Skessuhorn - 06.05.1999, Side 1
VIKUBLAÐ A VESTURLANDI - 17. tbl. 2. árg. 6. maí 1999 Kr. 200 í lausasölu
Búfjárslys flest
á Vesturlandi
Slys af völdum bútjár á þjóðveg-
um landsins á síðasta ári voru
194 þar af voru 59 á Vesturlandi.
Er þetta 30% aukning á landinu
frá síðasta ári. Frá árinu 1988 til
1997 slösuðust 40 manns í árekstr-
um við búfé. Þar af voru tvö
dauðaslys. A Vesturlandi eru áber-
andi flest slys í Borgarnesi og ná-
grenni en á árinu 1998 urðu 33 slys
í umdæmi Borgarneslögreglunnar.
Það eru 56% af öllum slysum í
Vesturlandskj ördæmi.
Tjónagreiðslur vegna eignatjóns
af völdum búfjárslysa skipta tugum
milljóna og sem dæmi má nefna að
greiðslur eins tryggingafélags á ár-
unum 1997 og 1998 námu um 24
millj. kr. Þar af voru greiddar um
14 millj. kr. til bænda. Menn spyr-
ja sig hvað sé til ráða til að stemma
stigu við þessari óheillaþróun. I
byrjun ársins skilaði neínd á veg-
um landbúnaðarráðvmeytis áfanga-
skýrslu. Fjallaði skýslan um leiðir
til að halda búfé frá helstu þjóð-
vegum landsins. Nefndin var sam-
mála um að allsherjarbann við
lausagöngu búfjár væri óraunhæft
við þær aðstæður sem hér ríkja.
Taldi nefndin að árangursríkasta
leiðin væri að girða af fjölförnustu
og hættulegustu vegi með sam-
felldum veggirðingum. Þar sem
vegir eru ekki friðaðir fyrir búfé
gæti komið til greina að setja upp
leiðbeinandi umferðarmerki. Þá
leggur nefhdin einnig til að það
verði stefnt að þjóðarátaki árið
2000 um þá staðreynd, að bílar og
búfé eiga ekki samleið á vegasvæð-
um. Svo er bara að vera tilbúin fyr-
ir árið 2000.
Magmís Helgason
(nemi í starfskynningu)
Þessir vösku samvinnmnenn ráku lesiina ífrtöum flokki trimmara úr Borgamesi semfóru í simi árlega hjólreiðatúr þann 1. maí sl. Þeirfélagar, Jón Ragnarsson, heildsali og Hallgeir
Pálmason trésmiður höfðu dregist aftur úr þegar Ijósmyndara Skessuhoms bar að garði og því tók Hallgeir til bragðs að þeyta lúðurinn en Jón er í símanum, væntanlega að spyrja til
vegar! Mynd: G.E.
insrar í heimsókn
Færeyski heilbrigðisráðherrann,
Helena Damm frá Næstabæ, heim-
sótti Sjúkrahús Akraness síðastlið-
inn sunnudag í fylgd - Ingibjargar
Pálmadóttur heilbrigðisráðherra. I
fylgd með færeyska ráðherranum
voru læknar og hjúkrunarfólk og
fleiri aðilar úr heilbrigðisgeiranum
í Færeyjum. Steinunn Sigurðar-
dóttir, hjúkrunarforstjóri, Sigurður
Kristófer Pétursson yfirlæknir og
Sigurður Olafsson kynntu fyrir
gestunum starfsemi sjúkrahússins
og yfirstandandi breytingar. Færey-
ingarnir voru mjög hrifhir af að-
stæðum á Sjúkrahúsi Akraness og
mikla athygli vakti fiskikerið á fæð-
ingardeildinni sem notað er við
vatnsfæðingar en slíkt mun vera
óþekkt í Færeyjum. G.E.
Guðrún
forseti
Saman tilforystu á Vesturlandi
©
Samanlögð atkvæði félagshyggjufóLks í síðustu kosningum Með tilkomu Samfylkingarinnar eiga Vestlendingar nú kost á að velja sér
hefðu nægt til þess að tryggja tvo kjördæmakjörna þingmenn nýtt afl til forystu undir merkjum jöfnuðar, jafnréttis og réttlætis.
og afgerandi forystu i kjördæminu. Kosningarnar á Laugardaginn
Vegna sundrungar félagshyggjufólks fengu stjórnarflokkarnir snúast um það.
Breytum rétt hins vegar fjóra af fimm þingmönnum Vesturlands.
Samfylkingin loQ
á Vesturlandi /
Kosningamiðstöð Kirkjubraut 14, Akranesi. Sími: 431 3677, fax: 431 3675. Netfang: vesturland@samfylking.is. Veffang: www.samfylking.is