Morgunblaðið - 13.06.2019, Side 1
2019 - 2022
4
40
4
0
0
0
is
b
.is
@
is
la
nd
sb
an
ki Helstu verkefni og ábyrgð:
• Taka þátt í stefnumótun og markmiða-
setningu bankans
• Ábyrgð á rekstri og þróun tölvukerfa
og stafrænna lausna
• Tryggja stöðuga framþróun
upplýsingatæknilausna
• Drífa áfram verkefni og tryggja
skilvirka starfsemi
• Ábyrgð á vöruþróun í upplýsingatækni
í samræmi við stefnu bankans
Upplýsingatæknisvið Íslandsbanka
Framkvæmdastjóri
Upplýsingatæknisviðs
Íslandsbanki leitar að framkvæmdastjóra Upplýsingatæknisviðs. Við
leitum eftir leiðtoga með góða þekkingu á rekstri og þróun tölvukerfa
og sterka sýn á þróun stafrænna lausna viðskiptavinum til hagsbóta.
Framundan eru spennandi tímar í framþróun stafrænna lausna. Íslands-
banki stefnir að því að vera samstarfsaðili númer eitt í opnum bankaheimi
og vera þannig hreyfiafl til góðra verka.
Upplýsingatækni hefur snertifleti við alla starfsemi bankans, þvert á svið
og stjórnskipulag. Framkvæmdastjóri starfar náið með öðrum einingum
bankans við innleiðingu stefnu og markmiða bankans.
Framkvæmdastjóri Upplýsingatæknisviðs heyrir undir bankastjóra og á
sæti í framkvæmdastjórn bankans.
Umsóknir óskast fylltar út á islandsbanki.is og sendar inn ásamt ferilskrá.
Umsóknarfrestur er til og með 20. júní nk.
Hjá Íslandsbanka starfa um 830 manns með ástríðu fyrir árangri. Við vinnum saman að lausnum
fyrir viðskiptavini með fagmennsku að leiðarljósi. Starfsfólk Íslandsbanka leggur sig alltaf fram
við að veita bestu bankaþjónustuna.
Íslandsbanki hefur staðist jafnlaunavottun og hlotið Jafnlaunamerki Velferðarráðuneytis.
Hæfniskröfur:
• Afburða leiðtoga- og stjórnunarhæfni
• Framkvæmdagleði, eldmóður og faglegur
metnaður
• Lausnamiðuð hugsun og samskiptahæfni
• Víðtæk reynsla og þekking á upplýsingatækni
og stafrænni þróun
• Reynsla af stjórnun og rekstri
• Hreyfiafl til árangurs
Nánari upplýsingar veitir:
Hafsteinn Bragason, mannauðsstjóri: 844-4267 – hafsteinn.bragason@islandsbanki.is
atvinna@mbl.is • Sölufulltrúi • Richard Richardsson, richard@mbl.is, 569 1391
Ertu að leita að sérfræðingi?
hagvangur.is