Fréttablaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 9

Fréttablaðið - 14.01.2019, Blaðsíða 9
Verðmætasköpun og þjóðarhagur Orkumarkaðir í mótun: Hilton Reykjavík Nordica Þriðjudagur 15. janúar kl. 8:30-10:00 (morgunkaffi hefst kl. 8:00). Verið öll velkomin Skráning á www.landsvirkjun.is. Dagskrá Magnús Árni Skúlason hagfræðingur hjá Reykjavík Economics og Gunnar Haraldsson hagfræðingur hjá Intellecon kynna nýja skýrslu; „Orkuauðlindir Íslendinga og hagsæld til framtíðar.“ Skýrslan verður aðgengileg á Landsvirkjun.is. Valur Ægisson og Dagný Ósk Ragnarsdóttir hjá viðskipta­ greiningu Landsvirkjunar fjalla um raforkuviðskipti stórnotenda og tækifæri Íslands. Pallborðsumræður Magnús Árni Skúlason, Gunnar Haraldsson og Stefanía G. Halldórsdóttir, framkvæmdastjóri markaðs­ og viðskiptaþróunar hjá Landsvirkjun. Kristrún Frostadóttir, aðalhagfræðingur Kviku, stýrir pallborði. Fundarstjóri er Signý Sif Sigurðardóttir, forstöðumaður fjárstýringar. Hvernig fást sem mest verðmæti úr orkuauðlindum Íslands? Hvar stendur íslenskur raforkumarkaður í alþjóðlegum samanburði? Hvernig er viðskiptum með raforku til stórnotenda háttað og hver eru tækifærin til framtíðar? Guðmundur Steingrímsson Í DAG Það er ekki augljóst hver munurinn er á því að tala um lýðheilsu og einfaldlega bara heilsu, en ég geri ráð fyrir að með því að tala um lýðheilsu og markmið um betri lýðheilsu sé átt við eitthvað sem skapar almennt betri heilsu. Það er verið að ræða um eitthvað sem gerir lífið betra fyrir ótrúlega marga í einu. Sumir myndu segja að þetta ætti að vera markmiðið í stjórn- málum. Að gera lífið betra fyrir mjög marga í einu. Helst alla. Þetta mistekst oft. Sumir segja að í stjórnmálum takist mönnum yfirleitt á einhvern ótrúlegan hátt, hvað eftir annað, að gera lífið verra fyrir mjög marga í einu. Málið er það, að oft blasir ekki fyllilega við hvað er fólki fyrir bestu, hvað bætir lífið. Það er hægt að taka arfaslakar ákvarð- anir í þeim efnum. Sérstaklega finnst mér misheppnað þegar forystufólk ætlar sér að taka heilsufarsákvarðanir fyrir alla aðra. Ég held að það sé ekki hægt að bæta heiminn með forræðis- hyggju nema að mjög takmörk- uðu leyti. Hvatning og fræðsla, í frjálsu og upplýstu samfélagi þar sem fólk ber ábyrgð á sjálfu sér, er betri blanda. Lög um skokk væru til dæmis fásinna. Að því sögðu blasir þó hitt líka við: Sumt þarf að ákveða. Það er ekkert annað í boði. Við getum ekki bæði haft vinstri og hægri umferð. Það verður að vera annað hvort. Sama gildir um klukkuna. Hún þarf að vera stillt einhvern veginn. Nýjar rannsóknir Árið 1968 var ákveðið á Íslandi að hafa klukkuna stillta þannig að birta í síðdeginu yrði meiri yfir árið heldur en birta á morgnana. Jafnframt fannst fólki í viðskipta- lífinu fínt að vera nálægt Evrópu í tíma, ef senda ætti telefax. Sumartími var festur í sessi. Fólk sem stundar til dæmis golf síðdegis á haustin og snemma á vorin nýtur góðs af þessu. Fólk sem vill grilla síðdegis í dagsbirtu getur gert það oftar yfir árið. Ég ætla ekki að gera lítið úr þessum dásemdum. Á síðari árum hefur hins vegar komið í ljós, og það er stutt rannsóknum sem nýverið fengu Nóbelsverðlaunin, að það sem skiptir mestu, þegar kemur að klukkunni, er að klukkan á úlnliðnum sé í samræmi við sólargang og líkamsklukkuna. Þegar sólin er hæst á lofti yfir daginn, þá á klukkan að vera sem næst því að slá tólf, en ekki hálf tvö eins og nú er. Ef opin- bera klukkan er vanstillt, hefur það margvísleg slæm líkamleg og andleg áhrif. Þreytt þjóð Nefnd sérfræðinga, sem nú hefur skilað skýrslu um þetta mál, og mælt sterklega með klukku- breytingu, er miklu betri í að rekja vísindin á bak þetta en nokkurn tímann ég. Veruleikinn segir hins vegar sína sögu. Út af rangri klukku eru Íslendingar látnir vakna á hverjum virkum degi um miðja nótt. Sú tilhögun felur í sér sérstaklega ömurlega aðför að ungu fólki. Að vekja ungling á Íslandi að morgni skóladags yfir vetrarmánuðina er fyrir mörgum  Hvað trompar lýðheilsu? svipuð reynsla og að reyna að svæla púkann út úr stelpunni í Exorcist. Íslendingar hafa verið rændir eðlilegum svefni síðan 1968. Vill Vigdís Hauks ekki skjóta því til héraðssaksóknara? Djók. En í alvöru talað: Getur verið að ævarandi lítil framleiðni á vinnu- markaði, metnotkun geðlyfja og brottfall ungmenna úr skólum, sé eitthvað tengt því að fólk fær ekki að sofa almennilega? Myrkraöflin Hvað mælir þá gegn því að breyta klukkunni, og hafa klukkuna stillta í samræmi við náttúruna, líkamsstarfsemi og stöðu landsins á jarðkringlunni? Einhvern veginn þarf hún að vera, og hvers vegna þá ekki þannig? Hér virðist hafa skapast dauðafæri til að bæta líf ótrúlega margra í einu, með einni ákvörðun. Hvað hindrar? Ég lagði nokkrum sinnum fram tillögu um klukkubreytingu á þingi. Það er skemmst frá því að segja, að ég hef aldrei fengið jafn úrill og nöturleg viðbrögð við nokkru því sem ég hef lagt fram og talað fyrir á lífsleiðinni. Frá örfáum aðilum. Eiginlega voru viðbrögð þeirra þess eðlis að þau vöktu grunsemdir í sjálfu sér um slæman svefn fólks. Ég var vændur um að hafa ekkert fram að færa annað en bara eitt- hvert klukkuhjal. Klukkumálið var talið bera málefnafátækt minni, og stjórnmálahreyfingarinnar, vitni. Viðbrögðin voru eins og handa- bendingar og hrakyrði vansvefta fólks sem vakið er um miðja nótt. Þetta eru myrkraöflin, gæti ég svarað álíka vansvefta. Það er rétt- nefni. Þau vilja jú að fólk byrji daga sína sem oftast örþreytt í svarta- myrkri. Eða hvað? Spurningar blasa við. Þær eru mjög athyglis- verðar. Er lýðheilsa léttvæg? Er hægt að réttlæta þannig pólitík til lengri tíma? Hvað trompar lýð- heilsu? S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M Á N U D A G U R 1 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 1 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 2 0 3 -0 C C 0 2 2 0 3 -0 B 8 4 2 2 0 3 -0 A 4 8 2 2 0 3 -0 9 0 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.