Fréttablaðið - 24.07.2019, Page 9

Fréttablaðið - 24.07.2019, Page 9
Nú á dögum kemur hver skýrslan á fætur annarri um tegundadauða og ástand líf- ríkisins. Sumir sérfræðingar telja að útrýming jurta- og dýralífs sé jafn hættuleg framtíð okkar á jörðinni og loftslagsbreytingarnar. Íslendingar hafa ekki úr háum söðli að detta þegar rætt er um fækkun tegunda og umhverfis- vernd. Saga okkar er ekkert of fögur. Forfeður okkar komu að skógi- klæddu landi en tókst á stuttum tíma að eyða skóginum uns aðeins litlar leifar voru eftir. Geirfuglinn er samt sú tegund sem flestir munu nefna ef spurt væri um útrýmingu tegunda á Íslandi. Haförninn var í stórri hættu þegar hann var frið- aður 1923. Gróðureyðingin vegna of beitar er annað þekkt dæmi sem hver og einn getur séð. Stórfelldasta aðgerðin sem breytti vistkerfinu var þurrkun votlendis sem varð til þess að fjöldi mófugla hvarf þegar kjör- lendi þeirra var spillt. Önnur hætta sem ógnar lífríkinu eru ágengar teg- undir sem íslenskar tegundir geta ekki keppt við. Skýrasta dæmið er minkurinn sem á engan óvin meðal annarra tegunda sem ógna honum. Lúpínan er annað dæmi um ágenga tegund. Allt eru þetta dæmi úr fortíðinni þó ekki sé langt um liðið síðan sumt af þessu átti sér stað. Hvernig skyldi ástandið vera núna? Hér fylgja nokkur dæmi sem líta má á sem víti til varnaðar. Eitt dæmið snertir aðgerðarleysi við verndun silungsstofna við fram- kvæmdir, t.d. laxastigabyggingu, sem veita laxi inn á svæði þar sem fyrir eru staðbundnir og aðlagaðir silungsstofnar. Þetta á einkum við urriðastofna þar eð urriðinn ver í mörgum tilvikum ákveðin svæði og veiðist því upp á skömmum tíma á svæðum þar sem laxveiðar leyfast. Annað dæmi snertir lostaveiði í Þingvallavatni þar sem svokallaður stórveiðimaður veiðir samkvæmt frétt 174 urriða og sleppir svo fisk- unum aftur í vatnið. Þeir fiskar sem lifa af hrekjast að öllum líkindum frá þeim svæðum sem þeir hafa tileinkað sér. Að leyfa níðslu sem þessa í sjálfum þjóðgarði Íslands er háðulegt auk þess sem atferlið veldur röskun á þeim stofni eða deilistofni sem um er að ræða. Þriðja dæmið víkur að veiði á ígulkerjum og öðrum botnbundn- um lífverum. Við þessar veiðar eru notaðir plógar sem rífa upp hafsbotninn og getur hver sem er ímyndað sér hvernig umhorfs er þar sem plógnum hefur verið beitt. Eitt síendurtekið dæmi er lax- eldi í sjó. Ótal sinnum hafa borist fréttir um laxa sem sleppa úr kvíum án þess að framleiðandinn geti einu sinni gert grein fyrir hve margir sluppu. Hér er sleppingin eða strokið samt ekki aðalmálið heldur þær stórfelldu lífríkis- skemmdir sem tengjast þessum framkvæmdum. Hér er ferlið aug- ljóst þar sem dæmin eru fjölmörg frá Noregi, Skotlandi og Írlandi. Við látum okkur nægja þessi dæmi, en af nógu er að taka. Fjölbreytileiki lífríkis og ábyrgð Íslendinga Högni Hansson kennari við Stofnun um umhverfis- vernd og lofts- lagsbreytingar við háskólann í Lundi Úlfur Árnason prófessor emeritus í erfðafræði við háskólann í Lundi Hugsanleg skýring á því sem gerð- ist fyrir aldamótin 2000 er þekk- ingar leysi. Guðmundur Bárðar- son varaði við að færa minkinn inn í landið, en í mörgum hinna dæmanna virðast menn hafa verið í góðri trú. Hvað er að segja um nýjustu dæmin? Lítið sem ekkert virðist hafa verið gert til að sporna við skaðlegu framferði þrátt fyrir að hættan fyrir lífríkið sé augljós. Lax- eldið er svo til það eina sem virðist vera til umsagnar í fjölmiðlum á sama tíma og sókn í annað líf og vistarverur þess er ekki til umræðu. Svo virðist sem verndun lífríkis- ins á Íslandi sé veikburða og sundr- uð á margan hátt og nauðsyn sé á breytingu í stjórnun þessara mála. Í þessu skyni ættu umhverfisyfir- völd að hafa yfirumsjón og heildar- eftirlit með öllum þeim aðgerðum sem snerta íslenska náttúru og íslenskt lífríki. Hér virðist það vera aðkallandi að gera þær breytingar á löggjöfinni sem nauðsynlegar eru til að gera náttúruverndinni hærra undir höfði en nú er þar sem núver- andi umræða virðist í stórum mæli snúast um auðlindir. Þannig virðist verndun þess hluta lífríkisins sem ekki telst til auðlindanna mæta afgangi og stjórnun þess vera á valdi þeirra sem hafa takmarkaðan vilja til að vernda þetta ríki. Umræðan virðist snúast meira um þá röskun sem sést með berum augum eins og utanvegaakstur, en ekki þau spjöll sem eru falin á sjávarbotni. Brottfall tegunda, af brigða og deilitegunda vekur minni athygli. Aðgerða er þörf. Brottfall tegunda, afbrigða og deilitegunda vekur minni athygli. Aðgerða er þörf. PwC | Sími 550 5300 | www.pwc.is PwC á Íslandi er framsækið og traust fyrirtæki sem veitir sérfræðiþjónustu á sviði fyrirtækja- skatta- og lögfræðiráðgjafar, endurskoðunar og reikningsskila. Fyrirtækið er íslenskt og er hluti af alþjóðlegu neti sjálfstæðra fyrirtækja sem aðstoðar viðskiptavini sína við að auka verðmæti, stjórna áhættu og bæta árangur sinn. Reykjavík | Akureyri | Reykjanesbær | Húsavík | Selfoss | Hvolsvöllur | Vestmannaeyjar 2019 Er bókhaldið ekki þín sterkasta hlið? BÓKHALD | LAUN | SKATTUR | RÁÐGJÖF S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 9M I Ð V I K U D A G U R 2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 2 4 -0 7 -2 0 1 9 0 4 :5 5 F B 0 4 0 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 0 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 2 3 7 7 -7 F 9 4 2 3 7 7 -7 E 5 8 2 3 7 7 -7 D 1 C 2 3 7 7 -7 B E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 4 0 s _ 2 3 _ 7 _ 2 0 1 9 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.