Morgunblaðið - 07.03.2019, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 7. MARS 2019 5
Lögfræðingur/sérfræðingur
á sviði útlendingamála
Dómsmálaráðuneytið auglýsir eftir reynslumiklum lögfræðingi/sérfræðingi til starfa á skrifstofu réttinda
einstaklinga. Skrifstofa réttinda einstaklinga annast stefnumótun, frumvarpasmíði, mótun reglugerða og
reglna og ber ábyrgð á stjórnsýslu í þeim málaflokkum sem undir skrifstofuna heyra. Skrifstofan annast
jafnframt almennt stjórnsýslueftirlit með stjórnsýslustofnunum sem undir skrifstofuna heyra.
Leitað er að einstaklingi til að sinna verkefnum tengdum vinnu við málefni útlendinga. Í starfinu felst vinna
við stefnumótun í málefnum útlendinga og greiningarvinna, þ. á m. að fylgjast með breytingum og þróun í
málefnum flóttamanna og umsækjenda um alþjóðlega vernd. Í starfinu felst einnig vinna við gerð frumvarpa,
reglugerða og reglna og samskipti og samstarf við stofnanir og aðra aðila sem koma að málaflokknum
innlenda sem erlenda. Þá felast einnig í starfinu ýmis önnur tilfallandi verkefni á málefnasviði skrifstofunnar.
Menntunar– og hæfniskröfur
• Fullnaðarnám í lögfræði með embættis- eða meistaraprófi eða önnur menntun sem nýtist í starfi
• Að minnsta kosti þriggja ára starfsreynsla
• Þekking og reynsla af störfum innan stjórnsýslunnar kostur
• Þekking og reynsla af málefnasviði ráðuneytisins, sérstaklega af málefnum útlendinga er kostur
• Þekking eða reynsla af stefnumótun og verkefnastjórnun kostur
• Mjög gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Mjög góð enskukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Góð kunnátta á einu Norðurlandamáli er kostur
• Frumkvæði, drifkraftur og jákvæðni
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum
Laun greiðast samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag
háskólamenntaðra starfsmanna stjórnarráðs hafa gert.
Um er að ræða fullt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð, ábyrgð og sjálfstæði.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst. Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar
sem umsækjandi gerir grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Umsóknir skulu fylltar út á Starfatorgi og er umsóknarfrestur til 25. mars nk. Öllum umsóknum verður svarað
þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Athygli er vakin á því að umsóknir munu gilda í 6 mánuði frá því að
umsóknarfrestur rennur út.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Bára Sigurjónsdóttir,
skrifstofustjóri í síma 545 9000
Stjórnarráð Íslands
Dómsmálaráðuneytið
Intellecta ehf. Síðumúla 5 108 Reykjavík 511 1225 intellecta.is
Intellecta er sjálfstætt þekkingarfyrirtæki stofnað árið 2000. Við vinnum með stjórnendum
við að auka árangur, bæta rekstur og efla stjórnun. Ráðgjafar Intellecta hafa sterkan faglegan
bakgrunn og víðtæka alþjóðlega reynslu. Þennan grunn notum við í samvinnu við viðskiptavini
til að móta hugmyndir sem skipta máli og í innleiðingu lausna sem skila árangri.
RÁÐNINGAR
Starfsmenn eru lykill að árangri allra fyrirtækja.