Skessuhorn - 06.05.1999, Side 7
oooih»* x crrT^frrrt*»r.
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
>
7
Sala tóbaks til unglinga á Skaganum
Auðvelt að ná í sígarettur
Samkvæmt athugun sem Skessuhorn framkvæmdi í síðustu viku
Lögum samkvæmt er óheimilt að
selja unglingum undir átján ára
aldri tóbak.
Tilkynningar þess efnis hanga
uppi í flestum verslunum sem
höndla með þennan varning en
samt sem áður virðist vera mikill
misbrestur á að umrædd lög séu
virt. Samkvæmt athugun sem
Skessuhorn gerði á Akranesi að
beiðni nokkurra foreldra, virðast
unglingar á Skaganum eiga auðvelt
með að nálgast tóbak. Blaðið fékk
tvo fimmtán ára unglinga úr Borg-
arnesi til að fara í matvöruverslanir
og bensínstöðvarnar á Akranesi og
kaupa pakka af sígarettum. Þau
Þóra Sif Svansdóttir og Stefán Stef-
ánsson fóru í sjö verslanir og í sex
þeirra fengu þau afgreiddar sígar-
ettur umyrðalaust. I einungis einni
versltm, Skagaveri var þeim synjað
um afgreiðslu. Þau Þóra og Stefán
kváðust hissa á því hversu auðvelt
það reyndist að nálgast tóbakið.
Þau sögðust að vísu ekki hafa látið á
það reyna fyrr þar sem þau eru
reyklaus.
Þess skal getið að krakkamir fóm
aðeins einu sinni í hverja verslun og
því segja niðurstöður athugunar-
innar ekki til um hvort það sé algilt
að unglingar undir lögaldri fái af-
greitt tóbak í viðkomandi verslun-
um.
Grunurinn staðfestur
Skessuhom bar niðurstöður athug-
unarinnar undir Hannes Sigurðs-
son sem sæti á í skólanefnd
Grundaskóla. Hann sagði þessa út-
komu ansi sláandi og staðfesta þann
gmn að reglum um sölu tóbaks til
unglinga væri ekki fylgt eftir. „Eg
hafði gmn um að þessi mál væm
ekki í nógu góðu lagi og hann er
núna staðfestur svo um munar. Eg
lít það mjög alvarlegum augum ef
fimmtán ára unglingar geta nálgast
tóbak fyrirhafnarlaust og það þarf
greinilega að brýna fyrir verslunar-
eigendum að taka þessi mál til al-
varlegrar athugunar;“ sagði Hann-
es.
Reykingar aukast
Hannes kvaðst hafa upplýsingar um
það úr grunnskólunum á Akranesi
að reykingar væra að aukast meðal
nemenda í elstu bekkjunum og þá
sérstaklega í áttunda bekk. „Það var
gert átak í tóbaksvörnum meðal
foreldra 8. bekkjar nemenda á síð-
asta ári. Foreldrar skrifuðu undir
svokallaðan skólasamning sem
gerður var að frumkvæði samtak-
anna Heimili og skóli. Samningur-
inn gekk út á að foreldrar væm í
sambandi varðandi þessi mál og
gætu þannig fylgst betur með því
sem var að gerast. Þessu var síðan
fylgt eftir með ffæðslu og skipu-
lögðum áróðri. Ég trúi því að þess-
ar aðgerðir skiluðu árangri en um
leið og fólk sofnar á verðinum er
viðbúið að allt fari í sama farið.
Fyrir stuttu leit ég inn í báða skól-
ana og sá aðeins eitt plakat í hvor-
um skóla sem varaði við skaðsemi
reykinga. Samt sem áðtu hefur tó-
baksvamarráð boðið ffarn ókeypis
plaköt tvisvar á ári,“ sagði Hannes
að lokum.
Samkvæmt upplýsingum Skessu-
homs er sala tóbaks til unglinga
vandamál víðar á Vesturlandi þótt
ekki hafi verið gerð skipuleg úttekt
á hinum þéttbýlisstöðuntxm.
G.E.
Akveðið hefur verið að hefja fram- mönnum sjúkrahússins á mánudag.
kvæmdir við nýja skurðstofudeild við Gert er ráð fyrir að allt að 12 m. lö-.
Sjúkrahús Akraness. af þessu framlagi ríkissjóðs renni til
Hér er um að ræða breytingar á kaupa á búnaði, þ.e. verksmiðjuffam-
fyrirhuguðum framkvæmdum við leiddum skurðstofum.
sjúkrahúsið og verður óinnréttað Með þessu viðbótarfjármagni
rými á 2. hæð nýtt sem ný skurð- verður þar með ráðist í ffamkvæmdir
stofudeild í stað þeirrar aðstöðu sem og breytingar á sjúkrahúsinu fyrir
fyrir er. um 70 milljónir króna. I máli ráð-
Ingibjörg Pálmadóttir, heilbrigðis herra kom fram að ffamkvæmdum
og tryggingamálaráðherra, ákvað að ætti að geta verið loldð fyrir áramót.
veita viðbótarfé til þessara fram- „Eg tel þetta vera mjög mikilvæga og
kvæmda að upphæð 18 m. kr. en hún skynsamlega ffamkvæmd,“ sagði
tilkynnti þetta á fundi með starfs- Ingibjörg.
ATVINNA - BORGARFJÖRÐUR
KB óskar eftir að ráða
forstöðumann fyrir
KB - Búrekstrarvörur.
Um er að ræða starf við sölu og
innkaup á fóðurvörum og öðrum
rekstrarvörum til landbúnaðar, auk
daglegrar stjórnunar á AB-Mjöli ehf.
Góð menntun, þekking og reynsla
á sviði landbúnaðar og rekstrar
nauðsynleg.
Staðarþekking í Borgarfirði æskileg.
Viðkomandi þarf að geta hafið störf
sem fyrst.
Umsóknir um starfið berist til
Guðsteins Einarssonar,
kaupfélagsstjóra eða
Georgs Hermannssonar fulltrúa,
sem veita nánari upplýsingar
um starfið.
i
1 Kaupfélag Borgfirðinga
1 Egilsgötu 11-19
1 Sími 437 1200
Borgarnesi
Tæknideild Borgarbyggðar
óskar eftir tilboðum í slátt
á grænum svæðum í Borgarbyggð.
Útboðsgögn verða fáanleg á
Bæjarskrifstofu Borgarbyggðar
frá 10. maí nk.
Starfsmaður
óskast til Akraneskaupstaðar
Starfsmaður óskast í hlutastarf (gjarnan verktöku)
til að undirbúa menningardagskrá á Akranesi árið 2000.
Annarsvegar vegna þátttöku Akranesbæjar í verkefninu
"Reykjavík menningarborg Evrópu árið 2000"
og hinsvegar til að vinna að dagskrá
"írskra daga á Akranesi".
Viðkomandi kemur til með að starfa náið með starfshópi sem
bæjarstjórn skipaði til að hafa yfirumsjón með verkinu.
Einnig starfa með hópnum markaðs- og atvinnufulltrúi,
garðyrkjustjóri og menningar- og skólafulltrúi.
Leitað er að sjálfstæðum og duglegum einstaklingi
og er góð þekking á menningarmálum æskileg.
Vinnuaðstaða og laun eru samkomulagsatriði.
Nánari upplýsingarveita: Björn S. Lárusson (sími 431-3327)
og Birna Gunnlaugsdóttir (sími 431-4545).
i
::
Borgarnesi 3. maí 1999
Bærjarverkfræðingur
Borgarbyggðar.
Umsóknir sendist bæjarritaranum á Akranesi merkt
"M-2000". Umsóknarfrestur er til 15. maí 1999
A
Bæjarritarinn á Akranesi