Morgunblaðið - 30.04.2019, Síða 14
14 | MORGUNBLAÐIÐ
Menn eiga því ekki alveg að venjast að sjá bíl
frá 19. öld á ferð í umferðinni. Rykið hefur
verið dustað af einum slíkum á fornbílasafni í
Einbeck suður af Hannover í Þýskalandi.
Bíllinn er af gerðinni Benz og var smíðaður
árið 1894. Hann hefur verið aðalnúmerið á PS
Speicher-safninu í Einbeck. Um hann hefur
verið vel hugsað og hann er sagður í fínu
standi til aksturs. Á safninu hefur hann verið
geymdur í risastórum glerskáp.
Nú er við því að búast að bíllinn, nefndur
Viktoría gamla eftir heiti undirvagnsins, birt-
ist á vegunum. Í vikunni sem leið voru smíðuð
skrásetningarnúmer fyrir hann og fékk bíllinn
lögreglufylgd á verkstæði af því tilefni. Núm-
erið sem skráð var á hann hljóðar svo: EIN-PS
10H. Mætti af því skilja að vélin hafi verið að-
eins eitt hestafl en svo er ekki; þau eru sex
sem eini strokkur þriggja lítra vélarinnar skil-
aði, en hámarkssnúningshraði hennar er 700
snúningar á mínútu.
Bílar af þessari gerð voru smíðaðir á ár-
unum 1893 til 1900 og var safngripurinn frá
Einbeck sá 99. í röðinni og nýskráður í júlí
1894. Fyrsti eigandi hans var verksmiðjueig-
andi að nafni Alexander Gütemann, en hann
sendi einkabílstjóra sinn eftir honum í Benz-
verksmiðjuna í Mannheim hinn 18. júlí 1894.
Í 11 ár var hann mjög mikið notaður eða þar
til annars konar Benz leysti hann af hólmi.
Var vélin tekin úr og notuð til að snúa vélum í
fyrirtæki Gütemanns. Lét hann síðar gera bíl-
inn upp og vélina líka og í sínu upprunalega
gervi tók hann þátt í ralli til heiðurs Carl Benz
árið 1933.
Bíllinn var í eigu fjölskyldunnar í fjórar
kynslóðir, þar til safnstjórinn Karl-Heinz Reh-
kopf og Gabriele kona hans fengu hann á safn-
ið í Einbeck árið 2008. Í millitíðinni hefur
hann tvisvar verið sendur til þátttöku í forn-
bílarallinu frá London til Brighton á Englandi.
Þá hlaut hann sigurverðlaun í sínum flokki á
Völuströnd í Kaliforníu (Pebble Beach). Það
er þó fyrst nú að hann hefur fengið skráningu
til aksturs í venjulegri umferð. Þegar liggur
fyrir að hann muni taka þátt í fornbílasýningu
sem hefst í Einbeck 28. júlí næstkomandi.
agas@mbl.is
Aldursforseti fær höfuð til að snúast
Viktoría á leið til skráningar hjá bifreiðaeftirlitinu. Benzinn í baksýn er 125 árum yngri.
Kínverjar freista þess að
hasla sér völl í bílsmíði
og það til útflutnings.
Þaðan koma betri og
betri fólksbílar og vænta
Kínverjar þess að geta
gert strandhögg með
rafbílum.
Áhersla þeirra á raf-
bíla hefur glögglega
komið í ljós á alþjóð-
legum bílasýningum víða
um heim undanfarin ár
og misseri. Hug-
myndabíllinn U7 ion frá
Aiways er kraftbirting-
armynd þessa en honum
var teflt fram á bílasýn-
ingunni sem stóð yfir 16. til 25. apríl í
Sjanghæ.
U7 ion þykir endurspegla hönnun fram-
leiðslumódels og jafnvel seríu af hreinum raf-
bílum sem stefnt verður til útflutnings. Þæg-
indin sem honum er ætlað að bjóða upp á eru
einstök. Samþætt sjálfsnámsvélmenni mun
geta fært hluti í innanrýminu til að tryggja
ökumanni og farþegum þægilega íveru öllum
stundum. Í farþegarýminu er að finna 12
skjái, þar á meðal snjallmælaborð í snert-
iskjá, og snertiskjár er sömuleiðis
innbyggður í stýrishjólið.
Aiways mun nú þegar
hafa lokið þróun
jeppa sem
heitir U5
og verður hvað úr hverju hafin raðsmíði á
honum. Er honum stefnt á Evrópumarkað.
Bæði hann og önnur framtíðarmódel Aiways
verða smíðuð í nýrri og fullkominni bílsmiðju
í borginni Shangrao í Jiangxi-héraði.
Aiways var stofnað árið 2017 með það að
markmiði að smíða bíla sem búnir verða nýj-
ustu og fullkomnustu bíltækni á viðráðanlegu
verði. Fróðlegt verður að sjá hvort bílar
Aiways eigi eftir að rata til Íslands.
agas@mbl.is
Nýr rafbíll kynntur
til sögunnar í Sjanghæ
U7 Ion verður hlaðinn nýjustu
bíltækni en samt fáanlegur á
viðráðanlegu verði.
Innanrými U7 Ion verður tæknivætt svo best fari um ferðalanga.