Morgunblaðið - 13.06.2019, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JÚNÍ 2019 5
Stjórnarráð Íslands
Mennta- og
menningarmálaráðuneytið
Embætti ráðuneytisstjóra
í mennta- og menningarmálaráðuneyti
Auglýst er laust til umsóknar embætti ráðuneytisstjóra í mennta- og menningarmálaráðuneyti.
Mennta- og menningarmálaráðherra fer með yfirstjórn ráðuneytisins og ber ábyrgð á öllum stjórnarframkvæmdum
þess. Allar embættisfærslur starfsmanna eru gerðar í umboði ráðherra. Helstu verkefni sem heyra undir ráðuneytið
eru skipulag, rekstur og starfsmannahald ráðuneytisins, fræðslumál, þ.m.t kennslu- og skólamál, námsaðstoð,
vísindamál, safnamál, menningarminjar, listir og menning, höfundaréttur, íslensk fræði, íþrótta- og æskulýðsmál
og mál er varða fjölmiðla. Þá sinnir ráðuneytið fjölbreyttu erlendu samstarfi á sviði menntunar, menningar og
vísinda.
Mennta- og menningarmálaráðuneytinu er skipt í fimm skrifstofur. Skrifstofu mennta og vísinda, skrifstofu
menningarmála, skrifstofu stefnumótunar og fjárlagagerðar, skrifstofu laga og stjórnsýslu og skrifstofu
yfirstjórnar. Ráðuneytið starfar sem ein heild en skrifstofur hafa forræði á sínum málaflokkum eftir því sem efni
standa til. Ráðuneytisstjóri annast samræmingu á starfsemi skrifstofa og sér, ásamt skrifstofustjórum, um miðlun
upplýsinga til ráðherra.
Starfssvið:
Ráðuneytisstjóri stýrir ráðuneytinu undir yfirstjórn mennta- og menningarmálaráðherra. Ráðherra setur
ráðuneytisstjóra erindisbréf þar sem kveðið skal á um starfssvið og starfsskyldur, sbr. 2. mgr. 18. gr. laga um
Stjórnarráð Íslands nr. 115/2011. Starfssvið og starfsskyldur ráðuneytisstjóra eru víðtækar og ber ráðuneytisstjóri
m.a. fjárhagslega og faglega ábyrgð gagnvart ráðherra á starfsemi ráðuneytis. Þá ber ráðuneytisstjóra að veita
ráðherra upplýsingar og ráðgjöf þannig að ráðherra geti sinnt lögbundnu hlutverki sínu og stefnumótun og sé
vel upplýstur varðandi þau mál sem unnið er að. Ráðuneytisstjóra ber einnig að stuðla að framgangi og árangri
löggjafar á málefnasviði ráðuneytisins og að afgreiðsla mála á hverjum tíma sé fagleg. Þá ber ráðuneytisstjóra
ennfremur að samhæfa stefnumótun á öllum málefnasviðum ráðuneytisins, stuðla að samhentri stjórnsýslu og
samræma stefnu og aðgerðir ráðuneytisins við vinnu annarra ráðuneyta þegar málefni og málaefnasvið skarast.
Ráðuneytisstjóri skal með reglubundnum hætti halda verkefnafundi með skrifstofustjórum sem og almenna
starfsmannafundi í ráðuneytinu.
Menntunar- og hæfniskröfur:
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi, embættis- eða meistarapróf er skilyrði.
- Þekking á verkefnasviði mennta- og menningarmálaráðuneytisins.
- Reynsla af opinberri stjórnsýslu.
- Þekking og reynsla á sviði reksturs og starfsmannahalds er æskileg.
- Leiðtogahæfileikar og umfangsmikil stjórnunarreynsla.
- Færni í mannlegum samskiptum.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta.
- Kunnátta í einu Norðurlandamáli æskileg.
- Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti.
Ráðning og kjör:
Skipunartími núverandi ráðuneytisstjóra rennur út þann 30. nóvember nk. Skipað er í embættið til fimm ára frá og
með 1. desember 2019, sbr. ákvæði laga nr. 115/2011 og laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996
þegar skýrsla nefndar sem metur hæfni umsækjenda, sbr. 19. gr. laga nr. 115/2011, liggur fyrir.
Um laun og önnur starfskjör fer samkvæmt ákvæði til bráðabirgða í lögum nr. 60/2018.
Umsóknir:
Upplýsingar um starfið veitir Anna María Urbancic rekstrarstjóri mennta- og menningarmálaráðuneytis (anna.
maria.urbancic@mrn.is).
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.
Ekki er gert ráð fyrir sérstökum umsóknareyðublöðum. Umsókn skal vera skrifleg og henni skal fylgja ítarleg
ferilskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir hæfni viðkomandi til að gegna embættinu. Umsókn
skal skila rafrænt á netfangið mrn@mrn.is eða til mennta- og menningarmálaráðuneytisins, Sölvhólsgötu 4, 101
Reykjavik, eigi síðar en 8. júlí 2019. Nöfn allra umsækjenda verða birt á vef ráðuneytisins að loknum umsóknarfresti
og verða umsóknir þar sem óskað er nafnleyndar ekki teknar til greina.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir.