Fréttablaðið - 20.11.2019, Blaðsíða 23
MARKAÐURINN 7M I Ð V I K U D A G U R 2 0 . N Ó V E M B E R 2 0 1 9
Friðbert segir að gefa þurfi tengiltvinnbílunum meiri tíma til að ná útbreiðslu. Þróunin verði væntanlega sú að margir sem kaupi tengiltvinnbíla og eru ánægðir muni næst festa kaup á rafmagnsbíl. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
félagið til sölu árið 2010.“
Hvers varstu að horfa til þegar þú
keyptir Heklu?
„Mér þótti bílabransinn áhuga-
verður og Hekla er rótgróið fyrir-
tæki sem allir þekkja með góð
umboð: Audi, Volkswagen, Skoda
og Mitsubishi,“ segir Friðbert.
Hann viðurkennir að bílasala hafi
farið hægar af stað en reiknað var
með við kaupin á bílaumboðinu.
„Reksturinn var erfiður á árunum
2011 til 2014 sökum dræmrar sölu.
Það þarfnaðist mikillar yfirlegu að
láta reksturinn ganga upp. Frá 2014-
2017 var salan betri en markaður-
inn byrjaði að dragast saman 2018.“
44 prósenta samdráttur
Það sem af er ári hefur bílasala dreg-
ist saman um 44 prósent á milli ára.
„Það er erfitt að reka fyrirtæki þegar
sala dregst svona mikið saman,“
segir Friðbert.
Stjórnendur Heklu væntu um
20-25 prósenta samdráttar í ár, eins
og f leiri í atvinnugreininni, meðal
annars í ljósi þess að það stefndi í
erfiðar kjaraviðræður, bílaleigur
myndu ekki njóta lengur niðurfell-
ingar á tollum og minni umsvifa í
ferðaþjónustu meðal annars vegna
erfiðleika WOW air.
Friðbert segir að brugðist hafi
verið við samdrættinum með því
að hagræða í rekstri og birgðahaldi
og ferlar hafi verið bættir.
Það sem gerir rekstur enn erfiðari
hér á landi, að hans sögn, er að bíla-
umboðin eiga fjölmarga bíla á lager
en víða erlendis, til dæmis í Þýska-
landi, tíðkast að viðskiptavinir bíði
í 8-12 vikur eftir nýjum bíl. „Þetta
háa þjónustustig er dýrt, sérstak-
lega í ljósi þess hve vextir hafa verið
háir á Íslandi,“ segir hann.
Hvers vegna hefur markaðshlut-
deild Heklu lækkað úr fjórðungi árið
2014 í 18 prósent nú?
„Árið 2014 var stór hluti af sölu
okkar til bílaleiga en síðustu ár
höfum við lagt aðaláherslu á sölu
til einstaklinga og fyrirtækja, þar
af leiðandi hefur markaðshlutdeild
Heklu dregist saman. Nýskráningar
bifreiða til bílaleiga hafa síðustu
ár verið um 40 prósent af heildar-
markaði. Þetta er aðalskýringin á
breyttri markaðshlutdeild. Mark-
aðshlutdeild okkar þegar litið er til
einstaklinga og fyrirtækja er í góðu
horfi.“
Hvernig horfir bílasala við þér á
næsta ári?
„Ég er bjartsýnn á að bílasala
muni glæðast á ný á nýju ári og
að næstu ár verði ágæt. Hagtölur
benda til að hagkerfið sé ágætlega
statt, greinendur vænta hagvaxtar
á næstu árum, viðskiptajöfnuður
er hagstæður, reikna má með að
krónan verði tiltölulega sterk í
ljósi mikils gjaldeyrisvaraforða,
bílaf loti landsmanna er gamall í
alþjóðlegum samanburði sem er
óumhverfisvænt og æ f leiri vilja
umhverfisvæna bíla.
Á nýju ári mun Volkswagen og
f leiri bílaframleiðendur bjóða
mikið af nýjum rafmagnsbílum til
sölu. Það hefur tekið þá tíma að ná
því að anna þeirri miklu eftirspurn.
Framboðið verður því spennandi
frá sjónarhóli neytenda.
Stjórnvöld hafa verið framsýn
og felldu niður gjöld á umhverfis-
væna bíla upp að sex milljónum.
Aftur á móti, ef stefna stjórnvalda
er að stuðla að því að bílafloti lands-
manna verði umhverfisvænni, er
misráðið að fella niður afslátt af
opinberum gjöldum á tengiltvinn-
bíla (e. plugin hybrid) á næsta ári og
rafmagnsbíla árið 2023. Reynslan
sýnir að á erlendum mörkuðum þar
sem stuðningur ríkisins hefur verið
dreginn til baka dregur verulega úr
sölu umhverfisvænna tengiltvinn-
bíla.
Það þarf að gefa tengiltvinnbílun-
um meiri tíma til að ná útbreiðslu.
Ég tel að þróunin verði sú, að þeir
sem hafa góða reynslu af tengil-
tvinnbíl, muni næst stíga skrefið til
fulls og kaupa rafmagnsbíl.
Tengiltvinnbílar geta alla jafna
ekið um 40 kílómetra á rafmagni en
meðalakstur fólks í höfuðborginni
er um 35 kílómetrar. Þeir sem aka
á slíkum bílum geta því ekið flesta
daga einvörðungu á rafmagni og
stungið svo bílnum í hleðslu á
kvöldin.
Þá má heldur ekki líta fram hjá
því að þeir sem búa á höfuðborgar-
svæðinu eru í betri stöðu til að nýta
ríkisstuðninginn varðandi kaup
á rafmagnsbílum en þeir sem búa
á landsbyggðinni. Þeir sem búa á
landsbyggðinni eru líklegri til að
keyra lengri vegalengdir á milli
staða en hafa oft ekki tækifæri til
að hlaða bílinn meðan á ferða-
laginu stendur. Það vantar f leiri
rafhleðslustöðvar. Af þeim sökum
henta tengiltvinnbílar betur þeim
sem búa á landsbyggðinni og það
er eðlilegt að tekið sé tillit til þeirra
þarfa.
Það þarf að leggja aukinn kraft í
uppbyggingu innviða svo hægt sé
að nýta rafmagnsbíla um land allt.
Bílaleigur kaupa um 40 prósent af
öllum seldum nýjum bílum á ári.
Það þarf að huga að því að bílaleigur
geti keypt og leigt umhverfisvæna
bíla. Að öðrum kosti er vandséð
hvernig þær geti tekið þátt í orku-
skiptunum.
Ef vilji er til að fara hratt í raf bíla-
væðingu hér á landi er það vel ger-
legt. En eftirtektarverður árangur
hefur nú þegar náðst og íslenski
markaðurinn er nú í öðru sæti á eftir
Norðmönnum í raf bílavæðingu
á heimsvísu. Með skynsamlegri
lagasetningu tókst Norðmönnum
að lækka útblástur koltvísýrings í
umferðinni um níu prósent í fyrra.
Á síðasta ári voru 19 prósent
seldra bíla á Íslandi vistvæn á
meðan hlutfallið var 8 prósent í Sví-
þjóð og um tvö prósent í Danmörku.
Það er mikill vöxtur í sölu
umhverfisvænna bíla, hlutfallið í
sölu til einkaaðila og fyrirtækja er
komið í 28 prósent það sem af er
ári og við teljum að hlutfallið muni
aukast enn frekar á næstu 12 til 18
mánuðum. Íslendingar eru mjög
áhugasamir um að taka þátt í tækni-
nýjungum.“
Leitaði til Danmerkur
Hvernig kom það til að þú fékkst
Semler, umboðsaðila Volkswagen í
Danmörku, til að fjárfesta í helmings
hlut í Heklu árið 2013 þegar enn voru
fjármagnshöft?
„Ég velti vöngum yfir því hverjir
væru reiðubúnir til að fjárfesta til
lengri tíma í Heklu og varð hugsað
til Semler. Fyrirtækið hefur einnig
fjárfest í Austur-Evrópu með góðum
árangri og hefur mikla þekkingu á
bílgreininni.“ Seljandi hlutarins var
Franz Jezorski sem keypti Heklu
með Friðberti.
Það sitja tveir Danir í stjórn Heklu
og tveir Íslendingar. Íslendingar
eru Jón Eiríksson endurskoðandi
og Margrét Guðmundsdóttir, fyrr-
verandi forstjóri Icepharma og
núverandi stjórnarformaður Festar
sem meðal annars á N1 og Krónuna.
Hvaða reynsla úr störfum þínum
fyrir Coca-Cola hefur nýst þér í
rekstri Heklu?
„Ég bý að því að hafa starfað hjá
Framferði Volks
wagen var algerlega
óásættanlegt en það já
kvæða sem kom út úr þessu
hneyksli er að bílaframleið
endur endurhugsuðu
starfsemi sína og lögðu
áherslu á umhverfismál og
umhverfisvæna bíla. Þetta
hefur orðið til þess að þeirri
þróun var flýtt verulega.
alþjóðlegu markaðsdrifnu stór-
fyrirtæki sem Coca-Cola er. Í þeim
störfum hef ég fengið tækifæri til að
kynnast því afli og langtíma hugsun
sem þarf til að byggja upp rekstur
og vörumerki til lengri tíma. Volks-
wagen-samstæðan er slíkt fyrirtæki
enda starfa þar um 600 þúsund
manns um allan heim.“
Óskynsamleg staðsetning
Hvernig horfir þróunin við þér, að
fólk virðist horfa í æ minna mæli
til einkabílsins og í ríkara mæli til
deilihagkerfisins, reiðhjóla – sem
þið raunar seljið líka – og almenn-
ingssamgangna?
„Þetta á eftir að hafa áhrif á næstu
árum og ég tel að þessar breytingar
séu af hinu góða. Engu að síður tel
ég að sala á nýjum bílum verði góð.
Það má líka velta vöngum yfir hve
lítið hefur verið fjárfest í innviðum
fyrir bíla á undanförnum árum.
Stjórnmálamenn hafa sagt að slíkt
myndi auka bílaumferð. Það verður
hins vegar að horfa til tveggja þátta.
Annars vegar fer þjóðinni fjölgandi
og hins vegar hefði mátt staðsetja
þrjá stærstu vinnustaði landsins
með skynsamlegri hætti. Háskóli
Íslands, Háskólinn í Reykjavík og
Landspítalinn eru nánast á sama
bletti sem skapar mikinn umferðar-
þunga. Umferðin er mun léttari á
sumrin þegar skólarnir eru í sumar-
fríi. Það segir sína sögu.“
Finna fyrir gráa markaðnum
Hefur grái markaðurinn haft mikil
áhrif á sölu ykkar?
„Grái markaðurinn hefur haft
verulega áhrif. Það er ekki spurning.
Til að mynda hafa aðrir selt Mit-
subishi Outlander í nokkrum mæli
enda vel heppnaður og vinsæll jepp-
lingur.
Það getur verið áhættusamt að
kaupa af gráa markaðnum. Það
hafa komið upp ýmis dæmi um að
fólk hafi keypt köttinn í sekknum.
Það hafa komið bílar á verkstæði
okkar með afar lága kílómetra-
stöðu en við nánari skoðun kemur
í ljós að þeir eru mikið eknir. Raf-
drifnir Volkswagen Golf hafa verið
f luttir inn frá Bandaríkjunum sem
ekki eru með hraðhleðslu, oft er
ábyrgðin einungis tvö ár erlendis
en við bjóðum fimm ára ábyrgð.“
Volkswagen varð uppvíst að
svindli á útblásturstölum árið 2015.
Hafði það áhrif á söluna hjá Heklu?
„Nei, það hafði tiltölulega lítil
áhrif á sölu Heklu. Framferði Volks-
wagen var algerlega óásættanlegt en
það jákvæða sem kom út úr þessu
hneyksli er að bílaframleiðendur
endurhugsuðu starfsemi sína og
lögðu áherslu á umhverfismál og
umhverfisvæna bíla. Þetta hefur
orðið til þess að þeirri þróun var
f lýtt verulega. Frá árinu 2015 hafa
bílaframleiðendur verið í farar-
broddi í fjárfestingum í umhverfis-
málum.“
Borgin breytti skilmálum einhliða
Hekla hefur síðustu ár unnið að
því í samstarfi við Reykjavíkur-
borg að umbylta Heklureitnum
við Laugaveg í íbúðabyggð með
allt að 400 íbúðum. Samhliða
hugðist borgin úthluta Heklu lóð
í Suður-Mjódd.
Friðbert segir að eftir að
skipulag fyrir Heklureitinn
hafði verið samþykkt í skipu-
lagsráði og komið til endanlegs
samþykkis borgarstjórnar hafi
skyndilega kveðið við nýjan tón í
Ráðhúsinu við Reykjavíkurtjörn.
Þær nýju kröfur sem borgin hafi
óvænt komið fram með um að
fá afhentar 20 félagslegar íbúðir
undir kostnaðarverði ásamt
skuldbindingu um 35 leiguíbúðir
leiddu til þess að ekkert verður
af þessu verkefni.
„Þrátt fyrir undirritaða vilja-
yfirlýsingu um framkvæmd
málsins og að hafa samþykkt
greiðslu hinna umdeildu inn-
viðagjalda upp á rúmar 200 millj-
ónir króna ákveður borgarstjórn
einhliða að breyta skilmálunum.
Það gerir borgarstjórn án þess að
hafa til þess þar til bæra útreikn-
inga eða fjárhagslegar forsendur
sem þýðir að þessi ákvörðun
er handahófskennd og leiðir til
þess að fjárhagslegar forsendur
verkefnisins eru brostnar.
Það er ljóst að innviðagjöldum
ásamt niðurgreiddum félags-
legum íbúðum verður fleytt í
söluverð nýrra fasteigna og því
bitnar það á endanum á borgar-
búum sem þurfa að greiða hærra
verð fyrir íbúðirnar,“ segir hann.
Það gerir borgar
stjórn án þess að
hafa til þess þar til bæra
útreikninga eða fjárhags
legar forsendur sem þýðir
að þessi ákvörðun er
handahófskennd og leiðir
til þess að fjárhagslegar
forsendur verkefnisins eru
brostnar.
Austurstræti 18
Skólavörðustíg 11
Laugavegi 77
Hallarmúla 4
Álfabakka 16, Mjódd
Kringlunni norður
Kringlunni suður
Smáralind
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Keflavík - Krossmóa 4
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Akranesi - Dalbraut 1
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Vestmannaeyjum - Bárustíg 2
Húsavík - Garðarsbraut 9 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
Café
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Austurstræti 18
Skólavörðustíg 11
Laugavegi 77
Hallarmúla 4
Álfabakka 16, Mjódd
Kringlunni norður
Kringlunni suður
Smáralind
Hafnarfirði - Strandgötu 31
Keflavík - Krossmóa 4
Akureyri - Hafnarstræti 91-93
Akranesi - Dalbraut 1
Ísafirði - Hafnarstræti 2
Vestmannaeyjum - Bárustíg 2
Húsavík - Garðarsbraut 9 540 2000 | penninn@penninn.is | www.penninn.is | www.eymundsson.is
C fé
AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG
LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM
Kúlupenni Gear
Metal króm
Verð: 9.100.-
Kúlupenni
Storyline svartur
Verð: 10.100.-
SKRIFAÐU EINS OG BOSS!
FÁST Í VERSLUN OKKAR Í SMÁRALIND
NÝJIR PENNAR FRÁ
2
0
-1
1
-2
0
1
9
0
4
:5
6
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
2
4
4
6
-3
4
0
0
2
4
4
6
-3
2
C
4
2
4
4
6
-3
1
8
8
2
4
4
6
-3
0
4
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
4
0
s
_
1
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K