Fréttablaðið - 14.01.2019, Page 12

Fréttablaðið - 14.01.2019, Page 12
kvika.is Kvika gefur út sex mánaða víxla Kvika banki hf. hefur geð út sex mánaða víxla að árhæð 1.840 milljónir króna. Um er að ræða útgáfu í víxlaokknum KVB 19 0620 og er heildarheimild okksins 2.000 milljónir króna. Fjármálaeftirlitið staðfesti lýsingu vegna umsóknar um töku víxlanna til viðskipta þann 11. janúar 2019, og sótt hefur verið um töku víxlanna til viðskipta í Kauphöll Íslands. Útprentuð eintök lýsingarinnar má nálgast í 12 mánuði frá staðfestingu hennar í höfuðstöðvum Kviku, Borgartúni 25, 105 Reykjavík. Rafræn eintök má nálgast á vefsíðu Kviku, www.kvika.is/verdbrefalysingar Reykjavík, 14. janúar 2019 Hættulegustu mennirnir Mörk + stoðsendingar 13 1 Lína 3 11 3 1 Vítaköst 3 Víti Hraðaupphlaup 5 Markvarsla 13/44 Mörk úr leikstöðum 4 5Ólafur Andrés Guðmundsson 6+0 Aron Pálmarsson 5+2 Arnór Þór Gunnarsson 3+1 Bjarki Már Elísson 3+0 Teitur Örn Einarsson 2+1 Sigvaldi Björn Guðjónsson 2+0 Maður leiksins Ólafur Andrés Guðmundsson lék vel á báðum endum vallarins. Hann var öflugur í vörninni og lét vel til sín taka þegar hann kom inn í sóknarleik- inn. Ólafur Andrés varð marka- hæsti leikmaður íslenska liðsins með sex mörk og þurfti bara átta skot til þess að skora mörkn sín í leiknum. ÍSLAND - SPÁNN 0 Bjarki Már Elísson brenndi ekki af neinu skoti sínu í leiknum. 3 Gísli Þorgeir fiskaði þrjú vítaköst í sínum fyrsta leik á stórmóti. Íslensku markmennirnir tveir vörðu samanlagt 13 skot í þessum leik. 25 32 HM í handbolta B-riðill Ísland - Spánn 25-32 Mörk Íslands (Skot): Ólafur Andrés Guð- mundsson 6 (8), Aron Pálmarsson 5 (8), Arnór Þór Gunnarsson 3 (5), Bjarki Már Elísson 3 (3), Sigvaldi Björn Guðjónsson 2 (3), Teitur Örn Einarsson 2 (5), Ómar Ingi Magnússon 1 (2), Stefán Rafn Sigurmanns- son 1 (1), Arnar Freyr Arnarsson 1 (2), Gísli Þorgeir Kristjánsson 1 (3) Varin skot: Björgvin Páll Gústavsson 9 (27/9, 33,3%) og Ágúst Elí Björgvinsson 4 (17/4, 23,5%). Mörk Spánar: Ferran Sole 5, Raul Entrerrios 4, Aleix Gomez 4, Daniel Sarmiento 4, Aitor Arino 3, Julen Aguinagalde 3, Angel Fernandez 3, Joan Canellas 2, Adrian Figu- eras 2, Daniel Dujshebaev 2. Makedónía - Japan 38-29 Spánn - Barein 33-23 Stig þjóða: Spánn 4, Makedónía 4, Króatía 4, Ísland 0, Japan 0 og Barein 0. A-riðill Rússland - Kórea 34-27 Þýskaland - Brasilía 34-21 Frakkland - Serbía 32-21 Stig þjóða: Þýskaland 4, Frakkland 4, Rúss- land 3, Serbía 1, Brasilía 0 og Kórea 0. C-riðill Síle - Austurríki 32-24 Noregur - Sádi-Arabía 40-21 Danmörk - Túnis 36-22 Stig þjóða: Danmörk 4, Noregur 4, Austur- ríki 2, Síle 2, Túnis 0 og Sádi-Arabía 0. D-riðill Katar - Egyptaland 28-23 Ungverjaland - Angóla 34-24 Svíþjóð - Argentína 31-16 Stig þjóða: Svíþjóð 4, Ungverjaland 3, Katar 2, Angóla 2, Argentína 1 og Egyptaland 0. HANDBOLTI Ísland hefur beðið ósig- ur í fyrstu tveimur leikjum sínum á heimsmeistaramótinu í handbolta karla, en í gær voru  það  Spán- verjar  höfðu betur 32-25 í leik liðanna í annarri umferð B-rið- ilsins. Íslenska liðið hóf leikinn af miklum krafti og hélt í við Spán- verja  fram í miðbik fyrri hálf- leiks, en þá skildi leiðir og Spánn fór með fimm marka forskot inn í hálfleikinn. Aftur náðu leikmenn íslenska liðsins góðum kafla í upphafi síð- ari hálfleiks, en góð markvarsla Björgvins Páls Gústavssonar leiddi til  marka úr hraðaupphlaupum og  staðan eftir tæplega tíu mín- útna leik í seinni hálfleik 19-16 Spáni í vil. Þá hrökk spænska liðið hins vegar aftur í gang og nýtti sér all þau mistök sem íslenska liðið gerði bæði í varnarleik og sóknar- leik. Niðurstaðan sjö marka sigur sem var þó full stór miðað við þróun leiksins. Halldór Jóhann  Sigfússon, þjálfari karlaliðs FH, var álitsgjafi Fréttablaðsins að þessu sinni, en hann var ánægður með spila- mennsku  íslenska liðsins að mörgu leyti. Honum fannst hins vegar munurinn of mikill í lokin og mistökin sem ungt og óreynt lið Íslands gerði voru dýrkeypt. Hann var ánægður með leik Ólafs Andr- ésar Guðmundssonar og innkomu Gísla Þorgeirs Kristjánssonar. „Við byrjuðum leikinn mjög vel, en svo fórum við að fá ódýrar brottvísanir og þeir nýttu yfir- töluna afskaplega vel. Við vorum svo ekki að ná upp nógu góðri hjálparvörn í varnarleiknum og þeir nýttu klókindi sín til þess að galopna vörnina trekk í trekk. Björgvin Páll Gústavsson átti góða innkomu í íslenska markið sem veitti okkur líflínu, en tæknifeilar á þeim kafla þar sem við vorum að saxa forskotið urðu okkur að falli,“ sagði Halldór Jóhann í samtali við Fréttablaðið. „Það má svo ekki gleyma því að við vorum að etja kappi við gríðar- lega sterkt lið með ógnvænlega breidd í sínum leikmannahópi. Þeir gátu rúllað á leikmönnum eins og Daniel Sarmiento, Raúl Entrerríos, Ángel Fernández, Joan Canellas og Alex og Daniel Dujs- hebaev í útilínunni hjá sér. Þetta eru allt leikmenn í  hæsta  gæða- flokki sem kæmust í hvaða landslið sem er. Það munar miklu að geta skipt mínútum á milli svona góðra leikmanna,“ sagði Halldór Jóhann um andstæðinginn að þessu sinni. „Það var jákvætt að sjá Ólaf Guð- mundsson láta til sín taka og mér fannst gaman að sjá hvað Gísli Þor- geir var óhræddur og skilvirkur í sínum sóknaraðgerðum. Mér fannst markvarslan líka fín á köfl- um, en það vantaði herslumuninn í varnarleiknum og aðeins meiri aga í sóknarleiknum til þess að fá eitthvað út úr þessum. Mér fannst frammistaðan bæði í þessum leik og í leiknum gegn Króatíu hins vegar heilt yfir fín. Við vorum að spila með útilínu sem hafði að geyma leikmenn um tvítugt í öllum stöðum og þeir stóðu sig bara feikilega vel. Teitur Örn Einarsson minnti á sig þær mínútur sem hann spilaði. Við erum í uppbyggingarfasa með þetta lið og þetta er allt á réttri leið. Menn læra af þeim mistökum sem þeir eru að gera og laga það sem upp á vantar til þess að kom- ast nær jafn sterkum þjóðum þjóð- um og Spánn er,“ sagði þjálfarinn um stöðu mála hjá íslenska liðinu. hjorvaro@frettabladid.is  Refsað fyrir öll þau mistök sem gerð voru  Íslenska karlalandsliðið í handbolta mætti ofjörlum sínum þegar liðið tók á móti ríkjandi Evrópumeisturum Spánar í öðrum leik sínum á heimsmeistara- mótinu í handbolta karla í München í gær.  Niðurstaðan var sjö marka tap. Gísli Þorgeir Kristjánsson sem lék vel í sínum fyrsta leik á stórmóti sækir hér að spænska markinu. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY 1 4 . J A N Ú A R 2 0 1 9 M Á N U D A G U R12 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT 1 4 -0 1 -2 0 1 9 0 4 :5 4 F B 0 4 0 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 2 0 3 -0 2 E 0 2 2 0 3 -0 1 A 4 2 2 0 3 -0 0 6 8 2 2 0 2 -F F 2 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 4 0 s _ 1 3 _ 1 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.