Skessuhorn - 10.06.1999, Page 1
SKESSUHukN
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI - 22. tbl. 2. árg. 10. iúní 1999 Kr. 200 í lausasölu
Við skógarhögg. Bjami Sigurðsson í Borgamesi gaf þrautreyndum skógarhöggsmmnum ekkert eftir á Umhverfisdegi Vegagerðarinnar í síðustu viku.
Stykkishólmur:
Bæjarstjóri
hættir
Olafur Hilmar Sverrisson sem
gegnt hefur starfi bæjarstjóra í
Stykkishólmi síðastliðin átta ár
hefur sagt upp störfum. Upp-
sögnin er af persónulegum
ástæðum og tengist ekki störfum
hans sem bæjarstjóra enda sagði
Rúnar Gíslason forseti bæjar-
stjórnar Stykkishólms að bæjar-
stjórnin hefði gjarnan viljað halda
Ólafi lengur. Þá fóru fulltrúar
minnihlutans einnig lofsamlegum
orðum um störf Olafs Hilmars á
bæjarstjórnarfundi þar sem upp-
sögnin var tilkynnt.
Að sögn Rúnars hefur þegar
verið auglýst eítir nýjum manni í
starfið og kvaðst hann vonast til að
bæjarstjóraskiptin gæm átt sér stað
snemma í haust.
G.E.
Flúðu til fjalla en náðust
Þrír menn úrskurðaðir
Tveir innbrotsþjófar sem létu
greipar sópa á Akranesi aðfaranótt
laugardags voru handteknir á laug-
ardaginn í fjallshlíð fýrir ofan
Svínavam efrir dálítinn eltingarleik.
Höfðu þeir brotist þar inn í sumar-
bústað og lagt á flótta til fjalla þegar
eigandi bústaðarins kom að þeim.
Þeir voru síðan handsamaðir af
lögreglumönnum úr Borgarnesi og
ffá Akranesi. Þriðji maðurinn sem
er talinn átt hafa hlut að máli var
handtekinn fýrr um morguninn á
Akranesi og hafa mennimir verið
úrskurðaðir í gæsluvarðhald.
Að sögn Viðars Stefánssonar
lögreglufulltrúa á Akranesi er talið
að þessir menn hafi farið í 7 bíla
víðsvegar um Akranesbæ og einnig
brotist inn í íbúð þar sem fólk var
sofandi. Þar höfðu þeir á brott með
sér skartgripi og annað fémætt.
Gerðu þjófarnir tilraun til að brjót-
ast inn í fýrirtæki Vignis G.
Jónssonar en þar fór þjófavarna-
kerfi í gang og lögðu innbrots-
mennirnir á flótta við svo búið án
þess að stela neinu. Brotist var inn í
Vélsmiðju Olafs R. Guðjónssonar
og stálu þjófarnir þar tölvu, símum
og fleiru og einnig stómm sendibíl
sem þeir héldu á brott á með
fenginn.
Bíllinn fannst við Svínavam, í
landi Þórisstaða, og í honum ýmis
verkfæri stór og smá úr skemmu í
í gæsluvarðhald
Hvalfjarðarstrandarhrepps skammt
ffá Ferstiklu sem einnig var brotist
inn í. Sumarbústaðaeigandi kom að
þjófunum í bústað sínum snemma á
laugardagsmorgninum. Lögðu þeir
á flótta til fjalla þar sem þeir reyndu
að fela sig en vora handsamaðir af
lögreglu eins og áður segir.
I bústaðnum höfðu innbrots-
þjófarnir tínt ýmislegt fémætt
saman í poka en skildu eftir þegar
þeir flúðu til fjalla.
Viðar Stefánsson lögreglufulltrúi
sagði að þama hafi verið á ferð
velþekkrir góðkunningjar lögregl-
unnar, eða með öðram orðum
síbrotamenn sem oft hefðu komist í
kast við lögin. Hann segir að með
opnun Hvalfjarðarganga sé syðsti
hluti Vesturlands orðinn hluti af
sama brotasvæði og brýnir Viðar
fýrir fólki að læsa bifreiðum sínum
og húsum.
K.K.
Ferðasaga
frá
Frakklandi
Opið 8 til 23:
Kjúklingaborgari m/ frönskum
og super Coce.
fcr. 550^«^®-«®