Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 13.10.2018, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 13. OKTÓBER 2018 kopavogur.is Kópavogsbær Laus störf hjá Kópavogsbæ Grunnskólar · Aðstoðarskólastjóri í Smáraskóla · Frístundaleiðbeinandi í Lindaskóla · Frístundaleiðbeinandi í Hörðuvallaskóla · Frístundaleiðbeinandi í Smáraskóla · Frístundaleiðbeinandi í Snælandsskóla · Kennari á yngsta stig í Snælandsskóla · Matráður starfsfólks í Vatnsendaskóla · Matráður starfsfólks og frístundar í Hörðuvallaskóla · Umsjónarkennari í Vatnsendaskóla · Þroskaþjálfi eða sérkennari í Hörðuvallaskóla Leikskólar · Deildarstjóri í Fífusali · Deildarstjóri í leikskólann Kópahvol · Leikskólakennari eða þroskaþjálfi · Leikskólakennar í Kópastein · Leikskólakennar í Marbakka · Leikskólakennar í Álfatún · Starfsmenn í hlutastarf eftir hádegi · Starfsmaður í sérkennslu í leikskólann Læk Velferðarsvið · Starfsfólk í félagslega heimaþjónustu · Starfsfólk í íbúðarkjarna fyrir fatlað fólk · Þroskaþjálfi / fagaðili á heimili fatlaðra Eingöngu er hægt að sækja um störfin rafrænt á heimasíðu Kópavogsbæjar, www.kopavogur.is, þar sem jafnframt má finna fleiri störf og nánari upplýsingar. Framkvæmdastjóri upplýsingatæknisviðs Laun taka mið af kjarasamningum ríkisins og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til og með 22. október nk. Hlutverk Veðurstofu Íslands er að stuðla að bættu öryggi almennings, eigna og innviða gagnvart öflum náttúrunnar, jafnframt því að styðja sjálfbæra nýtingu náttúrunnar og samfélagslega hagkvæmni. Því hlutverki sinnir starfsfólk Veðurstofunnar með vöktun lofts, láðs og lagar, byggðri á öflun, varð- veislu og greiningu gagna, rannsóknum, þróun og miðlun upplýsinga. Veðurstofa Íslands er opinber stofnun sem heyrir undir umhverfis- og auðlinda- ráðuneytið. Á Veðurstofunni starfa um 140 manns með fjölbreytta menntun og starfsreynslu sem spannar mörg fræðasvið. Auk þess starfa um 70 manns við athugana- og eftirlitsstörf víðsvegar um landið. Starfsemin fer nú fram á fjórum sviðum, en þau verða fimm með tilkomu sérstaks upplýsingatæknisviðs: Athugana- og tæknisvið, eftirlits- og spásvið, fjármála- og rekstrarsvið, úrvinnslu- og rannsóknasvið og upplýsingatæknisvið. Gildi Veðurstofunnar eru þekking, áreiðan- leiki, framsækni og samvinna. Ráðningar hjá stofnuninni munu taka mið af þessum gildum. Nánari upplýsingar um stofnunina má finna á heimasíðu hennar www.vedur.is Veðurstofa Íslands óskar eftir að ráða í nýtt starf framkvæmdastjóra upplýsingatæknisviðs Framkvæmdastjóri sinnir daglegri stjórnun upplýsingatæknisviðs. Þar má meðal annars telja: Ábyrgð á stefnumótun og markmiða- setningu sviðsins Ábyrgð á upplýsingatæknistefnu stofnunarinnar og framfylgd hennar Ábyrgð á rekstri sviðsins, s.s. skipulagi, mannauðsmálum og áætlanagerð Ábyrgð á samskiptum við önnur svið og stofnanir er varða upplýsingatæknimál Þátttaka í alþjóðlegri samvinnu á sviði upplýsingatækni Framkvæmdastjóri situr einnig í fram- kvæmdaráði Veðurstofunnar sem tekur stefnumótandi ákvarðanir fyrir stofnunina. Menntunar- og hæfniskröfur Háskólapróf og framhaldsmenntun sem nýtist í starfi, s.s. í tölvunarfræði, verkfræði eða sambærilegu Farsæl reynsla og yfirgripsmikil þekking á stjórnun Farsæl reynsla við lausn upplýsinga- tækniverkefna Frumkvæði og sjálfstæði í starfi Hæfni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu Hæfni til að miðla upplýsingum Gott vald á íslensku og ensku, bæði munnlegri og skriflegri. Hlutverk og meginverkefni „Framsækni og áreiðanleiki“ eru tvö af gildum Veðurstofu Íslands og endurspeglast þau í víðtæku starfsumhverfi upplýsingatæknisviðs. Sviðið sér um rekstur upplýsingakerfa, not- endaþjónustu, kerfisþróun, DevOps og leggur til sérfræðiþekkingu og ráðgjöf á vettvangi upplýsingatækni. Starfsmenn sviðsins eru að jafnaði um 15 talsins og sinna fjölbreyttu starfi. Vegna sér- stöðu og víðtæks hlutverks Veðurstofunnar við eftirlit með náttúrunni er áhersla lögð á fjölhæfa og mikla getu í kerfisþróun og sérhæfðum kerfisrekstri. Einnig er þörf á víðtækri þekkingu í nýsköpun og getu til samvinnu við önnur svið stofnunarinnar, sem og aðrar innlendar og erlendar stofnanir. Náttúruvárhlutverk Veðurstofunnar krefst jafnframt hás uppitíma kerfa, stöðugs reksturs og yfirgripsmikillar þekkingar á þeim (knowledgeable buyer kerfa), sem og liprar og aðlögunarhæfrar þjónustu. Sviðið skiptist því annars vegar í kerfisrekstur og þjónustu sem veitt er í 24/7 umhverfi og hins vegar hreina kerfisþróun og DevOps. Þörfinni um lipurð og aðlögunarhæfni er mætt með Agile verklagi og þörfinni á stöðugleika með gæðavottun ISO 27001 og ISO 9001. Nánari upplýsingar um starfið veita Inga S. Arnardóttir, inga@hagvangur.is og Gyða Kristjánsdóttir, gyda@hagvangur.is, hjá Hagvangi. Umsækjendur eru vinsamlega beðnir um að sækja um starfið á heimasíðu Hagvangs, www.hagvangur.is Árleyni 8 - 12, 112 Reykjavík  Sími 522 9000  www.nmi.is Umsjón fasteigna Ert þú rétti aðilinn? Nýsköpunarmiðstöð Íslands leitar að: Handlögnum einstaklingi í framtíðarstarf til að annast viðhald og rekstur fasteigna. Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni, svo sem umsjón með fasteignum stofnunarinnar, samskipti við verktaka, umsjón með öryggiskerfi og aðgangsstýringum auk þess að halda utan um verklegar framkvæmdir. Æskilegt er að viðkomandi þekki til gæðakerfa og öryggismála. Áhersla er lögð á fagleg og sjálfstæð vinnubrögð, samskiptahæfni og góða þjónustulund. Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2018 Umsóknir sendist á starf@nmi.is Upplýsingar um starfið veita: Sigríður Ingvarsdóttir, si@nmi.is og Jón Hreinsson, jonhr@nmi.is. Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og SFR - stéttarfélag í almanna- þjónustu hafa gert. Hlutverk Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands er að styrkja samkeppnisstöðu íslensks atvinnulífs og auka lífsgæði á grundvelli rannsókna og þróunar. Upplýsingar um starfsemina er að finna á www.nmi.is. Vantar þig fagmann? FINNA.is Kjötafurðastöð KS óskar eftir viðhaldsmanni Við leitum að metnaðar- og ábyrgðarfullum einstaklingi, sem getur unnið sjálfstætt í mjög fjölbreyttu starfi. Um er að ræða almennt viðhald og umsjón og eftirlit með tækjum og mannvirkjum Kjötafurðastöðvar KS á Sauðárkróki. Starfið getur hentað rafvirkja , vélstjóra eða einstaklingi með sambærilega menntun og/eða reynslu. Allar umsóknir óskast sendar á netfangið edda.thordardottir@ks.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.