Skessuhorn - 10.06.1999, Blaðsíða 10
I'
Aý’tf' J* VlMo
10
vvLl'úZVÚ rb ; V:1 -v-' ■. V ' i ' V -'l iN
FIMMTUDAGUR 10.JÚNÍ 1999
^ficssunu^
Hverjir eru mennimir?
Ef einhver þekkir þessa snáða vinsamlegast hafið samband við Jón-
ínu Guðmundsdóttur í síma 431 4131.
Nýsýningí
Snorrastofa
Sunnudaginn 13. júní kl. 14
verður formlega opnuð í Snorra-
stofu í Reykholti sýningin „I
skuggsjá nútímans“. Meginþemað
er margvísleg úrvinnsla úr fornum
menningararfi Islendinga. Verður
sjónum beint að ýmsum formum
þessarar úrvinnslu, þó einna helst
útgáfustarfsemi og rannsóknum í
handritafræði, bókmenntaffæði og
fornleifaffæði. Sýningin er sett upp
í samvinnu við Stofnun Arna
Magnússonar á Islandi, Þjóðminja-
safnið og Safnahúsið í Borgarnesi.
Borgfirðingnum Jóni Helgasyni
frá Rauðsgili, prófessor í Kaup-
mannahöfn, verður tileinkaður sér-
stakur sýningarhluti, sem unnin er í
náinni samvinnu við Arnastoffiun.
Ennfremur verður aldarafmælis
Jóns minnst með veglegri dagskrá í
Reykholti þann 26. júní n.k.
I öðrum sýningarhluta verður
fornleifarannsóknum í Reykholti
gerð skil í máli og myndum fyrir
ferðamenn og aðra sem áhuga hafa
á ffamvindu mála og uppgröfturinn
tengdur heildarþema sýningarinn-
ar. Undirbúningur þessa þáttar var
unninn í samvinnu við Þjóðminja-
safn Islands. Sýning af þessari gerð
er nýjung á Islandi auk þess sem
sjálfar fornleifarannsóknirnar eru í
anda nýrra strauma í rannsóknum.
I Reykholti er markmiðið að víkka
út fornleifarannsóknimar og gera
þær að fjölfaglegri rannsókn og afla
þannig nýrrar vitneskju, ekki síst
um 13. öldina. Fyrirhugað er að
tefla saman rannsóknum á staðnum
á sviði fornleifafræði, sagnfræði,
bókmenntafræði, handritafræði og
náttúmvísinda í því skyni að sögu
byggðar á staðnum megi skoða í
nýju ljósi og í víðara samhengi en
áður.
Nokkrar útgáfur af verkum
Snorra Smrlusonar verða til sýnis,
þ.e. Heimskringla, Snorra-Edda og
Egla. Safnahús Borgarfjarðar hefur
á undanförnum ámm komið sér
upp góðu safni af fágætum útgáfúm
á þeim fomsögum, sem tengjast
Borgarfirði, og hafa nokkrar þeirra
verið fengnar að láni til sýningar-
innar. Þá verður eitt sýningarpúlt
tileinkað þeirri merku og veglegu
gjöf er Snorrastofu barst nýlega,
þ.e. bókasafni dr. Jakobs Benedikts-
sonar. Síðast en ekki síst verða til
sýnis bækur, sem gefnar vora ffá
Háskólanum í Gautaborg í tilefni
sýningarinnar.
Ferðaþjónustan Heimskringla
annast vörslu sýningarinnar. Hún
er opin ffá kl. 10 til 18 alla daga
vikunnar yfir sumarmánuðina og
eftir samkomulagi á vetram. Að-
gangseyrir er 300 kr.
Akraneskaupstaður
- skólaskrifstofa
Gangaverðir óskast
Við Grundaskóla eru lausar stöður
tveggja gangavarða.
Ráðningartími erfrá lokum
ágústmánaðar til eins árs a.m.k.
Grundaskóli er reyklaus
vinnustaður.
Launakjör skv. kjarasamningi STAK
og Akraneskaupstaðar.
Umsóknarfrestur er til 18. júní n.k.
Umsóknareyðublöð eru á
bæjarskrifstofu. Nánari upplýsingar
veitir Guðbjartur Hannesson
skólastjóri í síma 431-2811.
Menningar-
og skólafulltrúi
Bylgjulestin á Vesturlandi
Hemmi í Borgamesi
og Hólminum
Hin geysivinsæla Bylgjulest er
nú komin á skrið annað árið í
röð og rennur áffam hringinn
um landið og stendur fyrir fjöl-
skylduskemmtunum á hinum og
þessum stöðum um hverja helgi
í sumar. Skessuhom ræddi við
lestarstjórann, Hermann Gunn-
arsson, en lestin verður einmitt í
Borgamesi um næstu helgi.
„Það er gaman að segja frá því að
við verðum á tveimur stöðum á
Vesturlandi í sumar, í Borgarnesi
og Stykkishólmi en í fyrrasumar
urðu Vesdendingar út undan hjá
okkur,“ sagði Hermann. „Við byrj-
uðum í Vestmannaeyjum um síð-
ustu helgi og þar fengum við 3000
gesti í sól og sumaryl og það er
óhætt að segja að það hafi verið
allsherjargleði og sæluvíma enda
ábyrgjumst við að allir geti fundið
eitthvað við sitt hæfi í þeirri fjöl-
breyttu dagskrá sem við bjóðum
upp á. Næsta stopp verður síðan í
Borgarnesi á laugardag og þar á
eftir er það Stykkishólmur.“
Að sögn Hermanns er boðið upp
á dagskrá sem hentar allri fjöl-
skyldunni ffá kornabörnum og upp
úr. „Við eram með stanslausa dag-
skrá í fimm klukkutíma og aldrei
slakað á. Með okkur í för er ein
allra vinsælasta hljómsveit landsins,
Skítamórall og þeir slá upp tónleik-
um, Laddi sýnir nokkur af sínum
þúsund andlitum og galdrakarlinn
Pétur pókus töfrar alla upp úr
skónum. Við veljum sumarstúlku
Séð og heyrt og Bylgjunnar á
hverjum stað og höldum und-
ankeppnir í elstu íþróttagrein Is-
lendinga, sjómanni. Þá fáum við til
Hinn sívinsœli Hemmi Gunn
liðs við okkur skemmtikrafta úr
hverju byggðarlagi fyrir sig. A
staðnum verða einnig leiktæki af
öllum stærðum og gerðum fyrir
krakkana og ekki má heldur gleyma
stórmeistarafjölteflinu. Helgi
Olafsson skáksnillingur teflir fjöl-
tefli við alla sem vilja, þessvegna
heilu fjölskyldumar ef því er að
skipta. Styrktarfyrirtækin okkar
kynna sína vöru og þjónustu á
staðnum og fólk getur sleppt há-
degismatnum því það verður nóg
að bíta og brenna. Þegar dag-
skránni lýkur á sviði taka kraffa-
jömarnir við með Hálandaleikana
þar sem kröftugustu karlar landsins
og erlend tröll reyna krafta sína.
Það er gaman að segja ffá því að
strax á öðra ári lestarinnar eru
sveitarfélög farin að hafa samband
og biðja um að fá okkur á stað-
inn,“sagði Hemmi að lokum.
Dagskrá Bylgjulestarinnar hefst
kl. 13.15 á Kaupfélagsplaninu í
Borgarnesi og um kl. 16.00 hefjast
Hálandaleikarnir á planinu við
Hraðkaup.
G.E.
" d ■ J
| t|
: ■'í: ::::£ :vi:
|
Sigrún forstöthimaður Norska hússins við nokkur verka Kiistins Mynd: G.E.
Þj óðsagnarmynd
í Norska húsinu
Síðastliðin laugardag var opnuð
sýning á verkum Kristins Péturs-
sonar listmálara. Á sýningunni era
12 raderingar sem allar bera heitið
þjóðsagnarmynd. Verkin era í eigu
ASÍ en það er Verkalýðsfélag
Stykkishólms sem býður gesmm
Norska hússins upp á sýninguna.
Gjöf til
Grundarfj arðarkirkju
Á sjómannadaginn var Grandar-
fjarðarkirkju færð höfðingleg gjöf,
Biblía og eitt hundrað sálmabækur,
til minningar um Zoffanías Cecils-
son útgerðarmann sem lést í vor.
Gefendur era Hulda Vilmundar-
dóttir eiginkona Zoffamasar, böm
þeirra, tengdabörn og barnabörn.
G.E.
Heycjarfrfiharcih
Skráð á skinn
I síðasta tölublaði Skessuhorns
var á baksíðu fjallað um bókun
Guðrúnar Fjeldsted bæjarfull-
trúa í Borgarbyggð þar sem hún
gerði athugasemd við úthlutun
lóðar til KB. Haff var eftir Guð-
steini Einarssyni kaupfélags-
stjóra að bókunin væri fyrir neð-
an beltisstað. Reyndur fúndarrit-
ari á félagssvæði KB velti þessu
fyrir sér og komst að þeirri nið-
urstöðu að hafi verið bókað fyrir
neðan beltisstað þá hlyti það að
vera skráð á skinn. Annars vora
hans hugleiðingar á þennan veg:
Enginn nema Guðsteinn getur
greinilega upplýst hvað
Guðrún Fjeldsted færði í letur
fyrir neðan beltisstað.
Skorpulifur í
skarkolanum
Eins og komið hefúr ffam er
skarkolastofninn í Faxaflóa sýkt-
ur og er sagt að sýkmgin komi
m.a. fram í lifur fisksins. Effir
mikil heilabrot þykjast sérffæð-
ingar Haffó vera búnir að kom-
ast að því hver skýringin er en
hún er einfaldlega sú að blessað-
ur flatfiskurinn þjáist af
skorpulifur. Það sem veldur er
náttúrlega allur spírinn sem
smyglarar henda við Garðskag-
ann og berst þaðan með straum-
um inn í Flóann..
Hjá rakaranum
Maður nokkur stakk höfðinu
inn fyrir dyrnar hjá Jónasi rakara
og spurði „Hvað er langt þangað
til ég get fengið klippingu?“
Jónas rakari leit í kringum sig og
sagði „Um það bil tveir tímar,“
og maðurinn fór affur.
Nokkrum dögum seinna kom
þessi sami maður, stakk höfðinu
inn fyrir dyrnar og spurði „Hvað
er langt þangað til ég get fengið
klippingu?" Jónas horfði um stof-
una og sagði: „Um tveir tímar.“
Maðurinn fór.Vtku seinna kemur
maðurinn í þriðja sinn, rekur höf-
uðið inn um dyrnar og sagði
„Hvað er langt þangað til ég get
fengið klippingu?“ Jónas athugaði
og sagði „um það bil einn og hálf-
ur tími.“ Maðurinn fór. Jónas
kallaði á vin sinn og sagði
„Heyrðu, Guðmundur, eltu
þennan mann og segðu mér hvert
hann fer.“ Effir smá tíma kom
Guðmundur aftur og hló hátt.
Jónas spurði „Hvert fór hann,
þessi náungi, efdr að hann var
hérna?“ Guðmundur gerði hlé á
hlátrinum og sagði „Heim til þín!“
Faðir og sonur
Eitt kvöldið kom Magga að
Jónasi þar sem hann stóð yfir
vöggunni sem nýfæddur sonur
þeirra svaf í. Hún passaði sig að
láta ekki heyra í sér og fylgdist
með honurn. Þama stóð hann og
horfði á barnið og hún sá á andliti
hans blöndu af ýmsum hughrifúm:
vantrú, efa, fögnuð, undrun,
hrifningu, tortryggni. Magga varð
snortin af þessum djúpstæðu til-
finningum eiginmannsins, og tár-
vot smeygði hún handlegg sínum
utan um hann. „Segðu mér hvað
þú ert að hugsa,“ sagði hún blíð-
lega. „Er þetta ekki fúrðulegt?“
sagði Jónas. „Eg bara skil ekki
hvernig nokkur maður getur
smíðað svona vöggu fyrir aðeins
12.850 krónur.“