramótsins. Ólafur Bjarki var að vonum glaður í bragði þegar Morgunblaðið hitti hann að máli fyrir æfingu landsliðsins í fyrradag. „Síðasta ár hefur verið mjög gott. Ég byrjaði á núllpunkti þegar ég kom til West Wien á síðasta sumri. Eftir veruna í Þýskalandi þá var bakið á mér nánast farið, vöðvarnir voru nánast ekki fyrir hendi. Ég hafði verið spraut- aður svo oft til þess að halda verkjum niðri í þeim tilgangi að ég gæti æft og leikið með liðinu. Vöðvarnir voru orðn- ir mjög rýrir. Endurhæfing hófst af fullum krafti undir stjórn sjúkraþjálf- ara og þjálfarateymis West Wien þar sem Hannes Jón Jónsson er þjálfari. Niðurstaðan af þeirri vinnu er sú að bakið hrjáði mig ekkert í vetur og ég tók þátt í öllum leikjum liðsins á keppnistímabilinu sem er mjög stór sigur fyrir mig,“ sagði Ólafur Bjarki sem hefur varla náð heilu keppnis- tímabili heill heilsu síðan hann lék með HK keppnistímabilið 2011/2012 þegar liðið varð Íslandsmeistari með Ólaf Bjarka í aðalhlutverki. Upphafið má rekja til brjóskloss Upphafið að erfiðleikum Ólafs Bjarka má rekja til brjóskloss fyrir fimm árum. Eftir að hafa gengist und- ir aðgerð var hann góður um skeið en síðan sótti í sama farið á ný. „Þá tók við nær endalaus sprautumeðferð sem hreif ekki nema í skamman tíma í einu. Þá má segja að ég hafi verið kominn í ákveðinn vítahring sem ég losnaði ekki út úr fyrr en á síðasta sumri þegar markvisst var farið í að byggja upp bakið á nýjan leik með æfingum sam- hliða breyttu mataræði. Það var allt tekið í gegn. Líkaminn var þjálfaður frá grunni auk þess sem farið var yfir alla næringu. Ég hætti að borða kolvetnaríkan mat og strikaði út sykur og fleira og sneri mér í meiri mæli að glútenlausum mat,“ sagði Ólafur Bjarki sem venti kvæði sínu í kross um skeið en viðurkennir að hafa nú aðeins slakað á klónni. „Ég gæti mín á að missa mig ekki í eitthvert bull.“ Var lentur í vítahring Ólafur Bjarki segir að nýliðið keppnistímabil hafi fyrir vikið verið stórskemmtilegt. Hann hafi hinsvegar verið orðinn svo leiður á stöðunni fyrir rúmu ári að hann hafi verið nærri því að hætta í handbolta. „Ég var lentur í vítahring með endalausum meiðslum og sprautum. Það virtist ekkert ljós vera fyrir enda ganganna. Leiðin út úr þessu var að fara til Hannesar og hans manna hjá West Wien og byrja frá grunni. Þar hef ég gengið í endurnýj- ung lífdaga, ef svo má að orði komast. Ég á Hannesi og sjúkrateymi hans mikið að þakka. Ég tók hárrétt skref. Auk þess þá er gott að búa í Austurríki með góðum samherjum hjá West Wien,“ sagði Ólafur Bjarki, sem er 29 ára gamall. Ólafur Bjarki lék stórt hlutverk í liði West Wien sem féll út á naumasta mun í undanúrslitum um austurríska meistaratitilinn fyrir skömmu auk þess sem liðið lék til úrslita í bikar- keppninni en varð að bíta í það súra epli að tapa þeim leik með eins marks mun. Auk Hannesar Jóns þjálfara leikur Seltirningurinn Viggó Krist- jánsson með West Wien. Verðum sterkari á næstu leiktíð „Við settum okkur háleit markmið fyrir keppnistímabilið. Þau náðust ekki en við vorum nærri þeim. Nú setj- um við allt á fullt fyrir næsta tímabil. Liðið er styrkjast um þessar mundir, meðal annars með komu Guðmundar Hólmars Helgasonar frá Frakklandi. Ég sé fram á að næsta tímabil verði Var kominn á fremsta hlunn með að hætta Ljósmynd/handball-westwien.at Sterkur Ólafur Bjarki Ragnarsson lék stórt hlutverk í liði West Wien í vetur og var drjúgur við markaskorun.  Ólafur hefur gengið í endurnýjung lífdaga hjá West Wien  Lék alla leiki vetrarins ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. JÚNÍ 2018 Róbert Ísak Jónsson úr Íþróttafélaginu Firði í Hafnarfirði hafnaði í 4. sæti í 200 metra fjór- sundi á opna breska meistaramótinu sem nú stendur yfir í Sheffield á Englandi. Róbert, sem keppir í flokki þroskahamlaðra, kom í mark á 2.15,07 mínútum og setti um leið nýtt og glæsilegt Íslandsmet. Í undanrásunum í gærmorgun setti hann nýtt met þegar hann synti á tímanum 2.17,01 mín. Japaninn Dai Tokairin landaði gullinu á 2.12.84 mín. svo það er morgunljóst að Róbert þarf að spýta enn frekar í lófana ef hann ætlar sér að skáka þeim fljótustu í greininni. Hollendingurinn Marc Evers hafnaði í 2. sæti á tímanum 2.13,22 mín. en hann hefur ver- ið lengi að í sundi S14 (þroskahamlaðir) og borið hróður greinar- innar víða. gummih@mbl.is Róbert fjórði í Sheffield Róbert Ísak Jónsson Hörður Björgvin Magnússon, landsliðsmaður í knattspyrnu, gengur til liðs við rússneska fé- lagið CSKA Moskva hinn 1. júlí en fotbolti.net skýrði frá þessu í gær. Samkvæmt því hefur enska félagið Bristol City samþykkt tilboð Rússanna. CSKA hafnaði í öðru sæti rússnesku úrvalsdeildarinnar í vet- ur og liðið leikur í riðlakeppni Meistaradeildar Evrópu á næsta tímabili. Hörður hefur leikið með Bristol City undanfarin tvö ár. Þrír félagar Harðar í íslenska landsliðinu leika í deildinni, allir með Rostov, en það eru Ragnar Sigurðsson, Sverrir Ingi Ingason og Björn Bergmann Sigurðarson. Einn Íslendingur hefur áður spilað með liði frá Moskvu en Arnór Smárason lék með Torpedo í úrvalsdeildinni ár- ið 2015. vs@mbl.is Hörður fer til Moskvu Hörður Björgvin Magnússon Guðmundur Þ. Guðmundsson, landsliðsþjálf- ari í handknattleik karla, bryddar upp á þeirri nýjung við æfingar og undirbúning landsliðs- ins, sem stendur yfir þessa dagana, að allar æfingar liðsins eru kvikmyndaðar. „Ég hef ekki gert þetta áður hjá íslenska landsliðsinu en ég reyndi þetta fyrst þegar ég var með landslið Barein og mér fannst það gefa góða raun,“ sagði Guðmundur í samtali við Morgun- blaðið. „Ég klippi niður upptökur frá æfingunum og fer yfir milli æfinga. Þannig get ég betur metið frammistöðu manna og lagt mat á það sem vel gengur og hvað verr í þeim atriðum sem unnið er í hverju sinni. Maður sér ekki allt sem fram fer á hverri æfingu,“ sagði Guðmundur og glotti við tönn þegar hann sagði frá nýbreytni sinni. iben@mbl.is Kvikmyndar æfingar Guðmundur Þ. Guðmundsson  Haraldur Franklín Magnús atvinnu- kylfingur hafnaði í 16. sæti á Jyske- Bank-meistaramótinu sem lauk í Silke- borg í gær en það er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni. Haraldur lék loka- hringinn á einu höggi yfir pari og var samtals á fimm höggum undir pari. Ólafur Björn Loftsson lék á tveimur höggum yfir pari í gær og endaði í 34. sæti á einu höggi undir pari.  Handknattleiks- markvörðurinn Katrín Ósk Magn- úsdóttir hefur samið við Selfyss- inga til eins árs. Katrín lék með Selfossliðinu frá 2013 til 2017 en tók sér frí á síð- asta tímabili þar sem hún stundaði nám í Danmörku.  Enska félagið Leeds United rak enn einn knattspyrnustjórann í gær en Paul Heckingbottom var þá sagt upp eftir fjóra mánuði í starfi. Þar með er Leeds að leita að sínum þrettánda stjóra á aðeins sex árum. Leeds hafn- aði í þrettánda sæti B-deildarinnar ensku í vetur.  Mathew Leckie, leikmaður Herthu Berlín í Þýskalandi, skoraði tvö mörk fyrir ástralska landsliðið í knattspyrnu þegar það vann stórsigur á Tékkum, 4:0, í vináttulandsleik í St. Pölten í Austurríki í gær. Ástralar búa sig undir HM í Rússlandi og mæta Ungverjum áður en þeir halda til Rússlands þar sem þeir leika gegn Frökkum í fyrsta leik sínum á HM 16. júní.  Franski handknattleiksmaðurinn Daniel Narcisse lék síðasta leikinn á ferlinum í fyrrakvöld þegar París SG tryggði sér franska meistaratitilinn í lokaumferð 1. deildarinnar þar í landi. Narcisse, sem er 38 ára, er einn sigur- sælasti leikmaður handboltasögunnar, fjórfaldur heimsmeistari, þrefaldur Evrópumeistari og tvöfaldur ólympíumeistari með franska lands- liðinu. Þá vann hann fjölda titla með París SG, Kiel, Chambéry og Gummersbach á tutt- ugu ára ferli í fé- lagsliðum. Narc- isse skoraði 943 mörk í 311 landsleikjum með Frökk- um. Eitt ogannað

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.