Skessuhorn - 06.05.1999, Blaðsíða 19
—»X-III.. — |
FIMMTUDAGUR 6. MAÍ 1999
19
1—
Penninn
Helsta hlutverk Samfylkmgarinnar
er að brjóta á bak aftur þau öfl sem
stuðlað ha£a að neikvæðri þróun í
íslensku samfélagi undanfarin ár.
Þróun, sem þrátt fyrir góðæri, hef-
ur skilað einum lökustu kjörum ör-
yrkja, aldraðra og bamafjölskyldna
sem þekkjast á Norðurlöndum.
> Þessu verður að breyta. Bara eitt afl
Traust þrenning Samfylldngarinnar á Vesturlandi
í þessum kosningum hefur boðað
breytingar í þessum efitum og það
er Samfylkingin.
I stað stuðnings við raunverulegt
forvarnarstarf á kjörtímabilinu hafa
stjórnarflokkarnir nú, korteri fyrir
kosningar, slett fram Ioforðum um
aukið fé til baráttu gegn fíkniefhum.
Samfylkingin hafnar slíkum vinnu-
brögðum og vill breyta rétt og stuðla
að gagngerum breytingum í stað
skyndiplástra.
Traust og firísk forysta
A Vesturlandi hefur félagshyggjufólk
ákveðið að sameina krafta sína og
myndað sterkan lista fólks sem er til í
þann slag að breyta þessu samfélagi.
Jóhann Arsælsson er sú trausta forysta
sem við treystum til að leiða okkar hóp
og hæfir vel sem fyrsti þingmaður
Vestlendinga. Gísli Einarsson mun
halda áffam að fylgja okkar málum eft-
ir á þingi og glæðir hópinn frískleika,
gleði og hlýju sem einkennir hann hvar
sem hann kemur.
Dóra Líndal Hjartardóttir er nýlið-
inn í hópnum og tryggir kvenfrelsisafl-
inu málsvara. Saman hafa þau á undan-
fömum vikum farið um kjördæmið og
sýnt í verki trausta stefiiu, samheldni
og frískleika. Það er ekki vafi á því að
þessi þrenning mun tryggja okkar hag
best á Alþingi Islendinga á komandi
kjöm'mabih.
Inga
Sigurðardóttir
Inga Sigurðar-
dóttir Akranesi
er kennari og bœjarfulltrúi
Samfylkingarinnar á Akranesi.
Eflum velferðarkeríið
Ein af meginstoðum réttláts samfé-
lags er öflug velferðarstefina sem
byggir á rétti fólks til mannsæmandi
lífskjara, félagslegra réttinda og
mannlegrar reisnar.
Við í Vmstrihreyfingunni - grænu
framboði viljum laga velferðarkerfið
að þörfúm fólksins, efla það og styrkja.
Við viljum að tekjur frá almannatrygg-
ingum og atvinnuleysistryggingum
fylgi almennri launaþróun og verði
óháðar tekjum maka. Fæðingarorlof
verði 12 mánuðir og tryggt báðum for-
eldrum, annist þeir barnið saman. 011
heilbrigðisþjónusta verði greidd af
sjúkratryggingum.
Leggja þarf áherslu á fjölbreytta
kosti í iðnaði og greinum sem byggja á
vistvænni tækni, hugviti og mannauði.
Við viljum að auðlindir sjávar verði
raunveruleg sameign þjóðarinnar og
einstökum byggðarlögum verði
tryggður réttlátur skerfur veiðiheim-
ilda. Smábáta- og bátaútgerð verði lát-
in njóta aukins forgangs á grunnmið-
um næst landi og hvatt til notkunar
vistvænna veiðiaðferða, orkusparnaðar
og umhverfisvænnar þróunnar. Veiði-
rétturinn verði hreinn afhotaréttur.
Leiga veiðiheimilda verði bönnuð og
söluhagnaður veiðiheimilda verði
gerður upptækur gegnum skattakerfið.
Við teljum að mikilvægt sé að koma
á framfæri viðhorfum í umhverfismál-
um og náttúruvernd með stórauknum
þunga inn í íslensk stjórnmál með
áherslu á kröfur um sjálfbæra þróun
samfélagsins, við nýtingu auðlinda og í
atvinnulífinu í heild.
Skammtímahagsmunir, neyslu-
hyggja og gróðafíkn eiga að heyra sög-
unni til. Lífskjör og velferð okkar
mega ekki byggja á því, að náttúru-
gæðum sé spillt og gengið á rétt kom-
andi kynslóða. Við búum við þröskuld-
inn á stjóriðjuverum, sem komin eru til
að vera. Ef við hinsvegar viljum aug-
lýsa landið okkar hreint og ómengað,
verðum við svo sannarlega að halda
vöku okkar. Þeir sem kaupa fiskinn af
okkur og þeir sem vilja selja vistvænar
landbúnaðarvörur til annarra landa
gera kröfur um hreinleika umhverfis.
Og það eigum við líka að gera, - við
sem berum ábyrgð á landinu og eigum
að skila því til komandi kynslóða.
Við eigum að hafa þekkingu og vit
til að bæta lífskjör og búsetuskilyrði í
sátt við náttúruna í okkar fallega landi.
Það er hinsvegar deginum ljósara, að
verði Sjálfstæðisflokkurinn og Fram-
sóknarflokkurinn áffarn við völd, verð-
ur fólksflóttinn af landsbyggðinni sami
og verið hefur. Sömuleiðis mtm bilið
áfram aukast milli þeirra sem hærri
launin hafa og hinna sem þurfa að lifa
af launum sem ekki eru boðleg, - laun
aldraðra, ör-
orkulífeyrisþega
og atvinnu-
lausra. Styrkur
Vinstrihreyfing-
arinnar - græns
ffamboðs að af-
loknum kosn-
ingum mtm einn geta breytt nokkru
hér um. Þess vegna hvet ég Vesdend-
inga tíl að veita þessari nýju og þrótt-
miklu hreyfingu gott brautargengi
þann 8. maí.
Hildur Traustadóttir skipar 2. sati á
lista Vinstrihreyfmgarinnar - grans
framboðs á Vesturlandi.
Hildur
Traustadóttir
Penninn
Framsóknarflokldim áfram í ríkisstjóm!
Enn á ný er komið að því að kjósa
fulltrúa á Alþingi okkar Islendinga.
Kosningabaráttan er í fullum gangi
og endaspretturinn effir. Samfylk-
ingin hefur í kosningabaráttunni
notað kraffana í að óffægja störf
ríkisstjómarflokkanna en lítið not-
að púðrið í að viðra sína stefnu.
Enda ekki nema von, þó talað sé um
nýtt afl í íslenskum stjómmálum er
hér aðeins um að ræða gamalt vín á
nýjum belgjum.
Frjálslyndi flokkurinn með Sverri
Hermannsson í fararbroddi er á sömu
nótunum nema hvað það fer mestur
i tíminn í að benda á einhverja söku-
dólga í þjóðfélaginu sem hugsanlega
gætu verið spilltari en fyrrverandi
bankastjóri Landsbankans.
Gömlu kommarnir hafa svo blandað
umhverfislit saman við lit rauða fánans
og ætla þannig að komast til áhrifa í ís-
lenskri pólitík.
Sjálfstæðisflokkurinn virðist fýrst og
ffemst bæta við sig fylgi á kostnað
samstarfsflokksins í ríkisstjórninni.
Þetta er ekkert nýtt, alltaf þegar Fram-
sóknarflokkurinn hefur verið í ríkis-
stjórn með Sjálfstæðisflokknum hefur
hann tapað fylgi. Það er hollt fyrir
okkur Framsóknarmenn að íhuga það
hvemig á því stendur, kannski höfum
ekki verið nógu öflug í því að koma
sumum okkar málum að í samstarfinu.
Hitt ber þó einnig að athuga að Fram-
sóknarflokkurinn hefur haff á sínum
herðum ráðuneyti sem em að takast á
við erfið og umdeild mál, nægir þar að
nefna heilbrigðisráðuneytið og iðnað-
arráðuneytið. Ráðherrar Framsóknar-
flokksins hafa þó að mínu mati staðið
sig vel í embættum sínum og ættu þess
vegna að njóta sannmælis í því efhi.
Vesdendingar svo og annað lands-
byggðarfólk ætti að þakka Framsókn-
arflokknum fyrir hans þátt í því að
auka atvinnu, ekki síst hér á Vestur-
landi. Við ættum einnig að minnast
þess að Framsóknarflokkurinn hefur
staðið fast á þeirri stefhu að flytja rík-
isstofnanir út á land sem er mikilvægt
byggðamál. Eg gæti talið upp fleiri
Dalabyggð
Auglýsing um kjörfund
vegna alþingiskosninga í
Dalabyggð 8. maí 1999.
Kjörfundir vegna alþingiskosninganna
8. maí
eru sem
Mið-Kjördeild: Stjórnsýsluhúsinu
góð mál sem tengjast landsbyggðinni
og staðið hefur verið vel að á kjörtíma-
bilinu en það yrði of langur listi.
Ekki er ég samt fyllilega sáttur við
Framsóknarflokkinn í ffáfarandi ríkis-
stjórn, ég hefði viljað sjá enn betur tek-
ið á málefnum fjölskyldunnar og
barnafólks í landinu. Eg skora á þing-
menn flokksins að bretta nú upp
ermarnar í þessum málum að kosning-
um loknum, við verðum að lagfæra
mál eins og t.d. réttinn til að nýta per-
sónuafslátt maka að fullu. Einnig þarf
að breyta rétti til fæðingarorlofs á
þann veg að allar konur í landinu,
hvort sem þær vinna á sínu heimili eða
utan þess eigi sama rétt á greiðslu fæð-
ingarorlofs. Eg treysti engum flokki
betur til þess að vinna að þessum mál-
um en Framsóknarflokknum og þess
vegna mun Framsóknarflokkurinn fá
mitt atkvæði nú sem áður.
Halldór Asgrímsson formaður
flokksins hefur orðið fyrir ómaklegum
árásum í fjtilmiðlum í þessari kosn-
ingabaráttu, það á að sverta persónu
traustasta ráðherra Islands með því að
halda því fram að við Islendingar hefð-
um átt að sitja hjá við ákvörðun Nato
um hernaðaríhlutun í Júgóslavíu.
Hvernig í ósköpunum dettur fólki slík
firra í hug, annað hvort erum við í
NATO eða ekki, svona málflutningur
er innantómt bull.
Atkvæði greitt Framsóknarflokkn-
um nýtist ekki bara því hæfa fólki sem
er í fr amboði fyr-
ir flokkinn á
Vesturlandi,
heldur einnig
formanni flokks-
ins til að halda
þeirri áhrifa-
stöðu sem hann
gegnir í stjórn
landsins. Tryggj-
um áffamhaldandi setu Framsóknar-
flokksins í ríkisstjórn Islands. Krossum
við B - listann á kjördag.
Jóhann G. Gunnarsson
aóstoóarskólastjóri Heiðarskóla,
stuðningsmaóur Framsóknarflokksins.
Jóhann G.
Gunnarsson
II
BUJOFUR
VorsCjmnq 3 nj öjurs
á Vtsturlcmdi:
Sýnum glænýjan Valmet traktor með
nýjum vökvaskiptum gírkassa og
loftpúðafjöðrun, einnig Valmet í 100
seríunni með Alu ámoksturstækjum.
En fremur veita sölumenn okkar allar upplýsingar
um TELLEFSDAL rúllupökkunarvélar og
PÖTTINGER rúlluvélar og heyvinnutæki.
Verðum á eftirfarandi stöðum á Vesturlandi:
6.5.99 kl. 12.00-17.00 Hvanneyri
7.5.99 kl. 10.00-17.00 GH verkstæðið Borgarnesi
8.5.99 kl. 10.00-17.00 Vélabær, Bæjarsveit.
10.5.99 kl. 12.00-15.00 Búðardal.