Skessuhorn - 06.05.1999, Blaðsíða 20
20
FIMMTUÐAGUR<5: MAI1999
SiEsautiOEM
Skattahækkanir Sanrfylkmgarinnar
Undanfamar vikur hafa for-
ystumenn Samfylkingarinnar
boðað margþættar skattahækk-
anir.
1. Samfylkingin vill leggja á nýj-
an umhverfis- og mengunarskatt
sem myndi m.a. hækka verð á
bensíni og olíu.
2. Samfylkingin vill leggja auð-
lindaskatt á sjávarútveginn sem
kæmi harðast niður á landsbyggð-
inni.
3. Samfylkingin vill hækka
tryggingagjaldið sem myndi minn-
ka möguleika fyrirtækja á launa-
hækkunum.
4. Samfylkingin vill koma á stig-
hækkandi tekjuskatti sem myndi
m.a. bitna hart á sjómönnum og
ungu fólki sem vill vinna mikið
meðan það er að stofina til heimilis
og koma sér upp þaki yfir höfuð-
ið.
5. Samfylkingin vill stórhækka
fjármagnstekjuskatt sem myndi
draga úr sparnaði, hækka vexti og
leiða til þess að sparifé landsmanna
yrði geymt í erlendum lánastofn-
unum.
Við sjálfstæðismenn boðum ekki
skattahækkanir og ég minni á að
fyrir síðustu kosningar lögðum við
áherslu á að skattar yrðu ekki
hækkaðir. Við þetta hefur verið
staðið og reyndar hefur tekjuskatt-
ur verið lækkaður verulega og ið-
gjald til lífeyrissjóða gert frádrátt-
arbært þannig að einstaklingur
með 2ja milljóna króna tekjur
greiðir nú 110 þúsund krónum
minna í tekjuskatt en hann gerði
fyrir 3 árum.
Það er skýr munur á stefriu sjálf-
stæðismanna og samfylkingarinn-
ar í skattamálum. Sjálfstæðismenn
vilja lækka skatta. Samfylkingin
hefur fundið 5
leiðir til að
hækka skatta.
Þetta þurfa
kjósendur að
hafa í huga
8.maí.
Guðjón Guðmundsson
þingmaöur Sjálfstæðisflokksins.
Guðjón Guð-
mundssm.
Jafnrétti og rétdæti
íslendingar eru hamingju-
samasta þjóð í heimi. Það er að
minnsta kostd niðurstaða úr ein-
hverri skoðanakönnun. Eg ætla
ekki að tjá mig um þessa full-
yrðingu að öðru leyti en því að
segja að Islendingar hafa alla
möguleika á að vera hamingju-
söm þjóð. Við búum í stórkost-
legu landi sem hefur miklar og
margvíslegar auðlindir. Auk
þess búum við við stjómarfar
sem nefnist lýðræði. Forsendur
okkar em slíkar að allir ættu að
hafa nóg til að framfleyta sér og
sínum. Og allir ættu að vera jafn
réttháir. En er það svo? Nei, það
er því miður ekki svo. En það er
ekki þar með sagt að svo geti
ekki orðið. Og þar kemur Sam-
fylkingin til sögunnar.
Eftir að hafa verið sundruð til
margra ára hafa jafhaðar-, félags-
hyggju- og kvenffelsissinnar sam-
einað kraffa sína í stórri og öflugri
hreyfingu og þannig eygjum við
von um að gera annars ágætt sam-
félag betra og réttlátara.
Ein helsta ástæðan fyrir vera
minni í Samfylkingunni er sú að
hún stendur fyrir jafiirétti í víðasta
skilningi þess hugtaks. Jöfnum
tækifæram allra á öllum sviðum
samfélagsins.
Jöfiti tækifæri fyrir alla
I dag er það því miður þannig að
það hafa ekki allir jöfn tækifæri.
Má þar tína til alltof mörg dæmi.
Það að hluti þjóðarinnar, sama
hversu lítill eða stór hann er, búi
við fátækt er algerlega óviðunandi.
Samfylkingin mun beita sér fýrir
afkomutryggingu hvers einstak-
lings sem hafi það að markmiði að
enginn þurfi að búa við fátækt. Það
er mannréttindabrot að fyrirgera
rétti einstaklinga með því að
tengja örorkubætur, ellilífeyri og
námslán við tekjur maka. Þetta
ædar Samfylkingin að afhema þeg-
ar hún kemst tíl valda.
Það er vantar nokkuð á að öllum
séu tryggðir sömu möguleikar til
náms, óháð búsetu og fjárhag. Það
er staðreynd að samkynhneigðir
njóta ekki sömu réttinda og aðrir
þjóðfélagsþegnar og þar er enn eitt
dæmið um misréttið sem viðgengst
í samfélaginu okkar. Heyrnarlausir
hafa ekki fengið táknmál sitt lög-
fest og svona mætti því miður
áfram telja.
Dæmin sem ég nefni hér að ofan
era öll leysanleg og það liggur á að
leysa þau. Okkur ber siðferðisleg
skylda til þess og til þeirra starfa
býður Samfylkingin ffarn krafta
sína. Til þess eram við.
Grandvöllur lýðræðis í nútíma
samfélagi era jafhréttismál. Sam-
fylkingin gerir sér fulla grein fyrir
því og hefur það að leiðarljósi í
stefriu sinni og í öllum sínum verk-
um. Við, kon-
ur og karlar í
Samfylking-
unni, biðjum
ekki um jafn-
rétti. Við
krefjumst
þess!
Hólmfríður Sveinsdóttir,
deildarstjóri frá Borgamesi, skipar
4. sætið á lista Samfylkingarinnar.
Hólmfrííur
Sveinsdóttir.
Já að gefhu tílefiii, eitthvað annað
Vestlendingar nú er komið að
því að kjósa til alþingis. Fram-
bjóðendur hafa riðið um héruð
og biðlað til ykkar hver sem bet-
ur getur. Ekkert lát er á kosn-
ingaloforðum. Það er dustað
rykið af þeim gömlu sem ekki
voru efhd, sem eru ófá og þau
eru notuð aftur og aftur. Fjöl-
miðlar eru fullir af auglýsingum
um ágæti frambjóðenda sem eru
að koma sér á framfæri. Ljóst er
að hér eru stjómmálamenn og
flokkar að kaupa sér ímynd og
koma vörunni á ffamfæri.
Allt kostar þetta peninga og það
mikla. Aldrei áður hafa flokkar
eytt og sóað jafn miklu fé og nú.
Sumir til að kaupa sig ffá eigin
verkum, meðan aðrir reyna að
kaupa sig til valda. Hvaðan kemur
allt þetta fé? Væri það ekki betur
komið annarsstaðar?
ÞESSIR PENINGAR KOMA
FRÁ ALMENNINGI, OKKUR
ÖLLUM.
Stjórnmálaflokkarnir era styrkt-
ir af skattfé til að halda uppi stjóm-
málastarfi, þeir stærstu fá mest þeir
minnstu minnst. Þessu fé er ætlað
að standa undir kostoaði við fundi
og lýðræðislegt stjórnmálastarf en
ekki til að flikka upp á misgóðar
ímyndir einstakra frambjóðenda.
Hverju hafa öll fögra loforðin
skilað okkur? Svari nú hver fyrir
sig. Er góðærið margumtalaða í
ykkar buddu? Já góðærið er í
buddum sumra en ekki allra, þeir
sem minnst höfðu fýrir hafa hlut-
fallslega enn minna núna. Það er
nefnilega svo að góðærið er ekki
almenningseign heldur fárra útval-
inna sem ríkistjórnaflokkarnir
standa vörð um. A seinni áram
hefur misskipting auðs og valda
vaxið og dafnað enda vel hlúð að
þeim sem meira mega sín, hinir
mega éta það sem úti ffýs. Þökk sé
Davíð og Halldóri.
Vestlendingar, það er ekki
seinna vænna að staldra við og
hugleiða hvaða kosti við viljum.
Viljum við góðæri fýrir suma? Vilj-
um við illa blandaða málefna-
snauða samsuðu Samfylkingarinn-
ar þar sem breitt er yfir innantóma
stefhuskrá með
rándýram aug-
lýsingum?
Já þetta skul-
um við hug- Birna Kristín
leiða þessa síð- Lárusdóttir
ustu daga fýrir
kosningar og velja síðan besta
kostinn í kjörklefanum. Kjósum U
listann.
Birna Kristín Lárusdóttir.
Brunná Dalasýslu
Samfylkingin ætiar að hækka skatta !
Á þessu kjörtímabili hefur
Framsóknarflokkurinn staðið að
því að lækka skatta á almenning
og atvinnulíf á Islandi. Minni
opinberar álögur á atvinnufyrir-
tæki veita þeim aukið svigrúm
til þess að greiða starfsfólki
hærri laun. Lægri skattar á al-
menning auka kaupmátt og gef-
ur fólki aukið fjárhagslegt svig-
rúm. Framsóknarflokkurinn vill
halda áfram á þessari braut og
bæta hag fólks og atvinnulífs
enn frekar.
Samfylkingin boðar auknar
álögur á fólk og atvinnulíf, það
hafa ffambjóðendur þessa kosn-
ingabandalags staðfest í pólitískri
umræðu. Atdmar álögur á atvinnu-
fýrirtæki minnka möguleika þeirra
til þess að greiða hærri laun og
valda því að auknir rekstrarerfið-
leikar atvinnufyrirtækja draga
veralega úr uppbyggingu atvinnu-
lífsins og almennum umsvifum í
þjóðfélaginu. Auknar álögur á fólk
í landinu minnka kaupmátt launa
og almannabóta og þrengir þar
með að fjárhagsiegu svigrúmi þess.
Framsóknarflokkurinn vill auka
tekjur fólksins í landinu, atvinnu-
fýrirtækja, ríkissjóðs og sveitarfé-
laga með því að efla atvinnulífið al-
mennt, auka fjárfestingu í landinu
og auka verðmætasköpun. Þannig
má halda uppi áffamhaldandi hag-
vexti, sem leiðir til aukins kaup-
máttar og velsældar þjóðarinnar.
Framsóknarflokkurinn hefur unn-
ið á þennan hátt á þessu kjörtíma-
bili og þannig viljum við halda
áffam enda hefur hagur þjóðarinn-
ar batoað mjög og mikill efnahags-
legur árangur náðst.
Samfylkingin telur sig geta auk-
ið tekjm ríkissjóðs með aukirmi
skattheimtu og álögum á fólk og
atvinnufýrirtæki. Vinstri menn á
Islandi hafa áður unnið effir slík-
um hugsjónum en þá beið þjóðar-
skútan alvarlegt skipbrot.
Það væri ótrúleg staðreynd ef
kjósendur vilja nú á uppgangstím-
um stefha hag sínum í tvísýnu og
kjósa yfir sig aukna skattheimtu,
efnahagslegan óstöðugleika og
óvissu. Við ffamsóknarmenn skor-
um á kjósendur að veita B-listan-
um brautargengi til að halda áfram
á þeirri braut sem við höfum verið
á, þjóðinni til
hagsbóta. Við
skorum jafn-
framt á kjós-
endur að hafha Magnús Stefánsson
skattahækkun-
um Samfylk-
ingarinnar í Alþingiskosningunum
þann 8. maí nk.
Magnús Stefánsson alþingismaður,
skipar 2. sæti á B-lista
Framsóknarflokksins.
Aðsendar greinar sendist: lundi@aknet.is