Skessuhorn - 06.05.1999, Page 12
12
FIMMTUDAGUR 6. MAI1999
gffiBSSglgSQBIftl
TIL VINSTRI A GRÆNU
Á VESTURLANDI
Halldór
á þing!
Fylkjum liði um málsvara félagslegs
réttlætis, umhverfisverndar og
þróttmikillar byggðastefnu.
Tryggjum Halldóri Brynjúlfssyni glæsilega kosningu 8. maí.
Setjum x við U-listann!
Vinstrihreyfingin - grænt framboð á Vesturlandi
GK5I
16" pizza
2 áleggstegundir,
9“ hvítlauksbrauð.
kr. 1.490,-
Þessu tilboði fylgir pakki af hraunbitum.
16" pizza
2 áleggstegundir,
með frönskum fyrir 1-2,
kokteilsósa, 2 l. kók.
kr. 1.
Tœkisfœristilboð
Tvœr 16“ pizzur með 2 áleggstegundum,
14" hvítlauksbrauð og 4 lítrar kók.
kr. 2.980,
16“ pizza
2 áleggstegundir,
12“ hvítlauksbrauð ásamt
frönskum fyrir 3, kokteilsósa,
2lkók kr. 1.990,-
Pessu tilboði fylgir askja frá Quality Street
Nýr hótelstjóri
Fosshótel Stykkishólms tók til
starfa 1. maí sl. en eins og fram
hefur komið í Skessuhominu
hefur hótelkeðjan tekið Hótel
Stykkishólm á leigu til 10 ára.
Nýr hótelstjóri hefur verið ráð-
inn, er það heimamaður, Sæþór
Þorbergsson matreiðslumaður.
Sæþór hefur starfað sem mat-
reiðslumaður á hótelinu en lét af
störfiim sl. haust og hefur síðan
starfað á veitingastað Hótel
Esju.
I samtali við fréttaritara á dögun-
um sagði Sæþór að hótelstjórastarf
hafi ekki verið inni í myndinni hjá
sér en þegar forsvarsmenn
Fosshótela hafi boðið sér starfið
hafi honum fundist þetta vera tæki-
færi sem hann gat ekki skorast und-
an. Sagði hann ennfremur að sér
fyndist þetta ekki bara vera stórt
tækifæri fyrir sig og sína fjölskyldu
heldur fyrir Stykkishólm, því rekst-
ur hótelsins hafði verið erfiður í
nokkurn tíma. Með nýjum
rekstraraðilum koma ný tækifæri
og getur þetta orðið mikil lyfti-
stöng fyrir bæinn.
Til stendur að gera einhverjar
endurbætur á veitingasal hótelsins
fyrir sumartraffíkina og hefur inn-
anhúss arkitekt verið að kanna að-
stæður. Fréttaritari snæddi kvöld-
verð á veitingastað Fosshótels
Stykkishólms 1. maí og óhætt að
segja að matur og þjónusta hafi
verið framúrskarandi.
K. Ben.
Heppinn Borgnesingur
Gestur Ellert Guðnason eigandi
verslunarinnar Borgarsport í
Borgarnesi datt í lukkupottinn
þegar hann var dreginn úr hópi
fimm þúsund manna í leik Carls-
berg og Bylgjunnar. Gestur vann
sér þar inn ferð á leik Liverpool og
Tottenham í ensku úrvalsdeildinni
sem fram fór þann 1. maí sl. Hann
fékk að sitja í Carlsberg stúkunni
sem er fyrir VIP (very important
people) og sat þar með eigendum
beggja liðanna og eflaust hefur
hann fengið að hitta frægu leik-
mennina, t.d. Robbie Fowler og
David Ginola. R.J.
Gestur Ellert Gufrnason
Mynd: Ragnar Jónsson.
Þetta ástfangna stokkandarpar tyllti se'r á pollinn við Skagaver á dögunum og kvartaði
sáran undan aðstöðuleysi. Vildi pariðfá að vita hvort ekki Vteri gert ráðfyrir andapolli í
miðbcejarskipulaginu. Mynd: K.K.
Auglýst eftir fuglatjöm
Spjallað við ástfangið stokkandarpar
Blaðamaður Skessuhoms var á
dögunum að sendast með sinn
betri helming í búðir á Akranesi
og rölti með myndavélina um
Skagaverstúnið í vorblíðunni á
meðan hann beið. Gekk hann þá
ekki fram á þetta fallega stokk-
andarpar sem hafði tyllt sér nið-
ur á leysingarpollinn sem árlega
myndast á túninu. Og þar sem
blaðamaðurinn var með dikta-
fóninn á sér ákvað hann að ræða
stuttlega við parið og byrjaði á
því að spyrja hvemig stæði á
ferðum þeirra þama á túninu.
„Við setjumst gjarnan á svona
polla þar sem við rekumst á þá,“
sagði steggurinn. „Ur ijarlægð leit
hann alls ekki illa út en þegar við
vomm sest sáum við að hann hent-
ar okkur ekki. Þetta er allt of
gmnnt og ekki mikið um æti. Við
stoppum ekki lengi.“
Kollan færði sig nær og hvesst
augun á blaðamanninn: „Hvernig
stendur á því að þið Skagamenn
bjóðið ekki upp á betri aðstöðu fyr-
ir okkur en þennan vesæla poll?
Hann er engan veginn nógu góður!
Hvemig er með miðbæjarskipulag-
ið hjá ykkur? Stendur ekki til að
koma upp almennilegri fuglatjörn
eins og tíðkast meðal siðmenntaðra
kaupstaðabúa?“
Nú kom blaðamaður af fjöllum
og varð að sverja af sér að vita
nokkuð um skipulagið í miðbæn-
um.
„Við leggum til að þið athugið
þetta mál fyrir okkur,“ sagði stegg-
urinn hæglátur og ffúin hans kink-
aði kolli og hafði heldur mildast á
svipinn. Blaðamaðurinn sagðist
skyldu athuga málið og stokkand-
arparið kvaddi með mjúku gargi.
Samkvæmt upplýsingum frá
Skúla Lýðssyni byggingarfulltrúa
Akraness liggur ekki fyrir nákvæm
útfærsla torgssvæðisins en unnið
verður sérstakt skipulag þegar þar
að kemur. Um þessar mundir er
miðbæjarskipulagið í endurskoðun
en sú endurskoðun beinist fyrst og
ffernst að byggingarreitum. Skúla
Lýðssyni leist nokkuð vel á hug-
mynd stokkandarparsins.
K.K.