Fréttablaðið - 24.07.2019, Síða 10
Núna þegar maður
er kominn með
meira sjálfstraust í meistara-
flokki þá þýðir ekkert
annað en að rífa kjaft við
þessa gæja. Láta finna aðeins
fyrir sér og pirra þá.
2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
Mamma tók mataræðið í gegn
Þrátt fyrir að vera aðeins 16 ára er
Valgeir búinn að taka mataræði sitt
algerlega í gegn. Móður hans leyst
ekkert á blikuna og tók guttann á
beinið. „Ég borðaði ekkert hollt í
fjórða og þriðja f lokki en mamma
tók í mig og fór að láta mig borða
hollara fæði. Ég hef fylgt því og mér
finnst það hafa skilað miklu. Ég er í
miklu betra formi eftir að ég fór að
hlusta á mömmu,“ segir hann hress.
Hann segir einnig að hann sé yfir-
leitt mættur fyrr á aukaæfingar og
noti enn tvær æfingar til að rekja
boltann sem hann lærði í fjórða
flokki. „Það er líka að skila sér. Ég er
með æfingar sjálfur sem ég geri. Ég
er að notast við æfingar sem Arnar
Hallsson, núverandi þjálfari Aftur-
eldingar, kenndi mér í fjórða flokki.
Ég nota þær stöðugt.“
Viðureign Valgeirs og reynslu-
boltans Davíðs Þórs Viðarssonar
vakti athygli í leiknum gegn FH
en Davíð þurfti að grafa djúpt í
reynslubankann til að reyna að
skáka drengnum. „Ég hafði gaman
af þessu. Ég er svolítið svona leik-
maður og núna þegar maður er
kominn með meira sjálfstraust í
meistaraf lokki þá þýðir ekkert
annað en að rífa kjaft við þessa
gæja. Láta finna aðeins fyrir sér og
pirra þá. Ég fylgist vel með fótbolta
og veit vel hver Davíð er og þetta var
skemmtileg viðureign.
Ef maður ætlar að ná langt í fót-
bolta þá þarf að stríða þeim aðeins.
Það þýðir ekkert að vera bara inni á
vellinum og láta valta yfir sig heldur
þarftu að sýna hvað í þér býr.“
Mikið breyst eftir fyrsta markið
Valgeir er alinn upp nálægt Fagra-
lundi og bróðir hans þótti efnilegur
knattspyrnumaður sjálfur. Hann
segist vera mikill HK-ingur og
styðji liðið í blíðu og stríðu. „Ég er
HK-ingur fyrst og fremst og er ekk-
ert að fara breyta um lið enda mikill
HK-ingur í hjartanu þó fjölskyldan
sé lítið í íþróttum. Bróðir minn var
reyndar geggjaður í fótbolta en
valdi lögfræðina. Elsti bróðir minn
er lærður kvikmyndatökumaður
og stjórnmálafræðingur, mamma
er táknmálstúlkur og pabbi er bif-
reiðasmiður.
Á milli leikja þjálfar Valgeir í
knattspyrnuskóla HK. Þar finnst
honum gott að vera og strákarnir
sem voru á æfingu þegar Frétta-
blaðið bar að garði vildu allir verða
eins og hann. Feta í sömu fótspor.
„Eftir markið gegn ÍA fóru allir að
þekkja mig og sýna mér virðingu.
Það er mjög skemmtilegt.
Þeir eru spenntir að sjá mig í f leiri
leikjum og spyrja mikið um liðið
og hvort ég sé ekki að fara að byrja
og f leira.
Þeir eru glaðir að sjá mig koma
á æfingar. Ég þekki líka marga í
stúkunni þegar ég er að klappa
fyrir áhorfendum eftir leiki. Þetta er
alveg pínu skrýtið en samt skemmti-
legt.“
Liggur ekkert á
Valgeir hefur verið orðaður við hin
og þessi lið að undanförnu en hann
er sjálfur ekkert að drífa sig burt. „Ég
er orðinn partur af liði í efstu deild
og er á mjög góðum stað í HK. Ég er
hjá Total Football, þeir eru að sjá um
mín mál en ég er ekkert að drífa mig.
Hér er ég að spila með stóru strák-
unum og æfa undir handleiðslu
þeirra Brynjars og Viktors.
Það er gott að hafa þá og Brynjar
hefur verið okkur innan handar
með næstu skref. Hann hefur hjálp-
að mér að einbeita mér að deildinni
og setja fókusinn á hana en ekki á
næstu skref. Enda liggur ekkert á.“
benediktboas@frettabladid.is
SPORT
Alltaf til taks
Nánar á vodafone.is/fyrirtaeki
Algjörlega
hnökralaust
Vodafone hentar mínum rekstri
best. Þau hafa þjónustað okkur
með allt sem þarf, algjörlega
hnökralaust.
FÓTBOLTI „Auðvitað þýðir ekkert að
slá slöku við. Maður þarf að sinna
sínum störfum hér í HK,“ segir Val-
geir Valgeirsson, leikmaður HK,
en hann er aðeins 16 ára gamall og
hefur slegið í gegn í sumar. Hann
hefur spilað 11 leiki og skorað tvö
mörk. Guttinn krækti svo í víti
gegn FH á mánudag eftir að hafa
sólað nánast hálft FH-liðið upp
úr skónum. Guðmann Þórisson,
varnar buff FH, kippti löppunum
undan honum og er trúlega enn að
snúast í hringi inn í teignum eftir
hreyfingu Valgeirs. Guðmann, sem
mótmælir yfirleitt öllu, hvort sem
það er tilefni til þess eða ekki reyndi
ekki einu sinni að malda í móinn
yfir dómi Þorvaldar Árnasonar sem
hélt um flautuna.
Valgeir svífur þó ekki um á bleiku
skýi. Hann er jarðbundinn drengur
sem var mættur til að sinna fót-
boltaskóla HK þar sem hann er
gríðarlega vinsæll meðal iðkenda.
Einn bað hann meira að segja, þegar
Valgeir var búinn með æfinguna og
á leið í viðtalið, að fresta för sinni í
atvinnumennsku svo að þeir gætu
spilað saman í HK.
„Á undirbúningstímabilinu fékk
ég nokkra leiki. Byrjaði tvo leiki og
kom inn á í nánast hverjum leik. Svo
fór ég á fund fyrir tímabilið með
Brynjari Birni, þjálfara, og hann
lofaði að ég myndi fá einhverjar
mínútur. Ég tók því fegins hendi. Ég
spilaði með öðrum flokki og reyndi
að sanna mig þar líka til að Brynjar
og Viktor Bjarki, aðstoðarþjálfari,
gætu ekki litið fram hjá mér. Ég kom
inn á gegn Víkingi og byrjaði á móti
ÍA og alveg frá fyrstu mínútu var ég
staðráðinn í að halda mér í liðinu.
Að æfa aukalega og æfa af krafti
og hafa trú á mér hefur skilað mér
hingað finnst mér.“
HK-ingur inn að hjartarótum
Valgeir fyrir
utan Kórinn
með nokkra af
drengjunum
sem voru hjá
honum á æf-
ingum. Nánast
alla dreymir um
að feta í fótspor
hans.
FRÉTTABLAÐIÐ/
ERNIR
Valgeir Valgeirsson,
leikmaður HK, hefur
farið mikinn í liðinu.
Hann stefnir hátt en er
þó með báða fæturna á
jörðinni. Hann er gríð-
arlega vinsæll meðal
iðkenda HK sem hann
þjálfar og nýtur þess að
þjálfa hjá félaginu sem
hann elskar.
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
7
-7
A
A
4
2
3
7
7
-7
9
6
8
2
3
7
7
-7
8
2
C
2
3
7
7
-7
6
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K