Fréttablaðið - 24.07.2019, Side 14
Fólk er kynningarblað sem býður aug-
lýsendum að kynna vörur og þjónustu
í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu
er einnig hefðbundið ritstjórnarefni.
Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Benedikt Bóas Hinriksson,
benediktboas@frettabladid.is, s. 550 5763 | Ásta Eir Árnadóttir, astaeir@frettabladid.is, s. 550 5764 | Sandra
Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s. 550 5762 | Sólrún Freyja Sen, solrunfreyja@
frettabladid.is, s. 550 5765 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Kristín Þorsteinsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is, s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 550 5653,
Ég útskrifaðist með seinna háskólaprófið í landslagsarki-tektúr árið 1993 en ég var
svona aðeins farinn að starfa við
þetta árið 1991,“ segir Björn. Hann
er mestmegnis í því að teikna
garða fyrir fólk en veitir einnig
ráðgjöf.
„Það eru til tvær tegundir af
garðeigendum. Þeir sem eru
að rækta upp blómagarð eða
skrúðgarð og svo hinir sem vilja
útivistargarða. Það er seinni
hópurinn sem hefur verið að
leita til mín. Þetta er fólk sem vill
geta grillað úti í garði og vill nota
garðinn mikið. Ég hanna alls kyns
yfirbyggð svæði með hiturum og
heitum pottum og ráðlegg fólki
hvar það getur sett upp markísur
og fleira. Fólk er miklu meira í því
nú en áður að setja upp útieldhús,
kampavínsveggi, eldstæði og föst
húsgögn í garðinum“
Björn segir það nýjasta í garð-
hönnun vera smáhýsi. „Nú má
byggja 15 fermetra smáhýsi í
garðinum með tiltölulega litlum
kvöðum. Fólk nýtir það mikið
við að ná sér í geymslusvæði eða
garðskála í garðinn. Það er alveg
nokkuð borðleggjandi að það
verða kynslóðaskipti í hverfunum
og görðunum þegar eldra fólk
flytur út einbýlishúsunum til að
minnka við sig. Þá er það oft búið
að safna plöntum í áratugi. Fyrir
30 árum voru pallar og stéttir yfir-
leitt þriðjungi minni. Þegar ég kom
fyrst úr námi þá var ég kannski að
teikna 15-20 fermetra palla. Núna
Björn segir vinsælt að setja upp smáhýsi í einkagörðum.
Björn segir mikilvægt að búa til gott skjól svo garðurinn nýtist betur.Björn teiknar garða fyrir fólk í þrívíddarforriti. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
Sandra Guðrún
Guðmundsdóttir
sandragudrun@frettabladid.is
er algengt að þeir séu 70-100 fer-
metrar.
Til að garðurinn nýtist vel sem
útivistargarður er mikilvægt að
hafa gott skjól. Björn segir að þá
þurfi að huga að vindáttunum.
„Það er alveg lykilatriði á Íslandi
að ná fram góðu skjóli í góðviðris-
áttum. Á höfuðborgarsvæðinu til
dæmis þá eru það norðlægar áttir
sem fylgja sól og björtu veðri. Ef þú
nærð ekki góðu skjóli, þá geturðu
bara gleymt þessu,“ segir Björn.
Björn segir algengt að búa til
skjól með þaki svo hægt sé að nota
garðinn allt árið. „Um leið og þú
Framhald af forsíðu ➛
LAXDAL
SUMARSALAN
Skipholti 29b • Sími 551 4422 • www.laxdal.is
skoðið laxdal.is
S Í G I L D K Á P U B Ú Ð
NÚ ENN MEIRI
AFSLÁTTUR
50%-70%
GÆÐAFATNAÐUR
SEM ENDIST, VELKOMIN
LAXDAL ER Í LEIÐINNI
ert kominn með þak er þægilegt
að grilla og þú getur verið með
hitara undir þakinu. Stundum
eru hús staðsett þannig að nánast
ómögulegt er að búa til skjól. En þá
er hægt a setja upp gróðurhús eða
skála. Það eru alls konar lausnir í
boði.“
Mikilvægt að gefa sér tíma
„Það sem ég myndi fyrst og fremst
ráðleggja fólki sem er að flytja í
nýjan garð, hvort sem hann er gró-
inn eða ekki, er að gefa sér tíma. Ég
er til dæmis yfirleitt með þriggja
mánaða biðlista á mína þjónustu,
það skánar aðeins í desember
og lengist aðeins í maí júní. Fólk
þarf fyrst og fremst að hugsa hvað
það ætlar að gera, hvort sem það
það hyggst nota hjálp landslags-
arkitekts, eða skoða Pinterest til
dæmis. Það eru alls konar leiðir til
þess að fá hugmyndir,“ segir Björn.
Björn segir að ef fólk gefi sér tíma
til að ákveða hvað það vill gera og
láti teikna fyrir sig garðinn að vetri
til og leiti eftir það til verktaka til
að framkvæma þá sé líklegra að
garðurinn geti verið tilbúinn að
sumri til. „Ég ráðlegg fólki ekki að
byrja að huga að framkvæmdum
í maí og reikna með að garðurinn
verði tilbúinn 17. júní.
Ef fólk er í vandræðum með að fá
hugmyndir um hvað það vill hafa
í garðinum er sniðugt fyrir það að
ímynda sér að það ætli að halda
garðpartí ársins. Út frá því er hægt
að spá í hvað þarf að vera til staðar.
Það getur verið útieldhús, kampa-
vínsveggur, grillstæði, eldstæði,
sæti, gufubað. Ef fólk tekur þessa
nálgun geta komið skemmtilegar
hugmyndir,“ segir Björn.
Að lokum minnist Björn á að
mikilvægt sé að hugsa um kolefnis-
spor þegar farið er í garðafram-
kvæmdir. „Mér finnst mikilvægt
að leggja áherslu á umhverfis-
vænar lausnir. Það sem heillar
mig mest er að endurnýta efni. Til
dæmis ef fólk er að taka upp hellur
í görðunum hjá sér að endurnýta
þær þá. Það sama gildir um timbur.
Ég væri meira að segja til í að fara í
samstarf við Sorpu um að endur-
nýta efni frekar en að endurvinna
það. Alveg eins er mikilvægt að
hafa í huga lausnir með ofan-
vatnið. Við látum allt of mikið
renna í afrennslislagnir, klóakið
og yfirborðsfráveiturnar. Ég held
það verði stórt mál í framtíðinni að
halda því vatni sem rignir á lóðina
hjá þér inni á lóðinni en veita því
ekki burt.“
Það er alveg lykil
atriði á Íslandi að
ná fram góðu skjóli í
góðviðrisáttum.
Björn Jóhannsson
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 2 4 . J Ú L Í 2 0 1 9 M I ÐV I KU DAG U R
2
4
-0
7
-2
0
1
9
0
4
:5
5
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
3
7
7
-8
9
7
4
2
3
7
7
-8
8
3
8
2
3
7
7
-8
6
F
C
2
3
7
7
-8
5
C
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
0
s
_
2
3
_
7
_
2
0
1
9
C
M
Y
K