Skessuhorn - 06.05.1999, Síða 5
5
■ FIMMTUÐA-GUR'6. MAÍ 1999
ó n a r m i b F 1 os a
H laaræðing
Mikinn ugg hefur sett að íbúum „Borgarfjarðar-
sveitar" vegna stefnumótunar „einkafyrirtækisins"
íslandspósts, en svo virðist sem íslandspóstur
stefni að því að gera pósthúsið í Reykholti óstarf-
hæft svo hægt sé, svo lítið beri á, að leggja það
niður í hagræðingarskyni.
Einkavæðing og hagræðing eru stóru lausnar-
orðin í dag.
Allt sem nöfnum tjáir að nefna skal einkavætt
og þá öðru fremur fyrirtæki sem hið opinbera hefur
sýnt framá að hægt er að græða peninga á.
Þetta er auðvitað í stakasta lagi svo lengi sem
elskulegir fjáraflamenn eignast fyrirtækin, landið,
auðlindirnar og „allt heila helvítis klabbið" einsog
Bör Börson sagði um árið.
Valdhafarnir virðast líta svo á að gæfu íslensku
þjóðarinnar sé þá fyrst borgið ef gróðahyggja auð-
kýfinga situr í fyrirrúmi í öllum greinum sem lúta að
farsæld fólksins í landinu.
Nú er það svo að menningar og menntamál
geta eðli málsins samkvæmt tæplega orðið gróða-
vænleg tekjulind fyrir spekúlanta, né heldur sú
vafasama iðja að vera að reyna að halda lífinu í
veiku fólki, gömlu og örvasa einu nafni pestargeml-
ingum og hefur stundum verið kölluð „heilbrigðis-
þjónusta". í Þýskalandi nasismans lýsti Göring
þeirri skoðun sinni að skjóta ætti hvern þann sem
léti sér um munn fara bannorðið „menning" og var
talinn hafa nokkuð til síns máls.
Mergurinn málsins er sá að til að hægt sé að
reka hallalausa velferð hefur einkaframtakinu hug-
kvæmst að breyta velferðinni í andhverfu sína með
aðferð sem kölluð hefur verið „hagræðing".
Þegar talað er um hagræðingu í dag er aldrei
átt við annað en meiri peninga í kassa einhverra
fyrirtækja eða réttara sagt tilburði manna með
gróðahyggju að leiðarljósi að græða sem mest en
veita sem minnst í staðinn. Lausnarorðið er - Hag-
ræðing - en ekki fyrir fólkið, heldur fjárhirslurnar.
Þegar ég var krakki voru áhrins -og lausnarorð-
in: „Hókus pókus“- „Taktu hár úr hala mínum“ -
„renni ,renni rekkjan mín“- „legg ég á og mæli“
o.s.frv.
Nú er lausnarorðið hagræðing. Hvers vegna
ekki að stíga hagræðingarskrefið til fulls, útrýma
barnakennurum, skjóta menningarfrömuði, sjúk-
linga og gamalmenni og leggja vegagerðina niður í
hagræðingaskyni.
Umfram allt að gefa skít í allt það óhagræði sem
fólkið í landinu þarf að þola vegna „hagræðingar-
innar“ sem kemur auðvitað harðast niður á þeim
sem minnst er hægt að græða á vegna fæðar,
semsagt fólkið í hinum dreifðu byggðum. Reynt
hefur verið með öllum tiltækum ráðum að rýra
þjónustu við fólk sem býr utan þéttbýliskjarnanna.
Og nú virðist semsagt komið að okkur sem borið
höfum gæfu til að njóta rómaðrar þjónustu póst-
hússins í Reykholti.
Tveir „hagræðingar" birtust á dögunum í Reyk-
holti og tilkynntu að hagræðing væri hafin og virð-
ist fyrsta skrefið verða að flokka póstinn í Borgar-
nesi og dreifa honum þaðan sem gæti svosem ver-
ið í lagi ef ekki fylgdi sá böggull skammrifi að Sæ-
mundur hættir að koma daglega, þjónusta sem
háð er samgöngum dregst saman, rútan hættir að
aka um Andakíl og Stafholtstungur daglega, blöðin
hætta að koma nema eftir dúk og disk hvað þá
brauð, vörur og nauðþurftir
Þessari „hagræðingu" virðist stefnt gegn mann-
lífinu á svæðinu 320 Reykholt, gegn verslunar og
hótelrekstri á svæðinu, þjónustu við grunnskóla,
ferðaþjónustu en þó er þetta öðru fremur lítill vísir
að tilræði við íbúa Borgarfjarðarsveitar þar sem
íbúarnir hafa nú svona einsog til tilbreytingar allir
sem einn orðið sammála um sameiginlegt velferð-
armál og gætu þessvegna hætt að þvarga um hel-
vítis veginn. Undirskriftalisti hefur gengið hér og
hefur mér vitanlega ekki einn einasti málsmetandi
maður, eða kona skorast undan að skrifa undir
áskorun til þeirra sem um málið eiga að fjalla að
veita pósthúsinu í Reykholti brautargengi, pósthúsi
sem hefur fengið verðlaun og viðurkenningar fyrir
frábæra þjónustu og er, þrátt fyrir smæð sína eitt af
tíu veltuhæstu pósthúsum á landinu.
Vonandi hreyfir undirskriftalisti íbúanna við
frambjóðendum Vesturlandskjördæmis og hrepps-
nefnd „Borgarfjarðarsveitar", sem gefst nú kjörið
tækifæri til að fjalla um eitthvað sem almenn sam-
staða er um í þessu unaðslega byggðarlagi.
Flosi Ólafsson
Bergi
Soncfan&tattt 6t - S&tCftvtvte&i
Stetu 437 t700 - fax 437 Í0t7
Nýtt á fasteignasöluskrá.
Höfðaholt 6. Borgarnesi.
Einbýlishús 135 m2, ásamt 46,8 m2 bílg. Hús byggt 1979. Skiptist í teppalagða forstofu, parketlagða stofu og sjónvarpshol, 4 svefnherb., eldhús m/dökkri
viðarinnréttingu, baðherb. dúklagt, dökk viðarinnrétting. Búr og geymsla svo og þvottahús. Á verönd er heitur pottur og skjólveggir umhverfis.
Skipti möguleg á minni eign.
Verð: kr. 10.7 millj.
Klettavík 7. Borgarnesi.
Tveggja hæða einbýlishús ásamt innb. bílgeymslu, samtals 239 m2, byggt 197/. A efri hæð er flísalögð forstofa, lítil gestasnyrting. Samliggjandi stofa og borðstofa,
parketlagðar, viður í lofti. Arin í stofu. Eldhús m/viðarinnréttingu, dúkur á gólfi. Á neðri hæð eru 4 svefnherb. 3 þeirra parketlögð og 1 dúkl., öll m/skápum. Baðherb.
er allt flísalagt, sturta/kerlaug, hvít innrétting, geymsla, búr og þvottahús.
Verð: TILBOÐ.
2 sumarbústaðir í Húsafellsskógi - nýbyggingar-
54 m2 að stærð, til afhendingar í júní/júlí ,99. Skiptist í 3 herb. og stofu m/opnu eidhúsi, baðherb. m/útgöngudyr út að væntanlegum heitum potti (pottur ekki innif.).
Geymsluviðbyqqinq. Bústaðirnir afhendast fullbúnir með rafmagni, heitu og köldu vatni. Staðsettir í kjarrivöxnu landi.
Verð: kr. 6,0 millj. hvor.
Fjölritunarstofan, Borgarnesi. (Staðsett að Borgarbraut 4, Borgarnesi)
Rekstur og viðskiptavild svo og allur búnaður og tæki tilheyrandi rekstrinum.
Verð: TILBOÐ.
vors,í'nin<iávélum.
New Holland TSl 10, 100 hestafla með
nýri Ifnu af ámoksturstækjum frá Alö puicke.
Nýja New HollandTN 75D, 75 hestafla fjórhjóladrifin
dráttarvél með vÖkvavendigír. Sérstaklega lábyggð véI.
Bílasími sölumanna 853 0468
B*Pim«BÁVlLAS*N.N<iU.
BUPARDAL 6. MAI KL. 11.00-17.00
HROSSHOLT 7. MAÍ KL. 10.00-17.00
S2
l\EWHOLLA!\C
riíLLÍ L . .
95 hestafla dráttarvél.
. . • . .. . . .
um vortilboð á Fella heyvinnuvélum.
Zetor 7341 fjórhjóladrifin.
Mest seldu dráttavélarnar
á sfðasta ári.
Komið, skoðið og reynsluakið nýjum dráttarvélum
og prófið nýja og byltingarkennda stjórnun á
ámoksturtækjum.