Skessuhorn - 06.05.1999, Page 4
4
“ FUtlMTUt)AGUÉ' 6. MAÍ 1999
Jnfisaum/*.. 5
F.nginn einvaldur
Segir Guðrún Jónsdóttir forseti bæjarstjórnar Borgarbyggðar
Guðrún Jánsdóttir forseti bœjarsyómar íBorgamesi. Mynd.OHR
Á síðasta fundi bæjarstjórnar
Borgarbyggðar var lagður fram
málefnasamningur nýs meiri-
hluta til fyrri umræðu. Borgar-
byggðarlisti og Sjálfstæðisflokk-
ur hafa sem kunnugt er myndað
nýjan meirihluta efrir að slitnaði
upp úr meirihlutasamstarfi
Framsóknarflokks og Sjálfstæð-
isflokks. Á fundinum var Guðrún
Jónsdóttir 2. maður Borgar-
byggðarlista kjörin forseti bæjar-
stjómar en oddviti listans Kristín
Þorbjörg Halldórsdóttir gaf ekki
kost á sér í það embætti þar sem
hún er á fömm úr sveitarfélag-
inu. Guðrún Fjeldsted Sjálfstæð-
isflokki var kjörin 1. varaforseti
en Guðmundur Guðmarsson 2.
varaforseti.
Að sögn Guðrúnar Jónsdóttur
var ákveðið að bæjarráð héldist
óbreytt ffarn að svokölluðum júní-
fundi en á þeim fundi er bæjarráð
kosið til eins árs í senn. Guðrún
sagði meirihlutasamningi Sjálfstæð-
isflokks og Borgarbyggðarlista hafa
verið vel tekið í bæjarstjórninni.
„Við fyrstu umræðu höfðu menn
ekkert við hann að athuga. Við
bindum vonir við að nú geti bæjar-
stjóm farið að starfa af fullum krafti
og takast á við þau málefhi sem
bíða,“ sagði Guðrún. Hún sagði að
þrátt fyrir að sögur hefðu verið á
kreiki um annað hefði alla tíð verið
full samstaða innan Borgarbyggð-
arlistans í myndun meirihlutans.
„Þetta er samstæður og virkur hóp-
ur og við höfum verið samstíga í
öllum okkar aðgerðum. I þessum
hópi er enginn einvaldur heldur
vinna menn saman sem einn mað-
ur:“
Eiríkur settur
bæjarstjóri
Fyrsta verkefni nýs meirihluta er
að auglýsa eftir nýjum bæjarstjóra.
Að sögn Guðrúnar hefur Eiríkur
Olafsson bæjarritari verið settur
bæjarstjóri þar til nýr tekur við.
Umsóknarffestur um starfið rennur
út 13. maí og kvaðst Guðrún vona
að nýr aðili gæti tekið til starfa sem
fyrst.
Varðandi hinar umdeildu lóðaút-
hlutanir við Brúartorg sagði Guð-
rún að næstu daga yrði haldinn
fundur með umsækjendum og þeim
gefið tækifæri til að kynna sín sjón-
armið. Síðan yrði ákvörðun tekin
strax upp úr því.
Umsækjendurnir eru fimm en
ekki liggur ljóst fyrir hversu margar
lóðir eru til úthlutunar við Brúar-
torg en vinnu við deiliskipulag er
ekki að fullu lokið. Aðspurð um
hvort málið yrði ekki leyst með því
að fylla upp nægilega mikið til að
allir fengju lóðir, sagði Guðrún:
„Við vitum ekki hvort allir sætta sig
við að vera á sama stað og endan-
legt deiliskipulag ræðst að nokkru
af fyrirætlunum þeirra sem þarna
munu byggja. Við stefnum hinsveg-
ar að því að hafa nóg framboð af
lóðum fyrirliggjandi bæði í Borgar-
nesi og annars staðar í sveitarfélag-
inu.“
Fækkun nefhda
Á fyrsta bæjarstjórnarfundi hins
nýja meirihluta var lögð fram tillaga
um fækkun nefhda. „Þarna er um
að ræða breytingar á bæjarmála-
samþykktum sem áttu að taka gildi í
lok kjörtímabilsins. Við munum
nota tækifærið á júnífundinum til
að koma þeim á. Menningarmála-
nefhd rennur þá saman við ffæðslu-
nefhd grunnskólans í Borgarnesi.
Félagsmálanefnd tekur yfir störf
Húsnæðisnefndar og Skipulags og
Bygginganefnd tekur yfir málefhi
Veitunefhdar. Fulltrúum í þessum
nefndum verður síðan fækkað í
fimm og því þarf að kjósa í þær á
nýjan leik.“
Guðrún sagði ýmis önnur verk-
efhi bíða bæjarstjórnar. „Eitt af
þeim fyrstu verður að halda til
streitu fundarboði um samráðs-
nefhd sveitarfélaganna á þjónustu-
svæði Borgarness. Fundinum var
ffestað vegna breytinganna hjá okk-
ur og það er að mínu mati mikil-
vægt að þessu máli verði fylgt effir.
Við teljum samvinnu mjög ákjósan-
lega fyrir þessi sveitarfélög," sagði
hin nýkjörni forseti að lokum.
G.E.