Bæjarblaðið - 03.12.1984, Blaðsíða 30
Bœiorblcidid
Útgefandi: Bæjarblaðið sf. — pósthólf 106 — 300 Akranes — Sími 2974
Ritstjórn: Haraldur Bjarnason, sími 2774 og Sigþór Eiríksson, sími 1919
Ljósmyndir: Gylfi Sigurðsson, sími 1482
Utlit og umbrot: Bæjarblaðið — Setning og prentun: Prentverk Akraness hf.
© Öll eftirprentun auglýsinga, sem settar eru upp sérstaklega fyrirþetta rit,
er stranglega bönnuð án leyfis útgefenda.
Frá útgefanda
Þetta blað sem þú nú heldur á
köllum við Auglýsingahandbók
Bæjarblaðsins og er þetta eina
tölublað þeirrar handbókar á
þessu ári. Auglýsingahandbók-
inni er dreift frítt í öll hús á Akra-
nesi og í nágrenni.
Verslun og þjónusta á Akranesi
er nú orðin mjög fjölbreytt og hefur
aukning orðið þar á með hverju
ári. Er nú svo komið að á Akranesi
er mikill fjöldi sérverslana og þjón-
ustufyrirtækja sem gefa stórversl-
unum höfuðborgarsvæðisins
ekkert eftir, nema síður sé, enda
hafa verðkannanir Verðalgsstofn-
unnar gefið okkur áþreifanlega
vísbendingu um að verðlag á
Akranesi er með því lægsta sem
gerist í landinu.
Útgefandi Auglýsingahandbók-
arinnar er Bæjarblaðið, en það er
sem kunnugt er fréttablað óháð
þólitískum flokkadrætti, sem gefið
Jólastemning á Akratorgi
hefur verið út á Akranesi í rúm
fimm ár.
Ritstjórn Bæjarblaðsins vonast
til þess að þessi nýbreytni í
útgáfustarfseminni hljóti góðar
viðtökur og hvetjum við fólk til að
kynna sér vel það vöruval sem
auglýsingar segja frá.
Akurnesingar!
Jólablað Bæjarblaðsins kemur út 20. desember n.k. Stórt og
vandað blað. — Þeir sem hug hafa á að koma auglýsingum eða efni
í blaðið eru beðnir um að hafa samband sem fyrst, vegna lengri
vinnslutíma blaðsins.
Auglýsingasímar: 2974 — 2774 —1919.