Skessuhorn - 15.12.2004, Side 2
2
MIÐ VIKUD AGURl 5. DESEMBER 2004
OllÍiðð UtlUlw
Til minnis
|ú, þetta er óvenjulega
erfitt hjá mér og miklar
annir. Börnin á Vesturlandi
eru meö þægara móti og
viö bræöurnir þurfum aö
fara á nánast hvern einasta
glugga þar sem börn er aö
finna. Þó er eitthvað um að
við þurfum aö útdeila
skemmdum kartöflum, en
það er minna en verið hef-
Stúfur var þriöji jólasveinn-
inn sem kom til byggöa og
sat Ijósmyndari Skessuhorns
fyrir honum síöla nœtur.
Ve&Hrhörfwr
Á fimmtudag verður norð-
læg átt og él, en austlægari
á föstudag og él um allt
Vesturland. A laugardag,
sunnudag og mánudag
verður vestlæg átt og ofan-
koma, en úrkomulítið aust-
antil. Frost yfirleitt 0 til 8
stig.
SpMrnintj viktfrmar
I síðustu viku voru lesendur
Skessuhornsvefjarins spurð-
ir hvort leggja ætti emb-
ætti Forseta íslands niður.
Mótfallnir því að leggja
embættið niður voru
68,5% en fylgjandi því
28,1%. 3,4% höfðu ekki
skoðun á því.
í þessari viku er spurningin:
Hlakkar þú til
jólanna?
Svarið skýrt og
skilmerkilega á
www.skessuhorn. is
Jólatónleikar í boði Spari-
sjóðs Mýrasýslu á morgun,
fimmtudag, kl 20:30 á Hót-
el Borgarnesi. Þar koma
ýmsir kórar úr héraðinu
fram og flytja jólalög. Upp-
lagt tækifæri til að koma
sér í réttu jólastemninguna.
Er ekki mikib a5
qera þessa dagana
Stúfur?
Útlitsteikning af væntanlegu tveggja hæða fjölbýlishúsi við Borgarbraut 36-38 í Borgarnesi. Staðsetningin er
góð, miðsvæðis í bænum, stutt f skóla og fþróttamannvirki og verslun og þjónustu.
Fyrstu íbúðimar byggðar
eftir langt hlé
Senn líður að lokum a.m.k.
þriggja ára hlés í íbúðabygg-
ingum í Borgarnesi því síðar í
þessari viku verður tekin fyrsta
skóflustungan að nýju 10
íbúða, tveggja hæða fjölbýlis-
húsi við Borgarbraut 36 - 38.
Það er fyrirtækið Hlíðarendi
ehf. sem byggir en það er í eigu
byggingaverktakanna Olafs
Axelssonar og Stefáns Olafs-
sonar. Með þeim í fram-
kvæmdunum eru synir þeirra
þeir Hlynur Olafsson og Jó-
hannes Stefánsson.
Þarna taka saman höndum
tveir þrautreyndir bygginga-
verktakar og drífa í gang bygg-
ingu fyrstu íbúðanna í Borgar-
nesi eftir alltof langt hlé, eins
og þeir orða það sjálfir. „Við
erum báðir komnir á sjötugs-
aldurinn og blöskraði okkur
aðgerðaleysi varðandi fjölgun
íbúðarhúsnæðis hér í Borgar-
nesi. Atvinnutækifæri sem í
sjónmáli eru hér í grenndinni
segja okkur að næg eftirspurn
verði eftir nýju húsnæði hér í
bænum,“ sagði Olafur Axels-
son í samtali við Skessuhorn.
Hann segir að þrátt fyrir að
nýju íbúðirnar hafi ekki verið
auglýstar enn sem komið er sé
þegar farin að myndast eft-
irpurn eftir þeim, mikið sé
spurt og eru 3 -4 íbúðir þegar
fráteknar. Þeir hyggjast reisa
húsið úr forsteyptum einingum
en í því verða 10 íbúðir, þriggja
og fjögurra herbergja í stærð-
unum 78 og 96 fermetrar.
„Framkvæmdir fara á fullan
skrið strax eftir áramótin og
við vonumst til að ljúka þeim
um mitt næsta ár og þá geti
nýju eigendurnir flutt inn,“
sagði Ólafur. MM
Ffkmefiii og stolin vopn
Lögreglan í Borgarnesi gerði
upptæk rúmlega 600 grömm af
þurrkuðum kannabisefnum og
nokkur grömm af amfetamíni
við húsleit á sveitabæ í Borgar-
byggð á laugardag. Einnig var
lagt hald á skotfæri og þrjú
skotvopn, þ.e. tvær haglabyssur
og stóran riffil sem húsráðandi
hafði ekki leyfi fyrir. Að sögn
lögreglu kom fram við rann-
sókn málsins að vopnin voru
stolin.
A bænum voru ummerki um
að þar hefði staðið yfir ræktun
kannabisefna í nokkurn tíma
samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu. Húsráðandinn sem er
maður á fertugsaldri var hand-
Hluti af kannabisefnunum sem fundust við húsleit í Borgarbyggð.
tekinn og færður til yfirheyrslu. hefur lögreglan í Borgarnesi
Að sögn lögreglu telst málið að
mestu upplýst.
Að sögn Kristjáns Inga
Hjörvarssonar lögregluþjóns
lagt hald á mun meira magn af
fíkniefnum á þessu ári en í fyrra
þótt málafjöldinn sé svipaður.
GE
ECjósverjar vilja sameinaðan Hvalfiörð
T T ,7 .'L.L, í T/I rf-onniir ntrir T-J\rnmr\rAnr 01 mn rr/i rn Atn ílnrmnor
Hópur íbúa í Kjósarhreppi
ill skoða möguleika á samein-
tgu sveitarfélaga beggja megin
Ivalfjarðar. Stofnaður hefur
erið félagsskapur fólks sem vill
koða sameiningu við sveitarfé-
ágin í Borgarfirði sunnan
karðsheiðar, þ.e. Innri - Akra-
eshrepps, Leirár -og Mela-
repps, Hvalfjarðarstrandar-
vepps og Skilmannahrepps.
lópurinn nefhir sig HF, sem
stendur fyrir Hvalfjörður.
Sameiningarnefnd félags-
málaráðuneytisins hefur lagt til
að Reykjavíkurborg, Mosfells-
bær og Kjósarhreppur verði
sameinuð í eitt sveitarfélag.
Borgarstjórn Reykjavíkur hefur
þegar hafnað því að kosið verði
um sameiningu þessara sveitar-
félaga. Hreppsnefnd Kjósar-
hrepps hefur ekki skilað inn at-
hugasemdum við tillögur sam-
einingarnefndarinnar.
Örn Viðar Erlendsson, sem
er í forsvari fyrir HF hópinn,
segir marga íbúa ósátta við
framgöngu hreppsnefhdarinnar
í sameiningarmálum. Hann
segir hinsvegar að sitt fólk vilji
ekki segja fyrirfram að einn
kosmr sé betri en annar, heldur
vilji menn einfaldlega að málin
séu skoðuð á lýðræðislegan
hátt. GE
Avítt fyiir
ijarvistir
Aður en gengið var til
dagskrár á síðasta fundi
byggðaráðs Dalabyggðar
voru samþykktar ávítur á
Guðrúnu Jónu Gunnars-
dóttur, fyrrverandi formann
ráðsins, fyrir slæma mætingu
á byggðaráðsfundi. Bókað
var að frá því Guðrún Jóna
tók sæti sem aðalmaður í
byggðaráði í júní s.l. hefðu
verið haldnir sjö fundir en
Gurún Jóna aðeins mætt á
þrjá þeirra. Þá korn frarn að
hún hefði ítrekað boðað for-
föll með skömmum fyrirvara
og var samþykkt á fundinum
að sveitarstjóra bæri ekki að
boða varamenn til fundar ef
fyrirvarinn væri stuttur
heldur yrðu aðalmenn að sjá
um það sjálfir ef þeir þyrftu
að tilkynna forföll.
GE
Sjúkraflug til
Grundaríjarðar
Þyrla Landhelgisgæslunn-
ar fór í loftið um fimmleytið
sl. mánudag í átt til Grund-
arfjarðar en þar hafði 3ja ára
barn dottið í hálku og feng-
ið höfuðhögg, samkvæmt
upplýsingum Landhelgis-
gæslunnar. Fór þyrlan til
móts við sjúkrabifreið á leið-
inni og sótti barnið. Þyrlan
Ienti í Reykjavík skömmu
síðar. Við rannsókn kom í
ljós að meiðsli barnsins voru
ekki alvarleg og fékk það að
fara heim af sjúkrahúsinu
um kvöldið. MM
Fíkniefiii
fimdust
Að kvöldi 10. deseinber sl.
framkvæmdi lögreglan á
Akranesi húsleit í íbúðarhúsi
á Akranesi vegna gruns um
að fíkniefni væru þar innan-
dyra. Við leit fundust um 10
grömm af hassi og um 13
grömm af amfetamíni. Einn
karlmaður var handtekinn
vegna málsins og viður-
kenndi hann við yfirheyrslu
að vera eigandi efnisins.
Málið telst upplýst og hefur
maðurinn verið leystur úr
haldi. MM
Leiðrétting
I umfjöllun um kynbóta-
hross í síðasta tölublaði fór
röng einkunn inn á hryss-
unni Elku. Hún hlaut í aðal-
einkunn 8,26 en ekki 8,10
eins og sagt var. Leiðréttist
þetta hér með og eru hlutað-
eigandi beðnir velvirðingar.