Morgunblaðið - 28.02.2019, Page 1
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Keilir er leiðandi menntafyrirtæki í kennsluháttum og tækninýjungum.
Námið í Keili skiptist í fjögur sérhæfð meginsvið sem innihalda fjölbreytt námsframboð. Sviðin
eru háskólabrú, flugakademía, íþróttaakademía og stúdentsbrautir. Þá býður Keilir upp á opin
framhaldsskólanámskeið og undirbúningsnám fyrir bæði framhalds- og háskólanám. Keilir
starfar samkvæmt þjónustusamningi við mennta- og menningarmálaráðuneytið um kennslu
á framhaldsskólastigi.
Keilir, miðstöð vísinda, fræða og atvinnulífs, óskar eftir að ráða framkvæmdastjóra. Leitað er að öflugum einstaklingi sem brennur
af áhuga fyrir nýsköpun í menntamálum.
Nánari upplýsingar veita:
Geirlaug Jóhannsdóttir, geirlaug@hagvangur.is
Sverrir Briem, sverrir@hagvangur.is
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Daglegur rekstur og áætlanagerð
• Stefnumótun og áframhaldandi nýsköpun í skólastarfi
• Samskipti við stjórn, starfsfólk og nemendur
• Samningagerð og eftirfylgni með samningum
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi
• Menntun og/eða reynsla af nýsköpun í skólastarfi
• Marktæk reynsla af stjórnun og rekstri
• Ríkir samskiptahæfileikar
• Reynsla og þekking á stefnumótun og mótun framtíðarsýnar
• Gott vald á íslensku og ensku í bæði töluðu og rituðu máli
• Framúrskarandi leiðtogahæfileikar
VIÐ LEITUM AÐ ÖFLUGUM FRAMKVÆMDASTJÓRA
Umsóknarfrestur er til og með 10. mars nk.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is.
Umsókn skal fylgja ítarleg ferilskrá ásamt kynningarbréfi.
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391